Freyr - 01.06.2001, Blaðsíða 11
Molar
Niðurstöður tilraunarinnar bentu til þess að frekast bæri að velja svalan og
skjólgóðan stað til geymslu á rúlluböggum.
sögu, t.d. vindálag. Þannig hagaði
til að sennilega var vindálag öllu
meira á þá bagga sem í forsælu
voru en hina sem hvfldu sólarmeg-
in. ítrekað skal að geymslustaða-
munur reyndist ekki vera mark-
tækur. í könnun hjá bændum fann
Guðmundur Hrafn Jóhannesson
(1995) að meira bar á myglu í
rúlluböggum yst úr stæðum (og
botni) en innan úr þeim. Iramir
Forristal o.fl. (1999) töldu 6-faldan
hjúp lágmarkskröfu, ætti að geyma
sterkt og verðmætt hey áfallalaust
frá hásumri fram á næsta vor.
Helstu ályktanir
* Sexfaldur plasthjúpur virðist
vera lágmarkskrafa eigi að
geyma sterkt og verðmætt rúllu-
hey áfallalaust frá hásumri fram
á næsta vor.
* Rétt virðist að velja svalan og
skjólgóðan stað til geymslu
rúllubagganna - án þess þó að
gleyma áhrifum fannar og snjóa-
laga á vetrarflutningana.
Tilvísanir
Forristal, P.D., P. O'Kiely og J.J.
Lenehan 1999. The influence of the
number of layers of film cover and film
colour on silage preservation, gas com-
position and mould growth on big bal-
es. The Xllth Int. Silage Conf, Upp-
sala, bls. 305-306.
Guðmundur Hrafn Jóhannesson
1995. Afföll við geymslu rúllubagga.
BS-ritgerð við Búvísindadeild, 24
bls.+ viðaukar.
Randby, Á.T. 1996. Moulding and
aerobic stability of round-bale grass
silage treated with formic or propionic
acid. Proc. of Xlth Int. Silage Confer-
ence. Aberystwyth, 8th-llth September
1996., bls. 108-109.
Þóroddur Sveinsson og Bjami E.
Guðleifsson 1999. Niðurbrot kolvetna
og gerjun í rúlluheyi. Ráðunautafundur
1999, bls. 151-163.
Kjötneysla
í Svíþjóð
Svíar neyttu kjöts á sl. ári,
2000, fyrir að andvirði 330 mill-
jarða kr. Sú upphæð er þó 100
milljörðum kr. minni en varið
var til kaupa á áfengi og tóbaki
þar í landi, að sögn sænska
blaðsins Land, sem á sér þá ósk
að hið gagnstæða væri raunin.
Kjötneyslan samanstóð af 39,9
kg af svínakjöti á mann, 21,6 kg
af nautgripakjöti og 11,2 kg af
fulgakjöti. Neyslu kindakjöts er
ekki getið í þessu sambandi, en
hún hefur venjulega verið minni á
mann en af munn- og neftóbaki.
(Bondevennen nr. 18/2001).
Lausaganga kúa
Önnur hver dönsk kýr er nú í
lausgöngufjósi. Þetta eru næst-
um tvöfalt fleiri kýr en fyrir fjór-
um árum. Flest lausgöngufjós
eru með legubása (77%) en aðrar
kýr liggja á hálmi. Meira en 80%
danskra kúa ganga á beit á sumr-
in, bæði kýr sem bundnar eru á
bás og í lausgöngu.
Þrennar mjaltir
á dagjuku
mjólkurmagnið
í danskri tilraun kom í ljós að
kýr, sem voru mjólkaðar þrisvar á
dag fyrstu átta vikumar eftir burð,
mjólkuðu 8% eða 3,1 kg af mjólk
meira en kýr sem voru mjólkaðar
tvisvar á dag. Þær átu hins vegar
ekki að sama skapi meira eða
aðeins 5% meira þurrefni en
hinar eða 0,75 fóðureiningar.
Kýmar, sem mjólkaðar vom
þrisvar á dag, léttust um 8 kg
meira en hinar á þessu tímabili.
Nyt þeirra jafnaðist svo við nyt
hinna þegar skipt var yfir í
tvennar mjaltir á dag.
(Landsbladet/Bondevennen
nr. 19/2001).
Altalað á kaffistofunni
Viska barna
Alexander, 4ra ára, er á ferð úti í sveit með föður sínum þegar þeir aka
fram hjá túni þar sem hvítar heyrúllur em á víð og dreif.
Alexander: Ég veit hvað þetta er.
Pabbi: Er það, hvað er þetta?
Alexander: Þetta em egg, og það koma út úr þeim bændur.
(Land lantbruk, Svíþjóð).
pREYR 8/2001 - 11