Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.2001, Síða 4

Freyr - 01.06.2001, Síða 4
Gunnar Arnason s fyrrum skrifstofustjóri BI tíræður egar rituð verður saga bún- aðarframfara á íslandi er víst að minnst verður tím- anna frá því um 1920 og fram yfir miðja öldina síðustu sem mikilvægasta skeiðs í þeirri miklu framfarasögu. Engum, sem þekkir til, getur blandast hugur um mjög ríkan þátt ráðunauta og fræðara í þessari framfarasókn. Framan af þessu skeiði voru þessir faglegu þjónar bændanna ekki margir, eða aðeins einn til tveir tugir ef allt var talið, ráðunautar og starfsmenn Búnaðarfélags íslands, skólastjórar og kennarar bændaskólanna, nokkrir tilraunastjórar og héraðs- ráðunautar, sem þá voru örfáir. Þeim tók fyrst að fjölga rétt fyrir miðja öldina. Á fjórða og fimmta áratugnum bættust svo við nokkrir sérfræðingar er stunduðu rannsókn- ir við Búnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans. Allir voru þessir liðsmenn land- búnaðarins þekktir meðal bænda og sumir, einkum ráðunautarnir, mjög vel og áttu tiltrú flestra bænda. Á sama hátt þekktu starfsmennirnir vel til bænda um allt land - og vitað er að ýmsir þeirra þekktu nánast alla bændur landsins. Nú eru þessir starfsmenn bændanna frá fyrrihluta síðustu.aldar flestir frá okkur famir, sem vænta má. En það er tilefni þessara hugleið- inga að nú hinn 15. júní fyllir nestor þessa hóps, Gunnar Ámason, öld- ina. Fast á hæla Gunnari í þessum hópi kemur Guðmundur Jónsson frá Torfalæk, sem lengi var skóla- stjóri á Hvanneyri, nýlega orðinn 99 ára fæddur 2. mars 1902. Gunnar Árnason er fæddur á Gunnarsstöðum í Þistilfirði 15. júní 1901. Foreldrar hans voru hjónin Ambjörg Jóhannesdóttir bónda á Ytra-Álandi í Þistilfirði Árnasonar og Árni Davíðsson bónda Jónsson- ar á Heiði á Langanesi, sem lengi bjuggu á Gunnarsstöðum, en þar búa ættmenn Gunnars en í rausnar- garði. Gunnar var sjöundi í röð átta systkina, sem upp kornust. Gunnar gekk í Hólaskóla og lauk þaðan búfræðiprófi árið 1921. Þrátt fyrir lítinn farareyri hélt hann til Danmerkur til náms í Búnaðarhá- skólanum í Kaupmannahöfn og brautskráðist hann þaðan búfræði- kandídat árið 1925. Eftir það fór hann til Noregs og var þar við fram- haldsnám í mjólkurfræðum og nautgriparækt til ársins 1926 að hann kemur heim og gerist starfs- maður Búnaðarfélags íslands. Þar átti hann eftir að þjóna allt til starfs- loka, 1971, í hart nær 45 ár og leng- ur en nokkur annar. Gunnar réðst sem aðstoðarráðu- nautur til Búnaðarfélagsins og sinnti þar margháttuðum störfum næstu árin. Fyrst annaðist hann leiðbeiningar í nautgriparækt og hafði eftirlit með rjómabúunum. Eftir að Páll Zóphóníasson tók við nautgriparæktinni vann Gunnar við fjölþætt störf hvar sem þurfti liðs við. Hann kenndi m.a. á námskeið- um fyrir eftirlitsmenn nautgripa- ræktarfélaga, vann við mælingar og kortagerð og ýmsa skýrslugerð fyr- ir félagið. í ársbyrjun 1940 tók hann við starfi gjaldkera félagsins, varð síðan aðalskrifari þess og síðar skrifstofustjóri allt til 1971 er aldur leyfði ekki lengur föst störf. Gjaldkera- og bókhaldsstörfin voru bæði fjölþætt og umfangsmik- il því að félagið sá um allar greiðsl- ur ríkisframlaga til jarðræktar og búfjárræktar og lengi framan af einnig til tilraunastöðva og búfjár- ræktartilrauna, auk þess sem það hafði með höndum vörslu ýmissa sjóða. Þannig sá Gunnar um greiðslur til allra búnaðarfélaga, þar sem menn stóðu í jarðræktarfram- kvæmdum, greiðslur til búfjárrækt- arfélaga og til allra búnaðarsam- banda og ræktunarsambanda eftir að þau komu til. Af þessu leiddi mikil samskipti Gunnars við fjöl- marga bændur um allt land og ráðu- nauta þeirra og var hann að þessu leyti annað andlit Búnaðarfélags ís- lands. Öll þessi ár fylgdu starfi skrif- stofustjóra allt það sem að skrif- stofunni laut, annað en vélritunin, störf sem nú þykir ekki annað hlýða en að fela fleiri starfsmönnum. Gunnar var allt í senn gjaldkeri, bókari og sá um uppgjör og frágang allra reikninga, sem voru margþætt- ir. Allt stóð sem stafur á bók sem Gunnar vélaði um og allir treystu því, slík var samviskusemi hans og nákvæmni. Gunnar var ætíð glaðbeittur og gott var til hans að leita með alla hluti, fyndist honum erindi manna eðlileg og réttmæt, en væri svo ekki var hann snöggur upp á lagið og sagði skýrt nei. Gamansemi Gunn- Frh. á bls. 22. 4 - FR6VR 1/2001

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.