Ný vikutíðindi - 30.07.1965, Qupperneq 5
NY VIKUTlÐINDI
5
er fregnir herrna, þótt ekki
benun við ábyrgð á því.
Hann mun samt hafa get
að samið við verkalýðsfélag-
ið um undanþágu á því að
Jarðafarafrí..
(Framh. af bls. 8)
ráðuneytis um jarðarfarar-
leyfi og voru leyfin að sjálf-
sögðu veitt.
Eitt sinn er prestur kom
sem oftar á fund skrifstofu-
stjórans að beiðast leyfis til
að fara við jarðarför, sem
var leyft, þá bætti skrifstofu
stjórinn því við, hvort prest-
ur vildi svo ekki bara tylla
sér á kirkjutröppurnar á
meðan hann biði eftir næstu
jarðarförinni; þáð tæki því
fá að vinna upp eitthvað af
magninu í næturvinnu, þegar
hann loks leitaði til þess, svo
að ekki verður því um kennt
beinlínis, hvernig fór.
varla að mæta í ráðuneyt-
inu á milli jarðarfaranna.
Þetta er hvorttveggja í
senn sönn og litrík saga um
það, hversu sumir líta á
störf sín hjá hinu opinbera,
sérstaklega.
En eins og kjaradómurinn
í launamálum opinberra
starfsmanna setti öll launa-
mál úr böndunum á sínum
tíma, þá hlýtur vinnutími
opinberra starfsmanna líka
að verða viðmiðunartími um
vinnutíma annarra starfs-
stétta, enda sjást þess nú
þegar nokkur dæmi.
SVOR
við gátum á bls. 6.
1. Fegurð.
2. 88 og 8/8.
3. Á.
4. Með því að taka I af
XIX verða XX (201 eftir.
5. Eitt, því þegar hann hef
ur borðað það er hann ekki
lengur fastandi.
6. Kx—kex.
7. Vn, þ. e. neðri helming-
urinn af XII er tekinn burt.
8. Já, oft — með báðum
augunum mínum.
9. X (við XX).
10. Kílómetri.
11. Sólargeislinn.
12. Engar.
13. Munnurinn.
14. Neftóbakið.
15. Skófjöðrin.
16. Höfuðfat.
17. Snjóhúsum
18. Nafnið þitt.
19- Vegna þess að þær eru
fleiri.
20. Skuggann.
21. Lyftir hinum fætinum.
22. Sjóveiki.
23- Móðurmjólkin.
24. H (há).
25. Enginn köttur hefur sex
rófur, en einn köttur hefur
einni rófu fleiri en enginn
köttur og því hlýtur einn
köttur að hafa sjö rófur.
Nýtt fyrirgreiðslofyrirtæki
Nýlega hefur verið stofn-
að firmað TLM, en tilgang-
ur þess er að veita fyrir-
tækjum og stofmmum
»hverskonar fyrirgreiðslu og
tæknilegar ráðleggingar á
sviði auglýsinga og út-
breiðslu“. Dregur firmað
ttafn af þremur fyrirtækjum,
sem standa að stofnun þess:
Teiknistofan s.f., Litróf og
Myndprent s.f.
Hver deild fyrirtækisins
tnun að sjálfsögðu taka eins
°§' áður við einstökum verk-
efnum, hver á sínu sviði. En
helztu nýjungina telja eig-
endurnir vera þá, auk tækni-
nýjunga, að TLM tekur að
ser ákveðin verkefni og
vinnur þau að öllu leyti, allt
frá þvi að viðskiptavinurinn
kemur hugmyndum sínum á
framfæri, þar til hann tek-
ur við verkefninu fullunnu.
sambærileg þjónusta í öll
Uln nágrannalöndum okkar
u& Þykir bæði spara tíma og
ry.?g'ja jákvæðari árangur
en ella.
Teiknistofur TLM eru bún
ar nýjum áhöldum og eru m.
a. að undirbúa þjónustu varð
andi auglýsingar í hið vænt-
anlega sjónvarp.
Prentmótagerðin Litróf
hefur starfað á þriðja ára-
tug og hefur yfir að ráða
nýjustu og fullkomnustu vél-
um, sem nú gerast.
Myndprent er nýstofnað
fyrirtæki og hefur m. a. yf-
ir að ráða stærstu gerð Heid
elberg-pressu, sem ætluð er
við vandasöm litaverkefni.
Með stofnun TLM er kom-
ið til móts við óskir margra
kaupsýslumanna og fram-
kvæmdastjóra, enda hefur
auglýsinga- og útbreiðslu-
starfsemi aukist mjög í
seinni tíð hér á landi og ætti
því fyrirtækið að vera fylli-
lega tímabært.
Forstjóri TLM er Eymund
ur Magnússon en framkv.-
stjórar þeir Bragi Hinriks-
son og örlygur Hálfdánar-
son. Yfirmaður prentsmiðju
er Trausti Jóhannesson, yfir
maður teiknistofu er Hauk-
ur Halldórsson og yfirmaður
prentmyndagerðar Jens Hall
dórsson.
NORÐRI:
Áróðurinn gegn sjónvarpi er runnin frá
kommúnistum - Ándstæðingar þess eru
afturhaldssamir og bröngsýnir.
MENNIN GAKHÁLF VITAK.
Handbendi komrnúnista í sjónvarps-
málum eru nú á undanhaldi og rök
þeirra fyrir lokun sjónvarpsins frá
Keflavíkurflugvelli verða æ þynnri og
aumingjalegri með hverjum deginum er
líður. Þá þykir þeim ráðist í of mik-
ið að stofna til íslenzks sjónvarps og
telja þar fjármunum illa varið meðan
enn sé margt ógert.
Bent er á ófullgerð sjúkrahús, söfn,
skóla, vegi, brýr, fávitahæli og m. fl.,
sem fremur ætti að fjárfesta í heldur
en sjónvarpsstöð. Auðvitað þarf að full
gera allt þetta og ekki sízt fávitahælið,
en er það ekki vaxtarverkur hvers dug-
andi þjóðfélags, sem hér er um að
ræða og lengi mætti bíða eftir sjón-
varpinu, ef bíða ætti eftir því að öll
önnur skilyrði væru áður uppfyllt.
Já, menningarpostularnir, sem ham-
ast mest gegn sjónvarpinu, tala og
rita mikið um hin skaðlegu áhrif, sem
það hafi á lítt þroskuð ungmenni og
óupplýstan almenning og tönnlast á
því sí og æ, að hermannasjónvarpið á
Keflavíkurflugvelli muni afvegaleiða
ungdóminn og æra unglinga til glæpa-
verka.
Einn þessara menningarvita er stór
bókaútgefandi og er meðal annars
þekktur fyrir að gefa út alls konar rit
eftir kommúnistiska skríbenta, sem
lifa á styrkjum frá hinu opinbera og
ölmusu hans. Sum þessara rita eru við-
bjóðslegt kjaftæði, full af klámi og
kynvillu og viðkomandi útgefanda lítt
til sóma. Honum ferst því varla að
brígzla öðrum um að fífla ungdóminn.
NYTSAMIR
SAKLEYSINGJAR.
Nýlega tóku þessir andstæðingar
sjónvarps sig til og hófu útgáfu blaðs,
sem stefnt er nær eingöngu gegn þessu
svokallaða hermannasjónvarpi. Á-
byrgðamaðurinn er auðvitað fyrrgreind
ur bókaútgefandi.
1 þessu blaði er bæði fjasað um her-
mannasjónvarp og stórhættulegt efni,
sem það flytur að dómi ritsnillinganna,
sem allir vita þó að er mun betra og
miklu fjölbreyttara en kvikmyndahús-
in bjóða upp á.
I gegnum allan þennan ofsaáróður
er auðvelt að finna grunntóninn og
hvaðan hann kernur. Kommúnistar eru
löngum seigir að koma sjónarmiðum
sínum að í gegnum nytsama sakleys-
ingja og það sem meira er, þessir „sak-
lausu“ baráttumenn láta sífellt ánetj-
ast í áróðursvefi kommúnista.
Þeir óttast ekkert meira en amerísk
áhrif, hverju nafni sem þau nefnast, og
vita sem er, að sterkustu straumar lýð-
ræðisins og öflugust vöm þess kemur
að vestan. Þess vegna er það nauð-
synlegt að byggja vegg fyrir þessi á-
hrif og til þess beitt öllum brögðum.
En þegar Rússar senda hingað sirk-
us-fífl og trúða, ætlar andlitið að detta
af þessum sjúklingum af hrifningu og
blindri aðdáun.
SÓKN GEGN
KOMMÚNISTUM.
Kommúnistar eru eins í öllum lönd-
um. Þeim er aldrei treystandi í einu
eða neinu og sem betur fer er bar-
átta þeirra gegn sjónvarpinu gjörsam-
lega í molum og hefur engan árangur
borið þrátt fyrir allan bægslaganginn.
Sjónvarpstæknin kemst líka sexmi-
lega á það stig innan fárra ára, að við
getum notið erlends efnis frá næstum
hvaða sjónvarpsstöð sem er á jarðar-
kringlunni og þá er til lítils að vera að
berjast gegn einni eða annarri stöð.
Aukin kynni íslendinga af umheimin-
um verða þeim til aukins þroska og öll
einangrun er afturhaldssemi.
Með tilkomu Johns heitins Kennedy,
sem forseta Bandaríkjanna, hófust
þáttaskipti í heiminum hvað kommún-
ismann áhærir og aukin útbreiðsla
hans og áhrif hafa verið stöðvuð og
eru víða á öniggu undanhaldi. John-
son fetar í fótspor hans og lætur eng-
an bilbug á sér finna.
íslendingar eiga að svara sjónvarps-
æði.kommúnista á einn veg: Það flytur
ekki kommúnistiskan áróður og á með-
an svo er, flytur það gott efni og er
sjálfsagt. En ef það verður notað til
áróðurs fyrir múgmorðadýrkendur
heimskommúnismans, þá verður skorin
upp herör og engin hætta á að hún
hitti ekki í márk.
— N o r ð r i .