Barnablaðið - 01.02.1987, Blaðsíða 8

Barnablaðið - 01.02.1987, Blaðsíða 8
8 Sigurður Heiðar og Elva Wiium. Kvinesdal. Þar voru u.þ.b. fimm þúsund íbúar. BA: Eru krakkar í Noregi líkir íslenskum krökkum? Elva: Já, nema þau tala ekki alveg eins! Það er auðveldara að eignast kristna vini í Noregi. Norskir krakkar bölva ekki eins mikið og íslendingar. BA: Hefur þú tekið á móti Jesú? Elva: Já, og ég tók skírn í Noregi þegar ég var ellefu ára. BA: Getur þú sagt mér frá einhverju sem Jesús hefur gert fyrir þig? Elva: Já, þannig var að vin- kona mín átti hund. Ég hélt að ég þekkti hann, en einu sinni réðst hann á mig. Hann stökk á mig og felldi mig, en þá var eins og einhver sneri mér, svo hund- urinn náði ekki að bíta mig í andlitið. Hann glefsaði í hnakk- ann á mér í staðinn. Mamma og pabbi voru ekki heima þegar þetta gerðist, en svo komu þau allt í einu eins og kölluð, svo þau gátu farið með mig til læknis strax. BA: Hvernig gekk þér að kynnast íslensku krökkunum þegar þú komst heim? Elva: Fyrst var það erfitt, en svo gekk það betur þegar ég byrj- aði í skólanum. BA: Ertu ekki í unglingafélag- inu Skrefinu? Elva: Nei, Siggi bróðir minn bannarmér það! BA: Ha?! Elva: Hann er alltaf að stríða mér! BA: Jæja, saknarðu Noregs? Elva: Já, ég hlakkaði mikið til að koma heim, en ég sakna Nor- egs núna. BA: Var betri matur í Noregi en á íslandi? Elva: Nei, þar var aldrei cheerios bara komflakes! Nammið er líka betra á íslandi, ég borða samt ekki mjög mikið af því. BA: Hvernig finnst þér Barna- blaðið? Elva: Það erágætt. BA: Hvaða efni viltu helst hafa í blaðinu? Elva: Mér finnst skemmtileg- ast að hafa viðtöl, þrautir, leiki og föndur. Nú kemur Sigurður, bróðir Elvu heim úr skólanum og við tökum hann samstundis til yfir- heyrslu. BA: Hvernig fannst þér að búa í Noregi? Sigurður: Allt öðruvísi en á ís- landi. Fólkið var öðruvísi. ís- lendingum, sem koma til Noregs finnast Norðmenn rosalega sveitalegir. BA: Jæja!? Sigurður: Það er alveg satt! Þeir eru dálítið lubbalegir til fara, en svipaðir á annan hátt. Norsk náttúra er öðruvísi, mikið er af trjám. íslendingar verða oft leiðir á því að geta ekki séð neitt í kringum sig, en mér fannst fallegra úti. Ég varð fyrir sjokki þegarég kom heim! BA: Var erfitt að flytjast út? Sigurður: Þegarvið komum út skildi ég ekki málið. Ég hafði lært dálitla dönsku, og skildi nokkrar sagnir, en annars skildi ég ekkert. Ég og eldri systir mín fengurn því aukakennslu fyrsta árið. Það hjálpaði mikið. Það er dálítið erfitt að vera út- lendingur í Noregi. Af því að ég var íslendingur komu spurning- ar eins og: „Búið þið í snjóhús- um?“ Þeir sem ég kynntist vissu lítið um ísland og héldu að hér væru engin hús, bara snjóhús og sleðar. En svo vöndust þeir okk- ur og fóru að líta á okkur sem jafningja. BA: Tókstu þátt í einhverju kristilegu starfi í Noregi? Sigurður: Já. í bænum þar sem við bjuggum var mjög öflugt kristilegt starf. Þar var biblíu- skóli, risastór tónleikahöll og mjög mikið fjölmiðlastarf. A Sigurður H. Wiium.

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.