Freyr

Volume

Freyr - 01.11.2000, Page 37

Freyr - 01.11.2000, Page 37
Landgrœðsla bœnda með Landgræðslu ríksins Inngangur Hví eru bændur að græða upp jarðir sínar? Sandurinn getur verið fallegur, en í stormi ógnar hann og leggur í eyði byggðir og bú og það er skráð í sögu íslenskra bænda, sögu okkar allra. Jarðvegur í loft- inu nærir ekki líf, heldur kæfir, ógnar og drepur. Hver hefur ekki séð moldarmökkinn hylja sólu í hvassviðri? Var það ekki skelfing bóndans þegar það gerðist? Atti hann að flýja með bú sitt? Það var ekki lengur byggilegt á jörðinni, sandurinn tók sífellt meira af engj- um og öðru arðbæru landi. Afokið kæfði allan gróður, beitin og engj- amar minnkuðu, horfellir, sultur. Var eitthvað hægt að gera annað en fara? Stoðaði eitthvað að berjast við þessa ógn, sandinn og auðnina, og reyna að veija sitt land. Fram eftir öldum horfðu menn á þetta agndofa og höfðust ekki að og það var hlegið að þeim sem fyrstir hófu að hlaða vamargarða gegn sandin- um með höndunum. Það er þó farið að gleymast hve skelfileg ógn þetta var og hve margar jarðir urðu óbyggilegar vegna sandfoks. Má þar nefna jarðir í Landsveit og á Rangárvöllum, t.d. stóð Gunnars- holt í miðri auðninni árið 1925 og var jörðin talin óbyggileg. Ofan- verð Skeið í Arnessýslu voru að eyðast vegna sandfoks í upphafi 20. aldarinnar, en einmitt þar var fyrsta landgræðslugirðingin sett upp, á Reykjum árin 1907-1908, að til- stuðlan Gunnlaugs Kristmundsson- ar sandgræðslustjóra. Landgræðsla, til hvers? Hinn takmarkandi þáttur við upp- græðslustörf bænda er oft vinnuafl- ið og tíminn. Það vantar fleiri hend- ur á búin til að sinna þessum mikil- vægu málefnum og þau vilja því eftir Sigþrúði Jónsdóttur og Guðríði Baldvins- dóttur, Land- græðslu ríkisins mæta afgangi. Eigi að síður er í öll- um tilvikum verið að búa í haginn fyrir framtíðina og auka gæði jarð- arinnar þegar til lengri tíma er litið. Uppgræðsla heimalanda eru landvinningar bóndans (oft þeir einu mögulegu), eykur arðsemi og svigrúm til góðrar beitarstýringar og annarra athafna. Gróið land er verðmætara en götótt og rofið. A hverju búi fellur til lífrænn úrgangur, s.s. moð, búfjáráburður og heyruddi sem er úrvals efni til uppgræðslu og kemst með því móti aftur inn í hringrás næringarefna. Fjölmargir bændur nýta sér þetta og breyta þannig ógrónu, óarðbæru landi í gróið og gjöfult. Þessi aðferð við uppgræðslu er afar góð en sein- virkari og þyngri en notkun tilbúins áburðar og sáning fræs. Samvinna bænda og Landgræðslu ríkisins Þegar nota á tilbúinn áburð er fjármagn oft takmarkandi þáttur við uppgræðsluna. Samvinnuverkefni Landgræðslunnar og bænda um uppgræðslu heimalanda, hefur bætt þar verulega úr. Tilgangurinn með því var og er að virkja og styrkja bændur til landgræðslu á jörðum sínum, stöðva rof, þekja land gróðri og auka möguleika á sjálfbærri landnýtingu í framtíðinni. Hver sá sem ferðast um og er læs á landið ætti að sjá árangur þessa mikla starfs. Þúsundir hektara lands hafa gróið upp, rofabörð lokast og í kjöl- farið hefur beitarþol jarða aukist. Ekki er krafist friðunar á upp- græðslusvæðunum en nauðsynlegt Landgrœðslufélag Biskupstungna reyndi nýja tœkni við uppgrœðslu rofabarða vorið 2000 og notaði við það nýtt tœki (afrúllara) sem Vélaver hf. lánaði sérstaklega til verksins. Arangurinn lofar góðu. (Ljósm. S.J.). FREYR 10/2000 - 37

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.