Freyr

Årgang

Freyr - 01.11.2000, Side 10

Freyr - 01.11.2000, Side 10
Gestir að skoða hvannarakurinn í Engi, frá vinstri: Steinþór Sigurðsson HI, Ásdís Helga Bjarnadóttir Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri, Arni Snœ- björnsson BÍ, Sigmundur Guðbjarnason HI og bœndurnir Ingólfur Guðnason og Sigrún Elfa Reynisdóttir. (Ljósm. Þráinn Þorvaldsson). hlutar hennar nýttir. Hvönnin var borðuð með harðfiski og smjöri, einnig með mjólk eða þeyttri und- anrennu (flautum). Hvannarrótum var safnað á vorin og fram eftir sumri og á haustin. Þóttu þær rætur bestar sem grafnar voru upp snemma vors. A haustin var nokk- uð af rótunum grafið í mold og geymt til vetrarforða. Betra þótti þó að sykursalta ræturnar og geyma þær þannig til vetrar. Hvannarrótin var höfð í brauð; þótti best ef hún var fyrst soðin í mjólk, njólinn og fræið voru einnig höfð í brauð saman við mjólk til drýginda. Hvannarrótin var látin í brennivín til bragðbætis, sömu- leiðis fræið. Hvannarnjólarnir voru borðaðir hráir. Ysta lagið var þá flysjað af, stönglarnir þverskornir í smáa bita og borðaðir með smjöri. Blöðin voru soðin og notuð í sósu með fiski. Blómsveipirnir og fræin hálfþroskuð og fullþroskuð voru höfð til matar. Nú þekkist ætihvönnin varla sem nytjaplanta og fremur talin til ill- gresis. Á undanförnum árum hefur lyfjaiðnaðurinn sýnt villtum plöntum vaxandi áhuga. Ástæðan fyrir því er sú að jurtir hafa í aldanna rás náð að þróa efnavopn í baráttu sinni við sýkla og skordýr. Þessi efni eru því áhugaverð að því leyti að hugsanlega er hægt að þróa svipuð vopn fyrir baráttu manna við sjúkdóma af völdum sýkla. Lyfjaiðnaðurinn hefur unnið mikinn hluta krabbameinslyfja og sýklalyfja beint eða óbeint úr náttúrunni. Villtar og þó sérstaklega lífrænt ræktaðar jurtir njóta sífellt meiri at- hygli samhliða vaxandi áhuga á heilsuvörum. Með góðri þekkingu á hinum ýmsu plöntutegundum og ræktun þeirra, samhliða rannsókn- um á líffræðilegri virkni efna úr þeim og markaðssetningu, er kom- inn öflugur grunnur að markaði fyr- ir heilsuvöruiðnaði, matvæla-, snyrtivöru- og lyfjaiðnaði. Rannsóknir á líffræðilega virkum efnum úr lækningajurtum hafa ver- ið takmarkaðar hér á landi en aukist mjög á síðustu tíu árum. Sigmundur Guðbjarnason prófessor og Stein- þór Sigurðsson hafa að undanfömu rannsakað ætihvönn. Niðurstöðum- ar hafa sýnt að unnt er að vinna efni úr henni sem hafa áhrif á krabba- meinsfrumur, veirur, bakteríur og ónæmiskerfið. Einnig hafa niður- stöðurnar sýnt að virkni efna úr ís- lenskum lækningajurtum er meiri en efna sem unnin eru úr sambæri- legum jurtum ræktuðum í suðlæg- ari löndum. í sumar var stofnað fyrirtækið Heilsujurtir ehf. sem vinnur að framleiðslu og sölu jurtalyfja og heilsubótarefna úr íslenskum jurt- um. Stofnendur þess eru Sigmund- ur Guðbjarnason prófessor, ásamt nánustu samstarfsmönnum sínum sem unnið hafa að verkefninu und- anfarin ár og stofnunum sem hafa stutt verkefnið, þar á meðal Bænda- samtök íslands. í framhaldi stofnunar félagsins hófst samstarf við Landbúnaðarhá- skólann á Hvanneyri um söfnun og frumvinnslu hráefnis, auk rann- sókna og fræðslu á hvannar-ræktun. Allt er þetta á byrjunarstigi. Áhugi á þessu rneðal bænda er mikill. Undanfarin ár hefur Ingólfur Guðnason í Engi í Laugarási rækt- að hvönn og því öðlast nokkra reynslu á því sviði. Auk hráefnis frá honum tók skólinn á móti hráefni frá tveimur öðrum sem nýtast mun Heilsujurtum ehf. í framleiðslu sinni og markaðsöflun á vetri kom- andi. Reikna má með að ef vel tekst til varðandi útvegun fjárfesta og markaðsöflun geti hér verið um að ræða aukabúgrein fyrir marga í hin- um dreifðu byggðum landsins. Hér á eftir verður fjallað um rækt- un hvannar. Hafa ber í huga við lest- ur þessa að hér er um að ræða upp- lýsingar sem koma víða að. Þetta eru því ekki rannsóknamiðurstöður, heldur leiðbeinandi aðferðir sem gætu nýst vel í upphafi ræktunar. Ræktun Vaxtarstaður. Æskilegur vaxtar- 10 - Freyr 10/2000

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.