Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1912, Qupperneq 13

Sameiningin - 01.03.1912, Qupperneq 13
9 að þeir vitnisburðir sé tilbúningr ritara. Þá er það verðr bert, að hvert um sig af ritum spámannanna gengr að sex bóka safninu gefnu, minnist á það sem alkunnugt og ýmsa þætti þess í fullu gildi meðal Israelsmanna á þeim tíma, er spámaðrinn var uppi, geta nýtízkumenn þartil engu svara.ð nema því, að spámannsrit það, sem þá er um að rœða, hafi enn seinna verilð fœrt í letr en liinar bœkrnar, eða að það hafi verið umstevpt og svo aukið með skýringum, að það gæti flutt þá kenning, sem það hefir nú inni að halda. Tökum spádómsbók Hóseasar til dœmis. I þeirri mynd, sem sú bók hefir, þarsem hún stendr í biblíunni, flytr liún, að því er hún sjálf segir, ágrip af spádómum, sem fram voru fluttir í norðrríkinu, Israelsríki, frá því á síðustu stjórnarárum Jerobóams annars allt þartil er Samaría var brotin niðr. Þar er talað um alla þætti sex rita safnsins sem kunna fólkinu; og sérstaklega er þar refsiorðum á lofti haldið útaf því, hve stórvægilega lögmálið liafi verið brotið í helgidómunum í þeim hluta landsins; því haldið fram, að þau tvö konungsríki eigi að renna saman í eitt einsog áðr var undir stjórn kon- ungs af ætt Davíðs. Um allt þetta er talað ótvíræðum orðum og í bezta sarnrœrni, og því til stuðnings á allt það bent, er við átti, eftir því, sem vér þekkjum til þeirr- ar tíðar af ritningunum sjálfum eða sögulegum slcýrsl- um Assýríumanna. Sá, sem á annaðborð trúir þessum vitnisburði, hlýtr að liafa það fyrir satt, að ritsafn það, sem nær yfir Móses-bœkrnar og Jósúa-bók, lrafi verið orðið gamalt á tíð Hóseasar. Til þess að komast hjá því að gjöra þessa ályktan segir liöfundr eins af þáttun- um um Hóseas spámann í alfrœða-ritinu nýja, sem kennt er við þá Schaff og Herzog (S.—H. Encyclopedia), að þrír fyrstu kapítularnir í spádómsbók þessarri og fjöru- tíu hundruðustu partar af hinu öllu í þeirri bók sé til- búningr úr efni því, sem ætla megi að síðar hafi verið bœtt við. Höfundr sá fer með bók Hóseasar nákvæm- lega einsog liinir mennirnir, sem sömu hafa stefnuna og ritað hafa um samskonar efni. Og engan veginn er þetta, sem þá bók snertir, einsdœmi, heldr er það ]>vert

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.