Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2000, Blaðsíða 35

Freyr - 01.11.2000, Blaðsíða 35
fremst í því að bæta úr ágöllum hinnar alþjóðlegu markaðsvæðing- ar. Það þarf að verða meira sam- ræmi milli hinna fræðilegu for- sendna um hagkvæmustu niður- stöðu og hinna raunverulegu starf- semi. Af verkefnum þar sem koma þarf á betra skipulagi má nefna að einstök ríki verða að hætta að laða til sín starfsemi með skattahagræð- ingum. Framleiðendur og flutn- ingafyrirtæki verða að greiða fyrir þá skaða á umhverfi og heilsu sem þeir valda sem og þann félagslega kostnað sem þau valda. Uppgangur risafjármálasam- steypna, með því valdi sem þeim fylgja, og með starfsemi úti um allan heim, í rekstrargreinum sem oft hafa leitt til fjármálakreppu, kallar á alþjóðlegt eftirlit til að koma í veg fyrir að spákaup- mennska leiði til nýrrar og enn meiri kreppu. Samþjöppun valds í annarri atvinnustarfsemi kallar einnig á tryggingar gegn því að markaðsstaða sé misnotuð. Þjóðleg eignaraðild að fjölmiðlun er nauðsynleg Káre Willoch ræddi einnig stöðu fjölmiðla og benti á að einkum í litlum löndum væri innlend eign á fjölmiðlum forsenda þess að vemda og varðveita þjóðlegan menningar- arf. Hefðbundin rök gegn ríkis- styrkjum ættu ekki við á svo við- kvæmu sviði. Hann taldi ástæðu til að óttast að alþjóðlegir fjölmiðlarisar, sem yfir- tækju fjölmiðlun eins lands, geti þrengt að pólitískum sjálfsákvörð- unarrétti þjóðarinnar. Erlendir aðil- ar, sem hefðu vald til að ráða í þjón- ustu sína stjómendur fjölmiðla sem hefðu mikil pólitísk áhrif, fengju þar með möguleika til mikilla áhrifa á þjóðfélagsmálefni í því landi þar sem þeir störfuðu. Það er heldur ekki hægt að loka augunum fyrir því að fjölmiðlar, sem reknir em út frá viðskiptasjón- armiðum í alþjóðlegri samkeppni, muni telja sig hafa viðskiptalegan hag af því að ganga einu skerfi lengra en keppinauturinn í því að fjalla um lögbrot, ofbeldi og annað sem miður fer í þjóðfélaginu. Það getur leitt til þróunar í átt til þess að setja ákveðinn „geislabaug“ á hvers konar hrottaskap en það er nokkuð sem hefur ekkert með tjáningar- frelsi að gera. Þjóðfélagsleg sýn Að lokum vitnaði Káre Willoh um þjóðfélagslega sýn sína. Al- þjóðavæðingin er nauðsynleg af- leiðing af markaðsvæðingunni, jafnframt því að vera uppspretta mikilla verðmæta, og þannig besti kostur sem völ er á í stöðu okkar og hann bætti við að ekki mætti stöðva þróunina við núverandi stöðu. Galla og veikleika í kerfinu er unnt að bæta og verður að bæta með þjóðfélagslegum og alþjóðlegum aðgerðum. Skapa verður betri sam- svömn milli fræðilegra forsendna fyrir heilbrigðri samkeppni og hinna daglegu ákvarðana. Við eig- um langa og stranga leið framund- an. Með þeim orðum lauk Káre Willoch máli sínu og hlaut góðar undirtektir áheyrenda. (Þýtt og stytt: ME) ESB opnar fyrir frjálsan innflutning frá fátækustu löndum heims Embættismannaráð ESB hefur samþykkt áætlun um að tryggja 48 fátækustu löndum heims fullan aðgang að mörkuðum landa sam- bandsins án tolla og kvóta. Nú þegar njóta 39 landanna þessara réttinda. Einungis vopn eru und- anþegin þessum reglum. Lönd ESB eru nú þegar mikil- vægasta markaðssvæði þessara landa. (Boiidebladet nr. 45/2000). Sænskum kúm fækkaði um tíu þúsund á einu ári Kúm í Svíþjóð fækkaði um 10.000 á skýrsluárinu 1998/'99 til 1999/'00 og em nú um 370 þús- und. I Svíþjóð em tvö kúakyn al- gengust, SRB, rauðskjöldótt, skylt norska kyninu NRF, og SLB, sænskt láglendiskyn, skylt Holstein kyninu. Samkvæmt skýrsluhaldinu jukust afurðir skýrslufærðra kúa um 265 kg á árinu og eru meðalafurðir SRB-kynsins 8.209 kg á ári en SLB 8.963 kg. Afurðir sænskra kúa eru mis- miklar eftir landshlutum. Mestar em þar í Halland eða 9.135 kg, sem er 800 kg meira en í Norður- Svíþjóð, þar sem þær em minnstar. Það er einkum í Mið- og Norður- Svíþjóð sem mjólkurframleiðslan dregst saman, jafnframt því sem búin em þar minnst eða með innan við 30 kýr að meðaltali. Stærst eru búin á Skáni eða með 48,7 kýr að meðaltali. Kúabú stækkuðu um 1,5 kýr að meðaltali í Svíþjóð á síðasta ári. (Bondebladet n r. 44/2000). Bandaríkin styðja bændur sína Á árabilinu 1990-'97 stóðu opin- berir styrkir til bænda í Bandaríkj- unum nokkum veginn í stað. Frá árinu 1997 til 2000 hafa þeir hins vegar þrefaldast. Á árinu 1995-'97 námu þeir um 740 milljörðum króna en á þessu ári, 2000, eða þeir áætlaðir um 2.220 milljarðar króna. Nú em um 1,9 milljón býli í Bandaríkjunum, þ.e. rekstarein- ingar sem selja búvörur fyrir meira en 92 þúsund krónur. (Bondebladet nr. 41/2000). FREYR 10/2000 - 35

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.