Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1912, Blaðsíða 16

Sameiningin - 01.03.1912, Blaðsíða 16
12 Hr. ÞÓRHALLR biskup BJARNARSON skýrði frá því í blaði sínu frá fyrsta Júní síðastl ár, að prestr nokkur á Þýzkalandi, Jatho að nafni, væri undir rannsóknarrétti fyrir kenningar sínar. Blöð þau, sem á móti presti voru, kallaði biskup rœgiblöð, og gjörði til- raun til að sanna lesendum blaðs síns, að þau væri það. með því að birta samtímis vitnisburð prests um trú hans. Svo er aftr í sama blaði, 1. Nóv. sama ár, skýrt frá því, að prestr hafi verið dœmdr frá embætti; en að dóm- nefndin hafi ekki annað getað gjört, af því sem á milli fór liennar og prests. Biskup er þá kominn á annað mál. Hann kannast við, að vitnisburðr prestsins fyrir réttinum hafi réttlætt dóminn, og gefr með því í skyn, að hann sjái, að vitnisburðrinn, sem hann hafði birt og ís- lenzkir lesendr áttu eftir að dœma, hafi ekki verið á- byggilegr, þótt hann sneiði hjá því að minnast nokkuð á það; en getr ekki stillt sig um að minnast þess, prestin- um til málsbóta, að því er virðist, að „margir helztu guðfrœðingar Þýzkalands“ hafi andmælt dóminum. Það er skringilegt þetta: „helztu guðfrœðingar Þýzkalands!“ Það er nokkurskonar fáni þeirra trú- frœðilegn „nýbragðinganna“ *), mannanna, sem skapi er næst að fussa við öllu kristilega trúfrœðilegu, nema því, sem mest er að nýja bragðið. Manni dettr ósjálfrátt í hug til samanburðar, hvernig „srnáu biskuparnir“ og ininniháttar frœðimennirnir á Gyðingalandi forðum muni flúið hafa undir fald „höfuð-biskupanna“ og frœðimeistaranna og réttlætt afstöðu sína gegn boðskap postula Krists með því, að „helztu frœðimenn G-yðinga- lands“ andmæltu. Þórhallr biskup og þeir, sem eru á sama „spena“ og hann, mega því vita, að vér, sem heldr kjósum það með „gamla bragðinu“, lútum ekki lotning- arfyllst „lielztu guðfrœðingum Þýzkalands“, er þeir svo kalla., eða dáleiðumst óðar og nöfnum þeirra er *) Biskupinn sjálfr hefir gefiS tiléfni til nýgjörvingsins meS því að tala um ,,nýja bragS“ aS prédikunum, sem honum þðttu svo lyst- ugar og hann mælti meS svo sterklega N. S. þ.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.