Sameiningin - 01.01.1912, Side 7
327
á þeim hvíldi ábyrgð, sú er knúði þau til að gjöra skýra
grein fyrir fœðingar-undri þessu; og myndi því líklegt,
að áðr en þau skildi við hér léti þau skriflega skýrt frá
atburðum þessum, til þess allir gæti nákvæmlega um þá
vitað. En þau gæti hafa sagt einhverjum frá atburð-
unum, þeim er svo fœrði sögumál það í letr einsog hann
heyrði það af þeirra munni, og varðveitti það síðan.
Þau myndi ekki gjöra það undireins; þau myndi ekki
vilja láta almenning hafa það helga dularmál til að lijala
um. „Hinsvegar lilutu þau þó bæði, María og Jósef, að
átta sig á því, að þau gátu ekki eingöngu farið með
sögumál þetta sem þeim einum viðkomanda; — til þess
að ekki félli neinn blettr á heiðr Maríu og eins til þess
að unnt væri að átta sig á persónu Jesú sjálfs, þurfti
það einhverntíma að verða kunnugt, livernig stóð á
með fœðing hans, og að heilög ábvrgð lá á þeim báðum,
sú er bannaði þeim að láta þekking á atburðum, sem
voru svo einstaklegs og yfirnáttúrlegs eðlis, deyja út
hér á jörðu með þeim. En þetta gat aðeins orðið með
hátíðlegum framburði í einhverri mynd, framburði, sem
einhver eða einhverjir tœki við meðan þau enn voru á
lífi.“
Meir en sennilegt er, að á þeim tíma, er Lúkas var
að safna efni í guðspjallsrit sitt í landinu lielga, hafi
María enn verið á lífi; aftr á móti var Jósef, sem sögu-
málið þetta sérstaka í Matteusar guðspjalli er frá, þá
fyrir löngu dáinn, og hefir það sögumál að líkindum
farið gegnum ýmsar hendr áðr en það komst til Matte-
usar. Sannsögulegt gildi hvorratveggja frásagnanna
birtist skýrt við samanburð á þeim og ‘apokryfisku’
guðspjöllunum (dular-guðspjöllunum), sem hafa á sér
svo mörg ýkjutrúar-einkenni, en ekkert slíkt kemr fyrir
í frásögum nýja testamentisins. Og í annan stað birtist
hið sannsögulega gildi þess, sem stendr í Matteusar guð-
spjalli og Lúkasar guðspjalli um fœðing Jesú og annað,
er þartil heyrir, í því, hvernig þeim tveimr frásögnum
ber saman í aðal-efni þrátt fyrir það, að hvorar um sig
eru algjörlega sjálfstœðar.
Nú uppá síðkastið er það orðin tízka að ráðast á