Barnablaðið - 01.02.1987, Síða 18

Barnablaðið - 01.02.1987, Síða 18
18 Stúlkan á rauða kjólnum I síðasta blaði sagði ég ykkur frá Daníel, þar áður fylgdumst við með Jósef. Nú er kominn tími til að ég segi ykkur frá stelpu. í Biblíunni eru ekki ein- göngu sögur af strákum, þar eru líka sögur af stelpum. Biblían segir okkur ekki frá því hvað þessi stelpa heitir, svo við þurfum að búa til nafn á hana. Hún átti heima í ísrael, og við skulum kalla hana Tirzu. Tirza var afskaplega góð stúlka, hjálpaði mömmu sinni og gerði allt sem hún bað hana um að gera. Henni fannst mjög gaman að lesa sögur og hún hafði lesið um Jósef og hvernig hann fór til Egyptalands. Jósef elskaði Guð og gleymdi honum aldrei. Tirza hugsaði: „Þannig vil ég vera, ég ætla alltaf að muna eftir Guði og biðja til hans." Hún var mjög dugleg að fara með bænirnar sínar á kvöld- in og hún bað Iíka á morgnana. Þegar Tirza átti afmæii og varð 13 ára, bauð hún vinkon- um sínurn heim og þær skemmtu sér mjög vel. Skömmu áður hafði mamma Tirzu spurt hvað hana langaði í, og Tirza hafði óskað eftirað eignast nýjan kjól. Foreldrar hennar voru frek- ar fátæk, svo Tirza átti ekki mikið af fötum. Hún átti bara tvo kjóla. Nú hafði mamma Tirzu saumað mjög fallegan, rauðan kjól. Tirzu fannst hann einstaklega fallegur og hún vildi alltaf vera í honum. Nokkrunr dögum seinna, er Tirza var nýbúin að klæða sig í rauða fallega kjólinn, búin að fara með bænirnar sínar og biðja Guð að blessa sig og hjálpa í dag, þá gerðist óvæntur atburður. Þegar hún var að ljúka við nrorg- unmatinn heyrðust allt í einu mikil óp í mönnum fyrir utan. Þeir æptu: „Sýrlendingar eru að ráðast á okkur!" Tirza varð nrjög hrædd. Pabbi hennar var farinn í vinnu og hún var ein hjá inömmu sinni og sagði við hana með tárin í augunum: „Hvað eigum við að gera mamma?“ „Gráttu ekki, við skulum krjúpa hér við borðið og biðja til Guðs,“ sagði mamma. Það gerðu þær. Þær voru rétt staðnar upp frá bæninni, er þær heyrðu nrikil Iæti fyrir utan hús- ið og allt í einu var hurðinni hrundið upp og ijórir hermenn komu inn. Þeir tóku Tirzu og fóru með hana með sér. Mamma hennar hrópaði á eftir henni: „Gleymdu ekki Guði þínum!“ Svo var farið með Tirzu í ókunnugt land, ásamt mörgum öðrum úr hennar þorpi. Tirza þurfti að ganga lengi, lengi og fallegi, rauði kjóllinn hennar varð óhreinn á leiðinni. Hún var flutt í hús, þar sem sagt var við hana að hér ætti hún að verða þjónustustúlka. Þetta var hús sjálfs hershöfðingjans. Hann hét Naaman. Hann var mikill og voldugur hershöfðingi. Nú hugsaði Tirza til Jósefs; hann hafði verið í ókunnu landi. Hún bað til Guðs og bað hann um hjálp. Hún bað til hans á hverjum degi og vann svo öll sín störf eins vel og hún gat. Kona Naanrans var afskaplega hrifin af Tirzu. Dag einn voru þær að tala saman og Tirza sá að hún var mjög döpur í bragði. Tirza spurði hana af hverju hún væri svona hrygg. Hún horfði á Tirzu og sagði: „Naaman er rnikill og voldugur hershöfðingi og hefur unnið marga sigra, en það er eitt, sem hann getur ekki sigrað. Hann er með holdsveiki og honum hefur versnað svo mikið undanfarna daga að bráð- um þarf hann að fara frá mér.“ Svo grét hún. Þá sagði Tirza: „Eg vildi óska að húsbóndi rninn væri kominn til spámannsins í heimalandi mínu, því hann mundi geta Iosað hann við lík- þrána. Konan sagði Naaman, manni sínum frá spámanninum, Naaman sagði konunginum frá honum og konungur sagði Naa- man að fara til ísraels. Naaman lagði af stað til ísraels ásamt fríðu föruneyti. Hann kom til spámannsins, sem flutti honum þau skilaboð að

x

Barnablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.