Sameiningin - 01.01.1912, Page 6
326
hafði til þeirra. horizt annaðhvort munnlega ellegar í
riti.
Annað einkenni þessa sérstaka sögumáls er aug-
sýnilegt. Frásagan í tveim fyrstu kapítulum Matteusar
guðspjalls snertir Jósef og gjörir grein fyrir því, hvern-
ig hann losnaði við freistingar-hugsanir sínar um að
segja skilið við Maríu, heitmey sína. Jósef er og aðal-
persónan í því sögumáli Matteusar guðspjalls, sú er því
ræðr, hvað tekið skuli fyrir. Þar lítið getið hugsana og
tilfinninga Maríu.
En er vér snúum oss að Lúkasar guðspjalli, verðr
oss ljóst, að þar er sagan sögð frá öðru sjónarmiði.
„Það guðspjall hefir verið nefnt ‘guðspjall konunnar’,
og efnið í fyrstu kapítulum þess er áreiðanlega frá
Maríu.“ Sá, sem með gaumgæfni les í Lúkasar guð-
spjalli frásöguna fögru með hinu varfœrna orðalagi um
atburði þá, er gjörðust við fœðing Krists, sér undir
eins, að hún hlýtr upphaflega að hafa komið frá Maríu;
liún hefir annaðlivort munnlega sagt það, sem þar
stendr, eða þá sjálf fœrt það í letr.
„Cfjörvöll frásagan í Matteusar guðspjalli er sett
fram frá sjónarmiði Jósefs, en sú í Lúkasar guðspjalli
frá sjónarmiði Maríu.“ Ef rúm leyfði, skyldum vér
sanna þetta fyllilega með því að henda. lið fyrir lið á
sérkenni hvorra tveggja frásagnanna. Orr, til dœmis
að taka, kemr með þessi fögru orð, er hann ritar um
fyrstu kapítulana í Lúkasar guðspjalli: „1 stuttu máli
að segja er sem vér í kapítulum þessum horfum gegnum
gler inní hjarta Maríu. Hin hreina sál hennar, var-
fœrni liennar og stilling, hin guðinnhlásna gleði hennar,
fúsleiki hennar til þess í þolinmœði að fela sig í hendr
guðs kvenlegum heiðri sínum til varnar, hin djúpa al-
vörugefni hennar og íliugunarsemi — hve sönn þau sér-
kenni öll og dásamlega samboðin fœðing hins helga
barns.“ Enginn á jörðu annar en María sjálf hefði
getað lagt til drættina alla í því listaverki sögunnar í
tveim fyrstu kapítulum Lúkasar guðspjalls.
Hvernig eignaðist kristin kirkja þá sögur þessar?
Sennilega hafa þau Jósef og María fundið til þess, að