Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2000, Síða 34

Freyr - 01.11.2000, Síða 34
því aðeins verðmætasköpun að hún sé meira virði en framleiðslukostn- aðurinn. Ef framleiðandinn kemst hjá því að greiða hluta af kostnað- inum hagnast hann á því, jafnframt því sem að samanlagðir kostnaðar- liðir geta vegið þyngra en fram- leiðsluverðmætið. í raun og veru þarf framleiðand- inn sjaldan að greiða allan kostnað- inn, sagði Káre Willoch, og benti þar sérstaklega á að flutningafyrir- tæki komast oft hjá því að greiða fyrir skaðann sem þeir valda, svo sem með útblæstri véla út í and- rúmsloftið af lofttegundum sem geta spillt gufuhvolfmu og þar með leitt til gífurlegs efnislegs og óefn- islegs tjóns. Sem dæmi um flutninga sem greiða ekkert fyrir afnot af gufu- hvolfinu nefndi hann að á hverjum degi tækju sig á loft 14 jumbóflug- vélar frá flugvellinum í Amsterdam í Hollandi fullfermdar af eggjum sem flogið er með til Mið-Austur- landa. Samsvarandi flutningar eiga sér stað til Hongkong. Þetta er lýsandi dæmi um það að með því að hlífa flutningunum við að greiða fyrir skaða á umhverfinu sem þessir flutningar valda þá skapa þeir gervihagkvæmni fyrir fjarlæga framleiðendur gagnvart þeim sem nær starfa, einkum í iðn- aði og landbúnaði. Þetta hvetur enn frekar til þróunar í átt til stórrekstr- ar og samþjöppunar á eignarhaldi í þessum rekstri. Obeint gefur þetta fjölþjóðlegum stórfyrirtækjum þjóðhagslega skaðlegt forskot í samkeppni við minni keppinauta sem starfa nær neytendum. Þannig eru að hluta til óraunhæfar undir- stöður að baki hinnar hröðu heim- svæðingar, bæði hvað varðar fram- leiðsluferlana og samþjöppun í stórrekstur, sem er önnur hlið á sama málinu. Frjáist flæði fjármagns er orðið of óheft Frjálst flæði fjármagns beinir at- hyglinni að miklum óleystum vandamálum. Sem dæmi um það nefndi Káre Willoch hrun fjármála- markaðanna í Asíu árið 1997 sem stafaði af því að bandarískir áhang- endur hinna frjálsu markaðsafla þvinguðu fram opnun fjármagns- markaðanna í Asíu áður en nauð- synlegar öryggisaðgerðir gegn spá- kaupmennsku höfðu verið gerðar. Milljónir manna töpuðu á þessu og Káre Willoch nefndi þetta mál sem dæmi um það þegar fólk sem skorti nægan bakgrunn í menningu og sögu kæmist til of mikilla valda. Áhættan á að einstök fjármálafyr- irtæki geti valdið skaða um allan heim eykst þegar samsteypumar verða jafn stórar og nú hefur gerst, sagði Káre Willoch, og benti á að upp hafa risið fjármálastofnanir sem velta fjármunum sem samsvara þjóðarframleiðslu stórra landa. Það hlýtur að verða spurt um það hver geti stjómað slíkum risum sem auð- veldlega geta flutt fjármagn og starfsemi milli sinna eigin deilda víðsvegar um heim. Hættumerkin stækka en samt heldur sammninn áfram, bæði í fjármálaheiminum og á öðrum sviðum. Káre Willoch lagði til að menn kynntu sér með gagnrýnum huga hversu hagkvæmt þetta væri. Raunhæft mat á aðstæð- um hvað varðar það sem þjónar heildarhagsmunum best vill oft skekkjast af áhuga manna í topp- stöðum á persónulegu valdi og eig- inhagnaði, sem og hagnaði hlut- hafa. Alþjóðarvæöingin og hinn vaxandi munur milli fólks Káre Willoch er upptekinn af vaxandi mun á kjörum ríkra og fá- tækra sem jafnvel hefur átt sér stað í Noregi síðustu 15 árin. Ástæðan er bæði heimagerð og alþjóðleg. Hnattræn ástæða er hin nýja fjar- skiptatækni, frjáls verslun og ódýrir flutningar sem gerir það hagkvæm- ara að flytja störf til landa þar sem greidd eru lág laun. Vöxtur fjöl- þjóðlegar fyrirtækja, sem hafa með höndum starfsemi í mörgum lönd- um, hvetur til flutnings framleiðslu til staða þar sem hún kostar minnst. Þetta er að sjálfsöðu jákvætt fyrir fátækt fólk í þróunarlöndum, en þetta getur einnig gengið það langt að það verði óhagkvæmt þjóðfé- lagslega í þessum löndum. Ófag- lært fólk lendir í harðri samkeppni innbyrðis sem leiðir fljótt til óvæg- innar samkeppni um störf sem aftur leiðir til lélegrar launaþróunar eða atvinnuleysis. Hrein firra að segja eldri starfsmönnum upp til að ráða yngra fólk Samskipti við roskið starfsfólk er vandamál sem er skylt því sem ger- ist þegar störf eru lögð niður. Hinir eldri verða að hætta þar sem áætl- anir atvinnurekanda sýni að það sé hagkvæmt að ráða yngra fólk í stað þess eldra. En útreikningar vinnu- veitenda sleppa félagslegum út- gjöldum við breytingamar, þ.e. að eftirlaun þeirra sem hætta bætast við laun þeirra sem taka við. Þann- ig getur það borgað sig fyrir fyrir- tæki eða stofnun að eldra starfsfólk verði óvirkt þó að þjóðfélagslega séð sé það hrein firra. Takmarkanir og um- bætur á hnattvæðingu Káre Willoch benti á að sannur fylgismaður markaðshagfræðinnar gæti hæglega komist að þeirri nið- urstöðu að kerfið hafi marga alvar- lega veikleika. Að hluta til geta gallamir verið slíkir að menn geta furðað sig á því að ekki skuli vera gripið til pólitískra aðgerða. Að hluta til getur þetta stafað af því að það sé almennt viðhorf, byggt á reynslu, að hinn kosturinn sé miklu verri, þ.e. sósíalismi og sósíal- demókratí. Vemdaraðgerðir sem úrræði inn- an frjáls kerfis freista ekki. Reynsl- an frá millistríðsárunum staðfestir það að afskipti af heimsviðskiptum geta sett í gang pólitískt ferli sem leiðir til pólitískrar mistaka og efnahagslegs ófarnaðar. Lausnin á núverandi vandamálum hinna hnattrænu viðskipta felst fyrst og 34 - FREYR 10/2000

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.