Barnablaðið - 01.02.1987, Page 6
6
BWn'a
SvjaV'
Brynja er ellefu ára oy hefur
búið í Topeka, höfuðborg
Kansas i Bandaríkjunum i sjö
ár. Hún fhittist til íslands fyrir
þremur árutn.
BA: Hver eru helstu áhuga-
mál þín?
Brynja: Sund og ballett. Ég
ætla að reyna að komast í ballett
bráðum, en sund æfi ég hjá Ægi,
tvisvar í viku. Ég er komin í
besta hópinn í okkar fiokki.
BA: Hvernig var skólinn í
Kansas?
Brynja: Ég byrjaði sex ára að
ganga í skóla. Hann var mjög
skemmtilegur, nema hvað skóla-
dagurinn var dálítið langur. í
eldri deildunum var skólatíminn
frá kl. níu til fjögur. Mér fannst
frímínúturnar skemmtilegastar.
þegar við vorum að leika okkur
úti. Það var líka gaman í reikn-
ingi.
BA: Hvað gerðir þú og vinir
þínir í Kansas þegar þið áttuð
frí?
Brynja: Við lékum okkur úti í
ýmsum leikjum, og vorum oft á
hjólaskautum. Ég fór oft í
Disneyworld. þar eru mörg mjög
skemmtileg leiktæki. Það var
mest gaman að fara í víkingabát-
ana, þeir rugguðu til og frá og
vatn skvettist allt í kring.
BA: Fórstu oft í kirkju í
Kansas?
Brynja: Já, við fórum alltaf í
barnamessu á sunnudögum. Við
fengum að gera margt æðislega
skemmtilegt þar.
Einu sinni var ég í viku á
biblíunámskeiði. Þá skrifuðum
við nöfnin okkar og heimilisföng
Brynja sleikir sólskinið í Kansas.
Brynja Swan.
á blöð, sem við létum inn í
blöðrur. Síðan létum við blöðr-
urnar Ijúka út í loftið, í þeirri
von að einhver, sem fyndi blöðr-
urnar myndi skrifa okkur. Ein
vinkona mín fékk bréf skömmu
síðar.
Öðru sinni útbjuggum við litla
pakka með mat og sendum í
pósti til fólks í löndum þar sem
var hungursneyð.
BA: Ertu í kristilegu starfi
hér?
Brynja: Já, ég fer annan hvern
sunnudag í Grensáskirkju. og oft
í Seljasókn. Það er hvort tveggja
mjög gaman. í Grensáskirkju
syngjum við og biðjum og stund-
um er skipt í aldurshópa og farið
í leiki og föndrað.
Jesús hefur gert margt fyrir
mig. í sumar fór ég í sumarbúðir.
og fyrst leiddist mér ógurlega
mikið. En svo bað ég Jesú að
hjálpa mér, og þá hætti mér að
leiðast.
BA: Hver er uppáhaldssöngv-
arinn þinn?
Brynja: Þorvaldur Halldórs-
son.