Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1912, Qupperneq 20

Sameiningin - 01.03.1912, Qupperneq 20
i6 Plaintiffs’ attorneys may draw findings accordingly and order for judgment. Dated, this lOth day of February, A. D. 1912. CHARLES F. TEMPLETON, Judge. ------0------ NOKKRAR ATHUGASEMDIR, um það, livílíkr leyndardómr er fólginn i píslarsögu drott- ins Jesú Krists. Eftir hr. Svein Sölvason. Á sögu guöspjallanna sést, að Jesús gekk útá braut kvala sinna með stilltu og hugrökku geði. Um það ber vott öll framkoma hans og samtal við lærisveinana við kvöldmáltíðar-borðið, skilnaðar-rœð- an, og síðast bœnin til hins himneska föður áðr en hann gekk útí grasgarðinn. En hvað mœtir honum þar? Þegar hann að vanda er að biðjast fyrir, rís upp í sál hans hið mesta hugarstríð, sem nokkur maðr á þessarri jörðu hefir orðið að þola. Hví varð hann, sem aldrei hafði syndgað, að þola þetta? Eyrir syndir vorar, mann- anna, hlaut hann að verða fyrir þeirri raun. Þetta kvalastríð gekk svo nærri honum, að þrisvar bað hann föður sinn himneskan vægð- ar — föðurinn, sem hafði lagt á hann þessa kvalabyrði; en réttlæti föðursins gagnvart syndinni var svo ákveðið, að Jesús hlaut að tœma þennan kvalabikar í botn; einungis fékk hann engil frá himnum sendan sér til huggunar. Hér kemr það fram, sem Hallgrímr Pétrs- son segir í Passíusálminum einum, þegar hann er að lýsa synda- sekt vorri samkvæmt lögmálinu: „Óbærileg var allra sekt, eftir því drottinn gekk svo frekt, annaðhvort skyldi uppfyllt það eða mannkynið fortapað.“ Eftir að Jesús hefir gengið gegnum sálarstríðið voðalega í Getsemane gengr hann fram móti óvinum sínum með sinni vanalegu stilliijg og djörfung. Sýnir hann þá, að hann hafði vald yfir óvin- um sínum, þarsem þeir falla til jarðar frammi fyrir honnm, er hann segir þeirn, hver hann sé. Að því búnu lofar hann þeim að hand- taka sig. Hann áminnir svikarann vinarorðum, og bendir honum á ódáðaverk hans; hann beiðist þess, að lærisveinunum sé leyft að fara; hann grœðir þjóninn, sem Pétr særði; allt þetta gjörir haníi meðj vanalegri stilling og alvöru. Úr höll œðstaprestsins talar hann hjartamáli sínu til Pétrs með hinu guðdómlega augnatilliti sínju; konurnar, sem grétu yfir honum á krossgöngunni, huggar hann og áminnir; hann biðr hinn himneska föður sinn að fyrirgefa mönn- unum blinduðu, sem kvöldu hann; hann huggar iðrandi ræningjann, og með því að heita honurn inntöku í paradís birtist hann sem sá, er vald hefir til að fyrirgefa syndirnar. Móður sína munaðarlausa

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.