Fylkir - 20.05.1978, Blaðsíða 4
4
FYLKIR
UPP MEÐ SKIPALYFTUNA
Skipalyfta'i er mál allra
flokka í þessum kosningum og
fagna fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins því og talja það
skapa vonir um að samstaða
náist um að framkvæmdir hef j.
ist, en harma þann drátt, er á
hefur orðið. Hverjum sá drátt-
ur er að kenna, skal ekki rætt
hér, heldur bent á nauðsyn
þess að byggingu skipalyftunn-
ar verði hraðað svo sem kost-
ur er á.
f dag er hægt að taka hér á
land, með sæmilegu móti, skip
af stærðinni 120—150 rúmlest-
ir.
Héðan eru gerðir út fjórir
skuttogarar og líkur á að þeim
fjölgi, og fjöldi báta yfir 150
rúmlestir. Öll þessi skip þurfa
að sækja til annarra hafna, til
botnhreinsunar og venjulegs
viðhalds.
Á svæðinu frá Neskaupstað
til Njarðvíkur er engin driátt-
arbraut, sem getur tekið á land
skip fyrir ofan áðurnefnd
stærgarmörk.
Nú þegar er farið að draga
úr byggingu íbúðarhúsa hér í
Eyjun, eftir þá miklu upp-
byggingu sem hófst í goslok.
Er því fyrirsjáanlegt, að mikill
fjölda úrvals iðnaðarmanna, er
unnið hefur að uppbyggingunni,
mun skorta verkefni á næstu
má’iuðum og árum. Þeir iðn-
aðarmenn, sem unnið hafa að
viðgerð og viðhaldsstörfurr. fyr.
ir íslenska fiskiskipaflotann
hér í Eyjum á undanförnum
áratugum hafa aflað sér verð-
skuldað traust fyrir hæfni, og
munu laða h' ígað skip þegar
skipalyftan tekur tú starfa.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins gera sér fyllilega ljóst að
uppsetning og rekstur skipa-
lyftunnar er fjárfrekt fyritæki
og þarf því að koma fleira til
en stór orð.
Krafa okkar er að stjórn-
völd sýni í verki skilning á
nauðsyn þess að fjármagna
uppbyggingu skipalyftunnar,
svo hún komi sem fyrst að
þeim notun sem til er ætlast.
Okkur er fyllilega ljóst að
áður en uppsetning lyftunnar
hefst, þarf að liggja fyrir
rekstrarfyrirkomulag og rekstr
raðúd hi'-rna einstöku fyirtækja
sem hyggja á rekstur lyftunn-
ar.
Rekstur lyftunnar í framtíð-
inni hlýtur að markast mikið
af því, hvernig tekst til í byrj-
un. Uppbygging á svæði lyft-
unnar getur orðið með því móti
annars vegar að ei'.istök fyrir-
tæki byggi þar upp starfsemi
sína, eða um lyftuna nyndist
öflugt fyrirtæki, þar sem reynt
verður að koma sem flestu
undir sama þak. Ekki verður
lagður dómur á það í þessari
grein hvort fyrirkomulagið sé
heppilegra, en ekki fer á milli
mála að mjög náin san.vinna
fyrirtækjaina sem hyggja á
uppbyggingu á svæðinu, er
grundvallar forsenda þess að
vel takist til með rekstur skipa.
lyftunnar.
Nýsmíði mun, ef vel tekst til,
verða stór þáttur í rekstri
skipalyftunnar, auk viðhalds og
Naudsynlegt er ad skipalyftunni verdi komid upp sem fyrst
viðgerða, og mun skipalyftan
og fyrirtæki tengd henni, taka
á móti fjölda iðnaðarmanna á
næstu árum.
Uppsetning skipalyftunnar er
n ál, sem enga bið þolir lengur,
og verður að koma hreyfingu
á rnálið hið fyrsta.
Að því n unu fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins vinna.
Nokkur undanfarin ár hefur Vinnuskólinn starf-
að fyrir börn á aldrinum 10 — 12 ár. En fyrir börn
á aldri fyrir neðan (6—9) hefur ekkert sérstakt
verið hugsað um af hálfu bæjaryfirvalda. í nokkr-
um kaupstöðum landsins t. d. Kópavogi, hefur
verið komið upp skemmtilegri aðstöðu fyrir þessa
ungu aldurshópa, svokölluðum starfsvelli. Þar fá
börnin leiðsögn við að smíða heil þorp úr ódýru
efni, sem til fellur.
Hér er ekki um stórkostleg útgjöld Bæjarsjóðs
að ræða (einn umsjónarmaður) en myndi veita
ungum bæjarbúum mikla ánægju.
STARFSVÖLLUR
SJÁFVIRKIR BiLSKIÍRSHURÐAOPNARAR
Höfum fyririiggjandi GENIE sjálfvirka
bílskúrshuðaopnara. — Eins árs ábyrgð. —
Fullkomin varahluta- og viðgerðarþjónusta.
Pað kostar ekkert að kynnast þessari nýju
tækni. — Sláðu á þráðinn.
V____________________________________________
SÍMI
1510
__________>