Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2001, Blaðsíða 23

Freyr - 01.06.2001, Blaðsíða 23
Menning, saga og atvinnulíf jóðtrúin segir okkur að þar sem fé og fjársjóðir séu faldir í jörðu sjáist bláleitur logi upp af landinu. Ara- grúi slíkra sagna af fjölmörgum slíkum stöðum um allt land er varð- veittur í íslenskum þjóðsagnasöfn- um. I sumum sögunum segir að menn hafi ekki þorað að grafa í hólinn eða þúfuna til að ná í ger- semarnar vegna þjóðtrúar sem tengist staðnum, en í fleiri sögum reyna ungir oflátungar og ofurhug- ar að nálgast fjársjóðinn en mis- tekst. Þeim sýnast hús og kirkjur standa í björtu báli, fæturnir festast við jörðina eða þá að ýmsar ofsjón- ir gera verkið ómögulegt. Það er helst að kunnáttumenn um galdra og ýmsa fomeskju séu færir um að nálgast slíka fjársjóði. Menningarsagan í íslensku landslagi Það er eins með fólgið fé í jörðu og menningarsöguna, sem í lands- laginu býr, að það er ýmsum vand- kvæðum bundið að nýta þessa auð- lind. Oft hefur verið haft á orði að sögustaðir séu á hverju strái eða við hvert fótmál um land allt, að menn- ingarsöguna sé hægt að lesa úr landslaginu á hverri jörð. Þessir frasar eru vissulega bæði sannir og réttir. Hitt er svo allt annað mál og oft öllu erfíðara fyrir íbúa dreifbýlisins að breyta þessum gersemum sem sögustaðir, menningarleg sérstaða og menningararfurinn em, í krónur og aura. Slík uppbygging er undir kraftmiklum einstaklingum komin og ef verkefnin eru viðamikil þarf einfaldlega fleiri einstaklinga sem leggjast á eitt. Um leið útheimtir uppbygging á sviði menningartúr- isma samvinnu heimamanna og kunnáttumanna og til að hún geti Jón Jónsson, þjóðfræðingur, Kirkjubóli, Strandasýslu orðið þarf vakningu. Það verður að draga möguleikana, tækifærin og leiðimar fram í dagsljósið og ræða þær vandalega og síðan þarf ennþá meiri samvinnu - innan afmarkaðra svæða - milli ráðgjafa, ferðaþjón- ustuaðila, menningarstofnana, sveitarstjórna og íbúa. Segjum sem svo að einhver ætli að nýta sér að sögustaður eða nátt- úruperla sé á landareign hans. Markaðssetning á staðnum eða vamingi og þjónustu sem tengist honum er ófullkomin nema fræði- leg heimildavinna og fagleg kynn- ing á staðnum og þjónustunni komi til. Sala og ágóði er afleiðing af þeirri vinnu og árangurinn helst í hendur við fagmennsku við undir- búninginn. Það er af nægum efniviði að taka í sögu hvers héraðs, fólk hefur búið hér á landi í meira en 1100 ár og við þekkjum tiltölulega vel lífs- hætti og sögu forfeðra okkar og til eru ótal ritaðar heimildir. Auk þess eru í landslaginu allt í kringum okkur minjar um liðna tíð og fram- kvæmdir genginna kynslóða - rúst- ir, tóftabrot, gömul naust, túngarð- ar, áveitur, skurðir og túnsléttur, hálfhrundir stekkir, vörður og grón- ar götur. Hér gildir fyrst og fremst að hafa góða yfirsýn og gnótt af hugmyndaflugi, en vissulega hættir mönnum til að verða einhvern veg- inn svo samgrónir umhverfi sínu að þeir hætta að veita þessum menn- ingarminjum og verðmætum eftir- tekt. En það er ekki aðeins sú menn- ingarsaga sem lesa má úr landslag- inu sem er þess virði að miðla og hagnýta. Samtímamenningin, at- vinnu- og búskaparhættir, mannlíf og sérkenni hvers svæðis eru svo sannarlega þess virði að íbúar þess geri sér mat úr þeim. Og það er Greinarhöfundur að segja galdrasögu á Galdrasýningu á Ströndum sem opnuð var í Hólmavík sumarið 2000. (Myndir úr myndasafni Sögusmiðjunnar). FR€YR 8/2001 - 23

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.