Sameiningin - 01.03.1912, Síða 14
IO
á móti aðeins sýniskorn af því, livernig með það efni er
í þeirri átt farið yfirleitt. Með kvern um sig af megin-
þáttnnum í spádómsbók Esajasar er farið eins, og sömu-
leiðis minni spámanna bœkrnar allar, sem kafa það
mark á sér, að þær sé frá tíðinni eftir lierleiðinguna. 0g
svipuð er aðferðin, sem beitt er við liinar bœkrnar allar
í gamla testamentinu.
Nýja testamentið hefir frá uppkafi til enda gamla
testamentið að undirstöðu kenningar sinnar. Menn taki
prentað nýja testament og klippi útúr því allt, sem þar
er tilfœrt úr ritningunum kinum eða óbeinlínis bendir
þangáð, þá staði alla, þarsem minnzt er á atburði og
menn í gamla testamentinu, og ef til vill verðr ekki eitt
keilt blað eftir; stór hluti nýja testamentisins fyrir
bragðið allr sundr flakandi. Jesús ber sí og æ gamla
testamentið fyrir sig og styðr kenning sína við það; eins
gjöra lærisveinar hans, og sama leitast andstœðingar
þeirra einnig við að gjöra. Vitnisburðr Jesú og post-
ulanna um ritningarnar, um Móses og Davíð og Esajas,
og aðra höfunda ritninganna fornu, og allar þær bœkr,
er mapg-endrtekinn og með öllu ótvíræðr. Þess er eng-
inn kostr að rýra álit gamla testamentisins, svo að ekki
sé um leið rýrt álit Jesú og þeirra, sem með honum voru
uppi forðum.
Hver sá maðr, sem gott skyn vill geta borið á þau
eða þau ágreiningsmál útaf biblíunni og líta á þau með
sanngirni, veúðr fyrir hvern mun að gjöra sér sem mest
far um að skilja muninn á gömlu kenningunum og nýju
kenningunum. Sérstaklega verðr sá maðr að ná sterku
skilningshaldi á þeim sannleik, að í nýju kenningunum
er svo litið á menn gamla testamentisins og nýja testa-
mentisins, að þeir hafi jafnaðarlega rangt fyrir sér, er
þeir shýra frá atburðum. Þar er eini verulegi munrinn
á gömlu kenningunum og þeim nýju; líka það verða all-
ir vel að láta sér skiljast.
Sumir þeirra manna, er rita fyrir almenning, bæði
blaðamenn og aðrir, munu til þess búnir að neita þessn;
það teljum vér víst. En þeir af talsmönnum nýju stefn-
unnar, sem nokkum sjálfstœðan lærdóm hafa til að bera,