Freyr

Årgang

Freyr - 01.11.2000, Side 11

Freyr - 01.11.2000, Side 11
staður fyrir hvönn er opið svæði með góðri, heitri, næringarríkri og rakri mold án steina. Moldarjörð hentar vel við ræktunina en þá get- ur verið erfitt að hreinsa rætumar vel. N. Mohr (sbr. Hvannir) hélt því fram að hvannir yrðu misjafnlega bragðgóðar eftir ræktunarstað. Þannig yrðu þær beiskar ef þær vaxa í raklendi en sætar á þurrlendi. Hvönnin þolir vel kulda og hefur gott vetrarþol. Hún hefur vöxt strax og snjór er farinn og hlýna fer í lofti. Sáning: Hvönnin fjölgar sér með fræjum og því æskilegt að taka fræ og sá strax á heppilegan ræktunar- stað. Reynslan hefur sýnt að spír- unareiginleikar fræs ætihvannar tapast fljótt. Fræ sem er keypt að vetrarlagi verður að meðhöndla sérstaklega. Fræinu er þá blandað í rakan sand og þannig geymt í 0- 3°C í 4-5 vikur. Þegar fyrsta fræið fer að spíra má sá því í potta eða kassa. Ef hvönninni er sáð í uppeldis- reiti í ágúst-september spírar hún í maí-júní. Miða skal við að hafa bil milli raða 35-40 cm og um 80-100 fræ/meter. Nauðsynlegt er að reyta allt illgresi frá plöntunum. Plantað er út á haustin, í ágúst og/eða sept- ember. Bil milli plantna þarf að vera um 60-70 cm. Fræi, sem er meðhöndlað, má sá inni í maí og planta seinna út með 10-25 cm bili á milli plantna. Ef plöntumar eru stórar, þroskast blóm fljótt og þar af leiðandi verður rót- arhlutinn rýr. Þriðji möguleikinn er að sá beint í ræktunarsvæðið í ágúst-septem- ber. Sáð er þá í raðir og miða má sáðmagnið við 100-200g fræ/1000 m2. Einnig er hægt að sá í fjölpotta- bakka að hausti, geyma á köldum stað yftr veturinn og taka inn í hita í mars-apríl og planta síðan út þeg- ar jörð er farin að hitna. Þessi að- ferð getur flýtt fyrir vexti plöntunn- ar. Með því að planta í gegnum plast má síðan takmarka mjög sam- keppni hennar við illgresi. Áburður: Æskilegt er að bera á fyrir plöntun um 4-5 kg af lífrænni áburðablöndu á hvern fermetra. Hreinsa þarf illgresi vel fyrir plöntun og meðan á ræktun stendur. Hægt er að þekja moldar- yfirborðið með nýklipptu grasi, torfi eða svörtu plasti. Nauðsyn- legt getur verið að vökva í maí- júní, sérstaklega þar sem svart plast er notað. Uppskera: Fersk blöð má fara að tína 3-4 vikum eftir að vöxtur hefst að vori og fram á haust. Fjarlægja þarf blómstöngla við rót til að auka blaðvöxtinn. Athuga þarf að klæð- ast skal hlífðarfatnaði þegar blöð og stönglar eru klipptir því að plantan getur gefið frá sér efni sem ert getur húðina mjög illa. Rœturnar eru grafnar upp í sept- ember eða á vorin, áður en plantan fer að nýta forðanæringuna úr þeim. Þá getur verið gott að slá of- anvöxt áður en rótin er tekin. Nota má gaffal við að ná stólparótinni upp. Hreinsa þarf öll blöð af rótinni og þvo hana vel og vandlega. Rót- inni er svo skipt upp og þannig þurrkuð í 3-4 daga við 35 °C. Á Norðurlöndunum getur rótarupp- skeran orðið allt frá 60 til 200 kg/1000 m2. Þegar sóst er eftir frœi má að sjálfsögðu ekki fjarlægja blómstur- stöngulinn. Fræi er safnað í júlí - september, þegar það er orðið gult- brúnt að lit. Mesta uppskeran fæst af fyrstu blómunum en einnig er hægt að fá þónokkuð af hliðarsprot- unum. Blómklasinn er þurrkaður í um eina viku og þá fellur fræið auð- veldlega af kransinum. Fræið á að geyma við 1-5°C. Fræ tapar fljótt spírunarhæfni og því ber einungis að nýta nýuppskorið fræ til sán- ingar. Heilsujurtir ehf. hafa fyrst og fremst leitað eftir hvannarblöðum og hins vegar þroskuðu hvannar- fræi til vinnslu. Samkvæmt því sem að ofan greinir má fara að safna blöðum í júní fram til jafnvel ágúst- loka og hvannarfræi frá júlí til sept- emberloka, allt eftir tíðarfari. Mik- ilvægt er að þurrka það við hita undir 38°C og geyma á þurrum en köldum stað. Hafa skal í huga að hráefnið tekur mjög auðveldlega í sig raka úr umhverfinu og því mikil hætta á að hráefnið geti myglað (mun viðkvæmara en hey). Á liðnu sumri tók Landbúnaðarháskólinn að sér að þurrka hráefni frá bænd- um sem hafa ekki til þess aðstöðu. Það fyrirkomulag verður að öllum líkindum einnig til boða næsta sumar. Að lokum má til gamans minnast orða Einars Helgasonar í bókinni Hvannir frá árinu 1926: „Það er ekki meining mín að farið verði svo mjög að stunda hvannarœkt eða hvannaát að nýju, heldur að henni sé lofað að vera með í einhverju horni garðsins; að þessari jurt, sem um aldaraðir hefir átt sinn góða þátt í því að viðhalda lífi og heilsu forfeðra vorra, verði sýndur til- hlýðilegur sómi\ Hver veit nema þessi ræktun eigi einnig eftir að bæta líf og heilsu af- komenda okkar ? Heimildir: Betalan Galambosi, 1995. Ökolog- isk urtedyrking I Norden. Infosenter- et, Forskningsparken i Ás. 120 bls. Einar Helgason, 1926. Hvannir, matjurtabók. Gutenberg, Rvík. 288 bls. Haraldur Teitsson, 1993. Kryddbók- in, upplýsingar um krydd, kryddjurtir og bragðefni. Eldhúsfræðarinn, Rvík. 91 bls. Hörður Kristinsson, 1986. Plöntu- handbókin, Blómplöntur og byrkning- ar. Islensk náttúra 2. Öm og Örlygur, Rvík. 304 bls. Magna Leth, 1994. Hagens krydd- ervekster for mat og drykke. Det Norske Hageselskap. Gröndahl Dreyer, Oslo. 128 bls. Snævar Sigurðsson, 1999. Rann- sóknir á náttúruefnum í íslenskum iækningajurtum. Námsverkefni, Ný- sköpunarsjóður námsmanna. 38 bls. Steinar Dragland, 2000. Kvann - bo- tanikk, innholdsstoff, dyrkning, hösting og foredling. Grönn forskning nr 08. Planteforsk Norge. 33 bls. Freyr 10/2000 - 11

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.