Barnablaðið - 01.02.1987, Side 21

Barnablaðið - 01.02.1987, Side 21
Barnablabib Barnatorg Þessa mynd teiknaði Berglind Snæland, 11 ára, Reykjavík. Halla Birgisdóttir, Siglu- firði, sendi okkur eftirfarandi vísu: í Grunnskóla Siglujjarðar skrifa allir vel. Stönglast út ífrímínútur ogfrjósa þar í hel. Spéhornið — Hve margir hér vilja fara til himins? spurði sunnudaga- skólakennarinn. Allir réttu upp hendur, nema Jens. — En hvers vegna vilt þú ekki fara til himins? — Mamma sagði að ég ætti að koma beint heim eftir sunnu- dagaskólann. Lausnirá þrautum bls. 2. Hjálpaöu Snorra Stóra „grenitréð“ hægra meg- in við húsið er regnhlífin. Hve margir? 35 þríhyrningar. Barnatorg Halló, kæra Barnablað. Ég er 11 ára gömul, ég vil þakka gott blað, en blaðið kemur svolítið seint. Hér kemur einn brandari: Fjórir menn voru í flugvél, en neðri helmingurinn datt af svo þeir héngu í loftinu. Það var einn Hafnfirðingur, einn Reykvíkingur og tveir Vestmannaeyingar. Þá sagði Reykvíkingurinn: „Einn verður að stökkva niður." Hafnfirðingurinn stökk nið- ur. Þá klöppuðu hinir og duttu allir niður. Laufey Jörgensdóttir Bröttugötu 17 900 Vestmannaeyjum Ferðamaðurinn: Hefur þú búið í Alaska alla ævi? Eskimóinn: Ekki ennþá! Svo var það hænan sem fékk hita — og verpti eingöngu soðn- um eggjum. Hefur þú heyrt um manninn sem var með svo miklar hrukkur á enninu að hann varð að skrúfa á sig hattinn? Lína frænka var búin að klippa hárið alveg stutt, og þegar hún spurði litla frænda sinn hvað honum fyndist um nýju klippinguna, svaraði hann: — Já, nú lítur þú ekki lengur út eins og gömul frænka. — Það var gott, hvernig lít ég þá út? — Eins og gamall frændi.. . PENNAVINIR Ég óska eftir pennavinum á aldrinum 10—12 ára. Ég er sjálf 11 ára. Áhuga- mál margvisleg. Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir, Geröaveg 14a, 250 Garði. Kæra Barnablaö! Ég óska eftir pennavinum, stelpum og strákum á aldrinum 11-14 ára. Ég er sjálf ellefu ára. Áhugamál min eru þessi: Frjálsar iþróttir, fótbolti og pennavinir. Jóna Rósa Stefánsdóttir Sætúni 2 565 Hofsós P.s. Þakka gott blað. Kæra Barnablað! Ég óska eftir pennavinum, bæöi strákum og stelpum á aldrinum 9-11 ára. Ég er sjálf 10 ára. Áhugamál margvisleg. Guðrún Rebekka Jakobsdóttir Sæbakka 2 465 Bildudal Kæra Barnablað. Ég óska eftir pennavinum á aldrin- um 11-14 ára. Sjálf er ég 12 ára. Áhugamálin min eru: Limmiöar, plaköt með Madonnu og A-Ha, sund, iþróttir og ég safna frimerkjum. Mynd fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Birna Evelyn Rafnkelsdóttir Klettabrekku, Nesjum Höfn, Hornafiröi íslandi P.s. Þakka gott blað. Kæra Barnablað, Mig langar að eignast pennavini á aldrinum 10-12 ára. Áhugamál min eru íþróttir, dýr, feröalög og margt fleira. Heimilisfangið er: Páll Rúnar Traustason Hólum Hjaltadal 551 Sauöárkrókur Kæra Barnablað. Mig langar að skrifast á við stráka og stelpur á aldrinum 11-14 ára. Áhugamál min eru Madonna, sætir strákar, dans, föt, sund, handbolti og fieira. Guðrún Hulda Jónsdóttir Bláhvammi 641 Húsavík P.s. Þakka gott blað.

x

Barnablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.