Freyr - 01.11.2000, Side 15
að komast nógu djúpt niður til að
leggjast í dvala og lifa veturinn af.
Ályktanir
Þessi athugun gefur ekki tilefni
til víðtækra ályktana. Eigi að síður
gefa þessar niðurstöður ákveðnar
vísbendingar um að unnt sé að
flýta landnámi ánamaðka með því
að flytja þá á ný svæði. Túnið, sem
tilraunin var gerð á, hefur aldrei
áni, einn grááni og tuttugu egghylki
taðána. Auk þess fjórir mosaánar
og rúmlega hundrað egghylki frá
þeim. Þessar niðurstöður samsvara
8 möðkum á fermetra af hvorri teg-
und, taðána og gráána en 16 af
mosaána.
Báðar tegundimar, sem sleppt
var, hafa haldist við í reitunum þrátt
fyrir áfallið 1995. Fjöldi á fermetra
virðist þó ekki mikill enn sem kom-
ið er og ekki er víst að lífsskilyrði
séu þannig að margir maðkar geti
lifað á hverjum fermetra. Ekki
fundust egghylki gráána árin 1998
og 2000 en bæði árin þónokkur frá
taðána. Hér ber þó að hafa í huga að
egghylkin eru hnappdreifð, þ.e.
mörg geta verið á litlum blettum, en
fá annars staðar.
í fyrri rannsókninni var mest af
ánamöðkum í aldagömlum túnum
(350-500 m2) en fæstir í blautu
mýrartúni (5 m2). Fjöldinn í þessum
reitum samsvarar því sem minnst
var í fyrri rannsókninni.
Búfjáráburður hefur ekki verið
borinn á túnið en hann myndi vænt-
anlega bæta lífsskilyrði maðkanna.
Jarðvegur er ekki djúpur í túnunum
á Skógasandi, 15-20 sm og síðan
tekur við grófur sandur. Þetta gerir
möðkunum væntanlega erfitt fyrir
Hola eftir jarðvegstorfu til ánamaðkaleitar. (Ljósm. G.Þ.).
Jónatan Hermannsson tilraunastjóri á Korpu og Hólmfríður Sigurðardóttir
hreinsa ánamaðka og egg þeirra úr jarðvegstorfu. (Ljósm. G.Þ.).
verið plægt frá því sáð var upp úr
1950. Annars staðar á Skógasandi
eru tún sem hafa verið plægð og
korn ræktað í þeim. Það er líklegt
að sú aðgerð bæti mjög lífsskilyrði
ánamaðka og væri áhugavert að
gera svona athuganir í þeim
stykkjum.
Heimildir
Curry, J.P., 1988. The Ecology of
Earthworms in reclaimed soils and their
influence on soil fertility. I: Earth-
worms in waste and environment man-
agement. C. A. Edwards & E.F. Neu-
hauser (ritstjórar). SPB Academic
Publishing, The Hauge, The Nether-
lands, 251-261.
Hólmfríður Sigurðardóttir og Guðni
Þorvaldsson, 1994. Ánamaðkar (Lum-
bricidae) í sunnlenskum túnum. Búvís-
indi 8, 9-20.
Hoogerkamp, M., H. Rogaar, og
H.J.P. Eijsacker, 1983. Effects of earth-
worms in grassland on recently re-
claimed polder soils in the Netherlands.
í: Earthworm Ecology, from Darwin to
vermiculture. J. E. Satchell (ritstjóri).
Chapman & Hall, London, 85-105.
Stockdill, S.M.J., 1982. Effects of in-
troduced earthworms on productivity of
New Zealand pastures. Pedobiologia
24, 29-35.
FREYR 10/2000 - 15