Skátablaðið - 01.10.1953, Blaðsíða 9
Ef blaðið stendur á öruggum grundvelli fjár-
hagslega, þá er hægt að gefa það oftar út, hafa
blaðið stærra og vanda frágang þess, en fjárhag-
urinn er því að eins góður að kaupendurnir
greiði það skilvíslega. Áskriftagjald Skátablaðs-
ins hefur lækkað, og er þetta ár aðeins 15 kr.
árgangurinn.
Merkjasala skáta.
Merkjasala skáta var 11. okt s. 1. Seldust
merki fyrir kr. 22.000, sem skiftist að jöfnu milli
félaganna og Bís.
Belgiskur skátaforingi í heimsókn.
í júní í sumar kom hingað í heimsókn belg-
iskur skátaforingi Jan Warnewijk að nafni, og
dvaldi hér viku tíma. Bjó hann í skátaheimilinu
í Reykjavík og ferðaðist um nágrennið. Lét hann
vel yfir dvöl sinni hér.
Þegar ísl. rekkarnir, sem fóru á R. S. mótið
í sumar, kornu til Belgíu, á heimleið, tók hann
vel á móti þeim og var leiðsögumaður þeirra í
nokkra daga.
Alþjóða rekka mótið 1953.
Fimmta alþjóða rekka mótið var svo sem
kunnugt er haldið í Sviss i sumar, dagana 28. júlí
til 8. ágúst. Tólf ísl. rekkar tóku þátt í móti
þessu. Fararstjóri var Sigurður Ágústsson, skáta-
foringi, Reykjavík. Auk hans voru í fararstjórn
þeir Bragi Þórðarson, sv.for. Akranesi og Eggert
Eggertsson, Borarnesi. ísl. rekkarnir fóru utan
með M/S Gullfossi þ. 18. júlí s. 1. til Danmerk-
ur, og komu heim aftur með M/S Gullfossi frá
Leith þ. 27. ágúst, eftir 40 daga ánægjulega ferð,
um Danmörku, Þýskaland, Sviss, Frakkland,
Belgíu, England og Skotland.
Skotlandsför kvenskáta.
Kvenskátarnir, sem ætluðu til Noregs í sum-
ar, hættu við það á seinustu stundu vegna mænu-
veikisfaraldurs í Noregi.
Þar sem stúlkurnar voru ferðbúnar, voru 11
þeirra, flestar úr Reykjavík ákveðnar að ferð-
ast þá til einhvers annars lands, og varð Skot-
land og England fyrir valinu. Var blaðinu þá
snúið við, og hringt til Skotlands og ferðin
ákveðin og endurskipulögð á skömmum tíma.
Fóru stúlkurnar utan með M/S Heklu til
Glasgow þ. 29. júní s. 1. og ferðuðust víða um
Skotland og England, og dvöldu í tjaldbúðum
skátanna þar. Létu stúlkurnar mjög vel yfir
ferðinni og móttökunum. Miss Janet Meikle
annaðist móttöku ísl. kvenskátanna og Miss
Margaret Minto skipulagði prýðilega ferðalag
þeirra um landið og útvegaði þeim leiðsögu-
mann, sem var reyndur kvenskátaforingi.
Fararstjórar voru Auður Garðarsdóttir og
Jenna Jensdóttir, báðar sveitarforingjar í
Reykjavík.
14. alþjóða foringjaráðstefna skáta.
Fjórtánda alþjóða foringjaráðstefna skáta var
haldin í Vaduz, Liechtenstein, dagana 9.—12.
ágúst s. 1. Dr. Helgi Tómasson, skátahöfðingi
sótti ráðstefnuna frá íslandi, og var kona hans
frú Ragnheiður Brynjólfsdóttir i fylgd með
honum. M. a. var samþ. á ráðstefnunni að taka
boði Kanada um að halda næsta alþjóða skát-
mót, Jamboree, þar árið 1955, og verður 15. al-
þjóða foringjaráðstefna einnig haldin í Kanada
um sama leyti. Einnig var tekið boði Breska
bandalagsins um að halda stórt alþjóðamót skáta
í Bretlandi árið 1957, í tilefni af 50 ára af-
mæli skátahreyfingarinnar og unr leið 100 ára
minningu B. P. stofnanda skátahreyfingarinnar,
en hann var fæddur árið 1857, eins og kunnugt
er.
Þá var einnig tilkynnt að Col. Wilson mundi
láta af störfum sem framkvæmdastjóri alþjóða-
bandalags drengjaskáta, en Gen. D. C. Spry, frá
Kanada taka við því starfi þ. 1. nóv. 1953. Hann
er 41 árs gamall.
Wilson hefur starfað fyrir skátahreyfinguna
í heiminum um 30 ára skeið, fyrst sem skóla-
stjóri á Gilwell og síðar sem framkvæmdastjóri
alþjóðabandalagsins. Á ráðstefnu þessari var Col.
Wilson útnefndur heiðursforseti alþjóðabanda-
lags drengjaskáta, og er það hliðstætt því að vera
SKATABLAÐIÐ
21