Sameiningin - 01.01.1912, Side 25
345
lífinu í þeirri herferð, en skildi herforingja sinn Lysías eft-
ir til aS bæla niör uppreisnina í Júdeu. Júdas sigraöi her
hans — fjörutíu og sjö þúsundir manna — i orrustu nálægt
i'.mmaus, og haföi þó miklu minna liö sjálfr og verr búiö. SítS-
ar beið Lysías annan ósigr fyrir honum nálægt Betsúr, milli
Hebron og Jerúsalem, og neyddist hann eftir það til að haída
her sínum burt úr Gyðingalandi. Júdas hélt nú til Jerúsalem,
hremsaði musterið, og var það vigt að nýju. Musterisvígslu-
hátíðin, sem getið er um í nýja testamentinu, var 'árleg hátið,
haidin í minning um þessa vígslu.
En striðið hélt áfram. Lysías kom aftr og hafði nú tamda
fí*a í her sínum. Vann hann sigr á Júdasi, og tók Jerúsaiem
aítr en Júdas og menn hans héldú áfram uppreisninni. Dem-
et.'íus inn fyrsti, sem kom til ríkis eftir dauða Antíokusar,
sendi Níkanor nokkurn með: 'her manns móti Júdasi. En Gyð-
ingar unnu sigr á Níkanor þessum. Um sömu mundir komu
Rómverjar til sögunnar aftr; lýsa þeir yfir því, að Gyðingar sé
bandamenn sínir, og skipa Demetríusi að hætta öllum hernaðí
móti þeim. En Jtidas féll í orrustu áðr en þessi frétt barst
Gyðingum til eyrna, árið 161. Jónatan bróðir hans varð þá
foringi Gyðinga, og hélt þeim völdum í 18 ár. Rættist úr fyrir
Gyðingum við það, að tveir menn börðust um völdin í Sýrlandi;
veitti Jónatan öðrum þeirra liðsinni, og fékk sá sigr. Var Jón-
atan þá launað með því, að hann var gjörðr að „sýrlenzkum
prins, landshöfðingja í Júdeu. og œðsta presti". Við það urðu
Gyðingar sjálfum sér ráðandi. Ætt Makkabea var við völd hjá
þeim til ársins 63 f. Kr. Þá börðust brœðr tveir, Aristobúlus
og Hyrkanus, um völdin. Hyrkanus fékk i lið með sér Antí-
pater, landshöfðingja i Idúmeu éEdom), og Aretas, konung í
Arabíu. Um þær mundir var Pompejus, herforinginn róm-
’verski, á herferð um Austrlönd. og leituðu brœðrnir báðir
liðsinnis hjá honum. Pompejus skipaði þeim að sættast, en
Aristobúlus hélt ófriðnum áfram. Eór þá Pompejus með her
manna til Jerúsalem, tók borgina árið 63 og lagði Jjúdeu undir
rómverska ríkið.
Sýrland hafði áðr verið gjört að rómversku skattland'i, og
varð Júdea partr af þeirri hjálendu. Nokkrum árum síðar reis
upp ófriðr milli Júlíusar Sesars og Pompejusar, og veittu þeír
Ilyrkanus f'sem þá var œðsti prestrj og Antípater Sesari lið.
Hann launaði þeim liðveizluna með því að veita Gyðingum sér-
stök réttindi um allt rómverska ríkið. Þeir Antípater og Hyrk-
anus fengu báðir völd yfir Gyðingum í ómakslaun, með sínu