Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2001, Blaðsíða 2

Freyr - 01.06.2001, Blaðsíða 2
Handbók bænda 2001 Út er komin handbók bænda fyrir árið 2001 sem er 51. árgangur ritsins. Handbók bænda er að þessu sinni í helmingi stærri broti en áður en tilgangurinn með þeirri breytingu er / °k einkum sá að auðvelda birtingu á skýringarmyndum / ð hvers konar og töflum. Efni ritsins er að mestu leyti nýtt eða uppfært með nýjum upplýsingum sem varða alla helstu þætti íslensks landbúnaðar, svo sem jarðrækt, byggingar, búfjárrækt, fóður og fóðrun og hagfræði. Þá eru sem fyrr í ritinu upplýsingar um félagskerfi landbúnaðarins. Sl . / Handbók bænda er alls 304 bls. að stærð og / verð hennar er óbreytt frá sl. ári, kl. 2.600, en kr. 2.800 með sendingarkostnaði. Verð til áskrifenda er kr. 2.600 með sendingarkostnaði. Bókin fæst hjá Bændasamtökum Islands, sími 563 0300 - bréfsími 562 3058 - netfang sth@bondi.is Moh fnahags- og framfara- stofnun Evrópu, OECD, reiknar á hverju ári út svokallað PSE-hlutfall (Producer Support Estimate), í að- ildarlöndum sínum. PSE metur stuðning við landbúnað í þessum löndum, sem hundraðshluta af framleiðendaverði hvers lands. Stuðningurinn samanstendur af markaðsstuðningi, annars vegar, og beinum stuðningi, hins vegar. Markaðsstuðningurinn er skil- greindur sem mismunurinn á inn- anlandsverði og heimsmarkaðs- verði. Til að reikna út heildar- PSE er reiknað vegið meðaltal allra framleiðslugreina að við- Um PSE bættum hvers konar beinum stuðningi við landbúnaðinn af fjárlögum viðkomandi landa. Eitt vandamál við þessa útreikn- inga er að ekki eru til nothæfar upplýsingar um heimsmarkaðs- verð margra búvara. Alþjóðleg verðlagning er til um vörur eins og korn, sykur, ýmsar tegundir jurta- olíu o.fl. Viðskipi með aðrar vörur fara aftur fram með vöruskiptum þar sem opinber verðskráning á sér ekki stað. Mikill hluti af markaðsstuðningi í ESB varðar mjólk. Þar hefur sem heimsmarkaðsverð verið notað framleiðendaverð á nýmjólk í Nýja-Sjálandi að viðbættum flutn- ingskostnaði. Þar sem ógerlegt er að flytja nýmjólk frá Nýja-Sjá- landi til Evrópu í stórum stíl er notaður flutningskostnaður á ost- um og smjöri. Af því leiðir hins vegar að þennan útreikning skortir stoð í raunveruleikanum. Útreikningar OECD á markaðs- stuðningi byggist á afar einföldu líkani af verðmyndun búvara. Þar sem verðmyndunin er í raun veru- lega flóknari gefa þessir útreikn- ingar að hluta til ranga mynd, sem hefur þau áhrif að stuðningshlut- fallið er ofmetið. (Intemationella Perspektiv nr. 17/2001). 2 - f R€YR 8/2001

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.