Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2000, Blaðsíða 29

Freyr - 01.11.2000, Blaðsíða 29
2. mynd. Hlutfall aspa á lífi haustið 1998 eftir sjö ára vöxt á bersvœði í tilraun á Torfalœk í Austur-Húnavatnssýslu. (Ingvar Björnsson, 1999). af Alaskaösp. í Aprílhretinu 1963 stórskemmdust eða dóu nær allar aspir á Suður- og Suðvesturlandi og í kjölfar þess var Haukur Ragnars- son sendur til Alaska til söfnunar á asparkvæmum og kom hann heim með alls 14 kvæmi og fleiri en einn klón af hverju kvæmi (Líneik A. Sævarsdóttir og Úlfur Óskarsson, 1990). Þessi kvæmi hafa verið uppistaðan í yngri ræktun aspa. Við góðar aðstæður er Alaskaösp mjög hraðvaxta en hún þolir illa ber- angur og því þarf að mynda gott fóst- urskjól ef hún á að ná sér á strik. Þrátt fyrir þetta ætti að vera óhætt að stinga niður niður asparstiklingum um leið og stiklingum fósturtijáa. Fjölmörgum asparklónum var plantað út víðsvegar um landið 1992-1993 til þess að kortleggja klónaval. M.a. var plantað 40 klón- um á Torfalæk í Austur-Húnavatns- sýslu og nú liggja fyrir mælingar á þessum klónum (2. mynd og 3. mynd) (Ingvar Bjömsson, 1999). Nefna má nokkra klóna sem komu vel út í tilrauninni og vel má hugsa sér að þeir geti gagnast vel í húnvetnsk skjólbelti. Klónninn Grund 44-01-003 er uppruninn frá Divide í Seward í Al- aska. Hann er úr fyrstu söfnunar- ferðinni frá árinu 1944 og í tilraun- ina var safnað afklippum úr Hauka- dal. Grund sýnir minnst afföll klón- anna í Torfalækjartilrauninni. Laugarás 47-01-001 er upprun- inn frá Cooper Landing og safnað af trjám í Laugarási. Laugarás kom ágætlega út út tilrauninni og kemur til greina í fjölgun. Halla 50-01-010 er frá Lawing í Alaska og safnað af trjám á Hall- ormsstað. Halla kom út svipað og Laugarás og gefur ágæt fyrirheit. Pinni 63-09-003 kemur best út af klónum úr söfnunarferðinni 1963. Hann er frá Cordova Flats og safnað af trjám á Mógilsá. Samkvæmt Líneik A. Sævars- dóttur og Úlfi Óskarssyni (1990) er Pinni beinvaxinn en grannvax- inn klónn, vindþolinn en ekki öruggur að vori. Að lokum eru nefndir klónamir 79-11-004 og 79-04-001 sem eru hvort tveggja klónar sem teknir vom af trjám sem vaxin em upp á Mógilsá af fræi sem safnað var á Akureyri árið 1979. Ofangreindir klónar koma vel til greina í húnvetnsk skjólbelti en einnig er skynsamlegt að hafa aug- un opin fyrir fallegum trjám á svæðinu og freista þess að fjölga þeim. Ekki má gleyma því að árangurinn í skjólbeltaræktuninni stendur og fellur með því hráefni (tegundir/kvæmi/klónar) sem notað er í beltin. Fjölgun á ösp er afar auðveld líkt og með flestar víðitegundir þar sem hægt er að fjölga henni með græðl- ingum. Þetta gerir öspina að mjög æskilegu tré í skjólbeltarækt þar sem því er við komið. Það sem helst gæti komið í veg fyrir notkun Alaskaaspar í skjólbelti í Húna- vatnssýslum er að jarðvegur sé of þurr á köflum. Sitkagreni (Picea sitchensis) Heimkynni sitkagrei em meðfram vesti strönd N-Ameríku, frá Kalifomíu norður til Alaska í hefðbundnu strandloftslagi Sitkagreni er stór vaxnast allra grenitegunda og sunn- arlega í heimkynnum sínum getur það náð allt að 100 m hæð (Baldur Þorsteinsson, 1990(2)). Kjörlendi sitkagrenis er rakur jarðvegur og úrkomumikil svæði og séu því búnar áskjósanlegar aðstæð- ur vex það hratt, er vindþolið og saltþolið (Ólafur Njálsson, 1994). Hætta er á því að of þurrt sé víða í Húnavatnssýslum fyrir sitkagreni og ekki þýði að rækta það nema í FREYR 10/2000 - 29

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.