Fylkir - 20.05.1978, Page 8
ö
FYLKIK
UR VERINU ÚR
ÚR VERINU ÚR
ÚR VERINU ÚR
VÆflMBl
Vikan:
Fáir bátar hafa verið að þessa
viku, margir að skipta um veið-
arfæri og flestir tekið sér smá-
hlé milli úthalda. Min ii bátarn-
ir hafa verið að rsita vestan við
Áisey, t. d. var Beggi á Skuld-
inni með 4 tonn í fyrradag.
Stærri bátarnir hafa verið
með ágætan afla, Bylgja með
56 tonn á þriðjudag, Surtsey
með 35 toni í gær og Dala-
Rafn með 17 tonn á þriðjudag
og 22 tonn í fyrradag.
Enginn bátur var að spær-
ligsveiðum þessa viku.
Togararnir:
Sindri landaði 104 tomium
i
mest þorski, á þriðjudag og
fór á veiðar austur fyrir land.
V-'stmannaey liggur í Reykja-
vík síðan um síðustu helgi
vegna bilunar á hverfli í aðal-
vél. Varahlutir eru væntanleg-
ir núna um helgina frá Japan
og kemst skipið væntanlega á
veiðar í byrjun næstu viku.
Klakkur er á veiðum fyrir vest
an land og er væntanlegur til
löndunar á þriðjudag.
Sæbjörg;
M/b Sæbjörg för í fyrradag
á nstaveiðar norður fyrir land
og hyggst ísa aflaan og sigla
á erlendan markað.
Vertíðarlok:
Nú liggja lokatölur vertíðar-
innar fyrir og er þetta önnur
lakasta vertíð hér sl. 10 ár og
þótt lengra væri rakið. Sjósókn
var feikilega erfið í vetur vegna
veðurs og fátt bendir til, að
fiskgengd hafi verið meiri en
í fyrra. Þorsks varð að vísu
vart bæði djúpt og grunnt og
kon hann á ýmis þau svæði,
sem hann hefur ekki látið á sér
kræla í mörg undanfarin ár. Þá
var þorskurinn mun vænni í
vetur c'i undanfarið, mikið af
8—9 ára gömlum fiski, jafnvel
aulafiski, en lítið um smáan
göngufisk, sem hlýtur að vekja
hjá mönnum nokkurn ugg um
framtíðina.
Lítið var um ufsa, en hann
hefur oft borið uppi aflami
framan af vertíðinni og aðeins
eitt ýsuhlaup kom, sem gagn
varð að cg stóð stutt.
Það, sem haldið hefur í horf-
inu um heildaraflann hér í vet-
ur er aukinn togarafiskur og
stöðugt aukin tækni og tilþrif
bátasjómaiha við tog og aðr-
ar veiðar.
Sýnist því full ástæða vera
til að staldra við og gera sér
nokkra grein fyrir framtíða-
þróun hér í veiðun, og afla-
brögðum með tilliti til stærðar
fiskstofmanna. Á næstu árum
verðum við að stefna að aukn-
um verðmætum, en ekki fleiri
tonnum.
Heildaraflinn á vertíðinni;
Heildaraflinn af botnfiski
varð 18..881 tonn (18.318 tonn
í fyrra), í troll 5.771 tonn
(6.024), í net 8.661 tonn (10.485)
á línu 1.036 toin (84), á hand-
færi 213 tonn (114), togarar
3.032 (1506) og með spærlings-
vörpu 168 tonn (105).
Spærlingsaflinn varð 17.108
tonn (2.744) og loðnuaflimi
58.100 tonn (90.656). Af loðnu-
hrognum náðust hér nú 679
tonn (196 í fyrra). Heildarafl-
in-i varð því 94.768 tonn á móti
111.914 tonnum í fyrra.
LOKAAFLASKÝRSLAN:
Aflahæstu netabátar;
tonn aflaverðm. í millj. kr.
Þórunn Sveinsd. 789 65,0
Árni í Görðum 552 38,4
Gandi 540 42.8
Dala-Rafn 508 31,1
Elliðaey 507 37,3
Stígandi 487 32,8
Ölduljón 474 37,8
Gullborg 465 33,1
Kópavík 445 36,8
Bergur 427 33,8
Aflahæstu trollbátar;
tonn aflaverðm.
í millj. kr.
Sigurbára 486 36,4
Björg 428 29,4
Surtsey 366 29,1
Frár 357 28,0
Þristur 312 22,1
Öðlingur 292 22,4
Sæþór Ár'ni 284 19,6
Ver 239 17,2
Baldur 215 16,5
Ólafur Vestmann 199 15,6
Þess skal getið, að í aflaverð
mæti Stíganda vantar 3 landan-
ir í Þorlákshöfn, sennilega rúm-
lega 2 milljónir króna og í
f síðasta Framsóknarblaði
var skotið fyrstu örinni í yfir-
standandi kosningabaráttu suð
ur yfir lóðarmörk okkar „nafn-
anna á Boðaslóðinni” eins og
blaðið orðar það. Á örina var
festur svohljóðandi boðskapur:
„Þú Sigurgeir Ólafsson ert
ráðinn skipstjóri á togara og
bæjarfulltrúi. Kjósendur hugsa
því ekki til þín, heldur til Sig.
aflaverðmæt Þórunnar Svei'.is-
dóttur er ein löndun í Þýska
landi og Kópavíkur ein löndun
í Englandi. Þá er verðmæti
spærlings ekki talð með hjá
Þristi og Ólafi Vestmann.
Afl togaranna:
tonn aflaverðm.
í millj. kr.
Vestmannaey 1.051 89,3
Sindri 1.023 87,2
Klakkur 953 76,1
Sindri hefur bætt við 104
tonnum að verðmæti um 10,0
mlljónum króna.
urbjargar Axelsdóttur, sem er
næst þér á listanum.”
LtJMSKT ER SKOTIÐ.
Ekki átti ég von á slikri
kveðju til sjómanna úr þessari
átt. Bara sjómaður og ekkert
nema sjómaður og helgaðu þig
því. Sem sagt, ég er sjómaður
og þá . . . . ekki gjaldgengur.
Ei út af hverju? Er það af
ótta við að sjómaður hafi ekki
nægan tíma til að sinna bæj-
armálum?
Eða er sjómaður ekki hæfur
til slíks starfs?
I mínu starfi hef ég og mun
hafa að meðaltali sem næst
tíu daga í mánuði frí frá störf-
um' — þriðja hvern túr.
Á síðasta kjörtímabili vom
haldnir 67 bæjarstjórnarfund-
ir, sem er mjög há tala mið-
að við fyrri ár.
Af þessum 67 fundum sat t.
d. þi'.igmaðurinn Garðar Sig-
urðsson, kjörinn bæjarfulltrúi
sjö fundi.
Ekki þætti það gott hjá sjó-
manni.
Nei, örin hittir ekki í mark.
Sjómaður á erindi í bæjar.
stjórn í bæ, sem allt byggir á
sjó og sjófangi.
Sjóm.enn og aðrir kjóse.idur,
sýnið það í verki sunnudaginn
28. maí að þið viljið starfandi
sjómain í bæjarstjórn.
Sigurgeir Ólafsson..
x - D
Bæjarstjórnarkosningar
Kjörfundur vegna bæjarstjórnarkosninga í
Vestmannaeyjum hefst kl. 9.00 árdegis, sunnu-
daginn 28. maí n. k. og lýkur kl. 23.00 þann
dag.
Bænum er skipt í tvær kjördeildir og verða
báðar kjördeildirnar í nýbyggingu barnaskól-
ans, inngangur um suðurdyr
í I. kjördeild greiða þeir atkvæði, sem áttu
heimili 1. desember s. I. við götur, sem byrja
á A til og með Heimagötu.
í II. kjördeild greiða þeir aíkvæði, sem áttu
heimili 1. desember s. I. við Helgafellsbraut
til og með Vesturvegi, svo og allir þeir, sem
voru þá búsettir í húsum, sem ekki eru stað-
sett við götur, þar á meðal bæir, fiskvinnslu-
stöðvar, skólar o. fl., svo og þeir sem voru
óstaðsettir á kjörskrá, einnig allir þeir, sem
kærðir hafa verið inn á kjörskrá.
YFIRKJÖRSTJQRNIN í VESTMANNAEYJUM
18. maí 1978.
Kristján Torfason,
Georg Tryggvason, Jón R. Porsteinsson.
Síðasta tækifæri í dag að láta skrifa sig í á-
ætlaða ferð í Þórsmörk um helgina 9., 10. og
11. júní.
Hringið strax í síma: 1340, 1806, 1457.
Slysavarnadeildin
EYKYNDILL
SIGURGEIR
EÐA SIGURGEIR