Skátablaðið - 01.10.1953, Side 8
Skátafélag Akraness.
S. 1. haust voru skátafélögin á Akranesi, Vær-
ingjar og Kvenskátafélag Akraness, sameinuð í
eitt félag. Félagið heitir Skátafélag Akraness.
Félagsforingi er Hans Jörgenson, kennari. Hans
er gamall og reyndur skátaforingi og hefur
starfað mikið að skátamálum. Deildarforingi er
Þorvaldur Þorvaldsson, kennari, sem einnig er
reyndur skátaforingi frá Hafnarfirði.
Við sameiningu félaganna (stofndagur 2. nóv
1952) voru meðlimir liins nýja félags 42 drengir
og 24 stúlkur. En nú mun félagið telja hátt á
annað hundrað meðlimi.
Félagsforinginn Hans Jörgenson og kona
hans Sigrún Ingimundardóttir, en hún er einnig
skáti, hafa verið á ferðalagi í sumar um Norð-
urlönd, og tekið þátt í skátamótum í Danmörku
og Noregi.
Þá voru 6 skátar frá Akranesi meðal þátt-
takenda á alþjóða-rekka mótinu, sem haldið
var í Sviss í sumar, af 12 þátt. frá íslandi. Einnig
sótti Baldur Ólafsson, skáti frá Akranesi mót
Oslóar skáta í sumar.
Skátafélag Akraness annaðist móttöku 14
franskra skáta, sem heimsóttu Akranes einn dag
í ágúst s. 1. og tóku skátarnir á móti erl. gest-
unum af mikilli rausn og myndarbrag.
Skátamót i Borgarvik, 1953.
Dagana 1,—4. ágúst s. 1. efndi S. F. R. til skáta-
móts í Borgarvík við Úlfljótsvatn. Þátttakendur
í móti þessu voru 78 skátar frá Reykjavík, Hafn-
arfirði, Keflavík, Akranesi og Hveragerði. Auk
ísl. skátanna sóttu mótið 14 franskir rekkar frá
París. Undirbúning mótsins önnuðust Henry
Þór Henrysson, Guðmundur Ingvarsson, Einar
Strand og Bergur Jónsson, sem var mótstjóri.
Mót þetta var fyrir drengjaskáta.
Skátaráðsfundur 1953.
Sjötti fundur Skátaráðs var haldinn í Skáta-
heimilinu í Reykjavík 13. júní 1953.
Á fundinum mættu 12 meðlimir Skátaráðs,
en alls sátu fundinn 18 manns, þ. e. stjórn
Bís, framkvæmdastjóri og fundarritari.
Dr. Helgi Tómason, skátahöfðingi, flutti er-
indi um skátastarfið, Tryggvi Kristjánsson flutti
skýrslu stjórnar Bís fyrir s. 1. ár, og hafði hann
einnig framsögu um fjármálin, og lagði fram
fjárhasáætlun Bís, sem seinasta Skátaþing fól
stjórninni að semja.
í sambandi við umræður um fjármálin var
samþ. tillaga um að leggja til við stjórnina, að
hún skipaði sérstaka fjáröflunarnefnd Bís, sem
m .a. ynni að því að safna gömlum skátum, sem
fúsir væru til að greiða kr. 100.00 á ári, í næstu
3 ára, til styrktar starfsemi Bís. Flutningsmenn
voru Jón Oddeir Jónsson og Daniel Gíslason.
Tillögu þessari fylgdi listi með áritun flutn-
ingsmanna og nokkurra fundarmanna, sem allir
greiddu fyrsta sillag sitt kr. 100.00.
Inntökubeiðnir frá Skátafélagi Hveragerðis,
Glaðherjum, Súgundafirði og Skátafélagi Akra-
ness, voru samþ. á fundinum.
Þá fluttu þau Jónas B. Jónsson og Hrefna
Tynes, varaskátahöfðingjar erindi um starfsemi
drengja og stúlkna að Úlfljótsvatni.
Skátaráðsfundurinn var settur kl. rúmlega 4
síðdegis og slitið kl. 7.15.
Þar sem skátahöfðingi þurfti að hverfa frá í
byrjun fundar, stjórnaði frú Hrefna Tynes,
varaskátahöfðingi, fundinum.
Skátablaðið.
Ef það væru nokkrir útsölumenn Skátablaðs-
ins, sem ættu eftir að senda greiðslu fyrir blaðið
fyrír árið, sem er að líða, eða frá í fyrra, þá væri
sú greiðsla þakksamlega þegin.
20
SKATABLAÐIÐ