Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2001, Blaðsíða 14

Freyr - 01.06.2001, Blaðsíða 14
RÁÐUNAUTAFUNDUR 2001 Ræktun fóðurs í framtíðinni Inngangur Islensk nautgriparækt hefur lítið þurft að glíma við erlenda sam- keppni til þessa. Hætt er við að það breytist áður en langt um líður. Taka verður tillit til þess og gæta að því hvort ekki er hægt að gera kúa- búskapinn hagkvæmari en nú er. Sú leið, sem við bendum á, er að bæta heimaaflað fóður. Við höfum kann- að ástand ræktunarlands eins og það er núna og hvernig mætti lag- færa það. Niðurstaðan varð sú að þar er mikill akur óplægður. Við munum leggja fram tillögur að ræktunarskipulagi og reyna að gera okkur grein fyrir áhrifum þess. Við höfum leitað eftir reynslu bænda, bæði meðal þess sem birst hefur á prenti (Olafur Eggertsson 1987, Pétur Diðriksson 1998, Gunnar Sigurðsson 2000) og eins í samtölum. Að mestum hluta byggj- um við þó á jarðræktartilraunum þeim sem gerðar hafa verið á veg- um Rannsóknastofnunar landbún- aðarins síðastliðin 20 ár (Jarðrækt- artilraunir/Jarðræktarrannsóknir Rala 1978-1999). Við munum hvetja bændur til þess að leggja meira kapp á endur- vinnslu túna og sáðskipti en áður hefur verið tíðkað. Undanfarin ár hefur safnast saman mikil þekking á viðfangsefninu og nú síðustu árin hafa komið fram nýjungar sem gera sáðskipti fýsilegri kost en áður. Nú er til fljótþroska bygg og margt hafa menn lært um ræktun þess (Jónatan Hermannsson 1999). Fram hefur komið vetrarþolið rý- gresi sem getur gefið mikla og góða uppskeru í skamman tíma (Hólmgeir Björnsson 2000). Fáan- leg eru vetrarþolin yrki rauðsmára. Ræktun þeirra í blöndu með grasi geta sparað nituráburð og bætt gæði heyfengs (Áslaug Helgadóttir og Þórdís A. Kristjánsdóttir 1998). Gamli tíminn Fóður búfjár hérlendis er að mestu heimafengið á hverjum bæ. Aðkeypt fóður er fyrst og fremst kjarnfóður, en heykaup heyra til undantekninga. Kjamfóðumotkun í landbúnaði er samkvæmt bestu heimildum (Lilja Grétarsdóttir 2001) um 60 þúsund tonn á ári, bæði innflutt korn og innlent fiski- mjöl. Grasbítar munu nýta 27 þús- und tonn þar af, eða um 27 milljón fóðureiningar, annað fer í svín og hænsn. Eftir stærð ræktunarlands og nytjagróðri þar höfum við áætl- að að fóðuröflun af ræktuðu landi sé nú rúmlega 420 milljón fóður- einingar á ári (sbr. 7. töflu). Heild- arfóðumotkun grasbíta er því um 450 milljón fóðureiningar og skipt- ist í aðkeypt fóður og heimaaflað í hlutföllunum 6 á móti 94.1 1. töflu er gerð grein fyrir því hvemig heimaaflað fóður er fengið. Nú er því þannig farið að ekki þurfa allar skepnur á sams konar fóðri að halda. Hross og sauðfé nýta með ágætum miðlungs hey- fóður og jafnvel fóður sem er lak- ara en það. Að einhverju leyti er hægt að nýta miðlungsfóður fyrir geldneyti, en í stómm dráttum er hagur að því að gefa öllum naut- gripum gott fóður. Ekki liggur fyrir hvernig heyfóður skiptist á bú- greinar, en áætlun okkar sést í 2. töflu. Með nokkrum rétti er heyfeng landsins þannig skipt í fjóra jafna hluta og þar með ræktunarlandi. Ekki þarf að gera ráð fyrir að þetta hlutfall breytist í náinni framtíð. Sauðfé og hross geta nýtt hey af gömlum túnum og því þykir okkur ekki ástæða til þess að skipta okkur af þeirri heyöflun. Annað á við um nautgripi eins og áður segir. Við munum því hér eftir fjalla eingöngu um þann helming ræktunarlandsins sem skilar nautgripafóðri. Ræktun- arland notað til fóðuröflunar er samkvæmt 1. töflu 130 þúsund hektarar alls. Til að afla fóðurs fyrir nautgripi verða þá notaðir 65 þús- und hektarar. Til hagræðis teljum við allt grænfóður og kom þar með og einnig tún 5 ára og yngri og álít- um að það valdi ekki mikilli skekkju. Ástand ræktunarmála fyrir nautpening er sýnt í 3. töflu. Úr túnaskoðun Guðna Þorvalds- sonar (1994) höfum við ömggar heimildir um gróðurfar í íslenskum túnum. Vallarfox-gras er ríkjandi í túni á fyrsta ári, en minnkar ört. Tormeltar og óæskilegar grasteg- undir, svo sem snarrótarpuntur, túnvingull og língresi, auka hlut sinn að sama skapi (4. tafla). Auk þessa minnkar uppskera með aldri túns. Á fjórða ári er hún einungis 77% af því sem hún var á fyrsta ári samkvæmt niðurstöðum úr 8 til- raunum á Korpu (Jónatan Her- mannsson 1998). Af 3. og 4. töflu er augljóst að Áslaug Helgadóttir og Jónatan Hermannsson, Rannsókna- stofnun land- búnaðarins 14- FR€VR 8/2001

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.