Sameiningin - 01.01.1912, Síða 26
346
tignarnafninu hvor þeirra. Veggir Jerúsalems höf'Su veriS
brotnir niðr, þá er Pompejus sat um borgina, og voru þeir nú
reistir viS aftr.
Heródes ‘hinn mikli’, sem völd hafði yfir Júdeu, þegar
Jesús fœddist, var sonr Antipaters. Má meS sanni segja um
Heródes, aö honum hafi veriö allt vel gefiS, sem honum var ó-
sjálfrátt. Hann gjörði flest, sem í hans valdi stóð, til þess a5
koma sér vel við Rómverja, og tókst honum það mæta vel.
Reyndi hann meS ýmsu móti aS kaupa sér vinsældir GySinga,
en þeir höfSu ímugust á honum, af því hann var ekki nema
hálf-GySingr. fPaöir hans„ Antípater, var edómskr aS kynij.
VarSi hann réttindi Gyöinga fyrir yfirgangi Rómverja, — meö
slœgvizku auövitaö, en varSi þau þó. Þeir nutu friSar og hag-
sældar undir stjórn hans. Hann reisti einnig nokkrar borgir;
þar á meSal hafnarborgina Sesareu, fyrstu höfnina, sem GyS-
ingar áttu yfir aS ráSa. Þá er ekki að gleyma musterinu mikla
í Jerúsalem, sem hann byrjaSi að endrreisa á rnjög stórfelldan
hátt. Vitanlega var þó Heródes hvorki trúmaör né góðmenni.
Gyðingar sálu gegnum góögjörSagrímuna, og unnu honum aldr-
eí; enda sýndi hann, hver maSr hann var, þegar einhver sá
átti hlut aö máli, sem hann þorSi til viS. Og ekki var valda-
sess hans traustari en svo, aS hann varð aS vinna hvert hryðju-
verkiS á fœtr öSru — dœmafá hrySjuverk, ef ekki alveg
dœmalaus — til þess aS halda sér viS vcldin.
Heródes dó áriö 4 e. Kr., e.ftir voru tímatali,*J og var þá
ríki hans skift milli þriggja sona hans. Sá hét Arkelás, sem
viS völdum tók yfir Júdeu og Samaríu, en Heródes Antípas
varS fjórSungshöfSingi yfir Galíleu og Pereu.
Árið 6 e. Kr. var Arkelási vikiS frá, og var ríki hans gjört
að rómversku skattlandi og kal’að Júdea. GySingum var svo
stjórnað af rómverskum landshöfðingjum. Rómverjar kúguðu
GySinga mjög, lögðu á þá þungar skattbyrðar og sýndu þeim
yfirgang í ýmsu; fékk þjóðin því megnt hatr á drottnum
s’ínum. Messíasar-von þeirra varð ef til vill sterkari en áðr;
en hún varð að von um jarðneskan sigrvegara, er leiða myndi
þjóðina til sigrs móti Rómverjum, og gjöra Gyðingaland aöl
voldugu heimsríki.
*) Flestum ber nú saman um, að Jesús hafi fœðzt þrem
til fjórum árum fyrir áriö 1 eftir tímatali voru.