Barnablaðið - 01.02.1987, Qupperneq 9

Barnablaðið - 01.02.1987, Qupperneq 9
Barnabla&ið Vinsælt skíðasvæöi í grennd við Kvinesdal. sumrin voru ijölmenn mót og þá frelsuðust margir og læknuðust. Ég var í unglingakór og við ferðuðumst oft til annarra bæja og sungum og vitnuðum á sam- komum. BA: Manstu eftir einhverju sérstöku bænasvari sem þú varðst vitni að og vilt segja frá? Sigurður: Já, það var maður sem gekk nrjög haltur, og þurfti að vera í gifsi. Þegar beðið hafði verið fyrir honum læknaðist hann og gekk alveg eins og heil- brigður nraður á eftir. BA: Er mikill munur á kristi- lega starfinu, sem þú tekur þátt í hér og því, sem þú kynntist í Noregi? Sigurður: Ég er í Skrefinu, en í því eru yngri krakkar en þeir, sem ég umgekkst í Noregi. Mér fannst samfélagið úti betra. Hér virðast krakkarnir vera að sækj- ast meira eftir félagsskap. Það er mjög gott að eiga kristna félaga, en úti var lögð meiri áhersla á trúboð. Þar var auðveldara að blanda geði við eldra fólkið. Þarna var starf fyrir alla aldurs- hópa og mikið um að vera. Unglingarnir stjórnuðu alltaf samkomu á hverjum föstudegi, líkt og er hérna. BA: Átt þú ekki einhver góð ráð handa okkur til að bæta samfélagið hér? Sigurður: Jú, við eigum að gefa Guði meiri tíma. BA: Getur þú sagt frá ein- hverjum ferðalögum eða ævin- týrum sem þú lentir í? Sigurður: í skólanum sem ég var í voru ýmis valfög og það sem ég valdi hét útilíf. Við fór- um í þrjár útilegur. Sú fyrsta var gönguferð. Næst fórum við á skíði og þá lentum við eitt kvöldið í svo slæmu veðri að við villtumst næstum því. Síðasta útilegan var skemmtilegust. Þá fórum við á einæringum niður á, og það var mjög erfitt. Ég og félagi minn vorum aðeins á und- an hinunr yfir flúðir á einum stað og gátum við með naurn- indunr róið þar yfir. Kennarinn og nokkrir fleiri komu næstir og vildi ekki betur til en svo að þeir duttu allir í ána. Það fannst mér nokkuð sniðugt. Flestir gripu til þess ráðs að bera báta sína framhjá þessum stað, svo við vorum þeir einu sem komust yfir. í Noregi eru hvers kyns úti- íþróttir vinsælli en hér. Vetrar- íþróttir eru mjög vinsælar. Þar sem við bjuggum var mjög stutt að fara á skíði, en á sumrin lék- um við tennis. Miðað við hvað bærinn var lítill, var margt um að velja. Hér er fótbolti, körfu- bolti og handbolti vinsælli, og minni áhugi á öðrum íþróttum. BA: Hver eru helstu áhuga- mál þín? Sigurður: í fyrsta lagi Guð. I öðru lagi íþróttir. Á vetuma skíði, bæði svig- og gönguskíði, en á sumrin, þegar ég var úti, æfði ég tennis reglulega. Blak finnst mér líka skenrmtilegt, samt æfi ég það ekki eins mikið. Ég hef verið í tveimur lúðra- sveitum og spila á trompet. BA: Var erfitt að flytjast heim til íslands aftur? Sigurður: Flutningurinn sjálf- ur var erfiður, því þá var ég orð- inn svo stór að ég þurfti að hjálpa mikið til! Við töluðunr íslenskuna vit- laust og fólk var alltaf að leið- rétta okkur. Það var mjög Ieiðin- legt. Allt hérna er miklu stærra og ég er óvanur svona stórri borg. BA: I hvaða skóla ertu núna? Sigurður: Ég er í Öldusels- skóla. Hann er nrjög góður og ekki nrjög stór. Ég fór úr góðum skóla í góðan skóla. BA: Hvað finnst þér það besta við að vera kominn heim? Sigurður: Að kynnast nýju fólki, og kynnast ættingjunr sínum. BA: Lestu Barnablaðið? Sigurður: Já, þegar ég fæ það. BA: Hvaða efni finnst þér að ætti helst að vera í blaðinu? Sigurður: Skemmtilegar sög- ur, en ekki margar framhalds- sögur. Þrautir, skemmtileg við- töl, efni sem krakkar hafa sjálfir samið, og fleira. Gott væri einnig að hafa fastan þátt með biblíu- kennslu.

x

Barnablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.