Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1912, Síða 21

Sameiningin - 01.03.1912, Síða 21
17 felr hann þeim lærisveini sínum, sem hann haföi elskaí öllum heitar; hann skyldi framvegis vera henni í sonar staö. Eftir a'ö hann hafíSi gjört allar þessar ráSstafanir, sem sýndu, að hann var alltaf að hugsa um andlega og líkamlega velferð mannanna, liæöi vina og hatrsmanna sinna, tekr við fyrir honuni píslin afskaplega, sem eng- in mannleg skynjan getr kannað eða ráSiö til fulls. Heídimmt myrkr kemr og stendr yfir í þrjár klukkustundir. Hvernig á myrkri þvi hafi staðið, má ráöa af hrópi Jeoú, er hann í angist dauöans kallar upp: ,,Guð minn ! guö minn! hví hefir þú yfirgefiö mig?“ Hrópið bendir til þess, aö hann hafi þá fundiö til einsog væri hann yfirgef- inn af hinum himneska föður sínum, og væri aleinn, í opnum dauöa, aö stríöa viö hin œgilegu máttarvöld myrkrsins, sem þá aö öllun* líkindum hafa umkringt hann. En er píslarhríö þessarri létti af, og ásjónu fööursins birtist honum aftr, kallar hann sigri hrósandi: ,,Það er fullkomnað !“ og felr svo tafarlaust fööurnum sál sína, sem sýnir, að hann var þá að nýju kominn í sameining viö föður sinrn á himnum. Þegar menn aðgæta píslarsöguna nákvæmlega, hljóta menn að játa, að þar er innifalinn sá leyndardómr, sem dauðlegum mönnum er að mestu leyti óskiljanlegr. Pétr postuli segir, að englana fýsi að skyggnast inní leyndardóm friöþægingarinnar (i. Pét. i, 12J. Má af því ráða, aö postulinn hefir verið þess fullvís, að óskiljanlegr leyndardómr væri fólginn í friðþægingarlærdóminum, sem dauölegir menn fá ekki skilið; það er einungis fyrir trúna að sú vissa getr fengizt, en einn þáttr í þeirri trú er ljós meðvitund um, að maðr þurfi syndafyrirgefningar án eiginnar verðskuldanar, eingöngu af náð drottins. AÐ BIÐJA RÉTT. Eftir hr. Skafta Sigvaldason. ,,Ef þér eruð í mér og mín orð eru í yðr, þá biðjið um hvað sem þér viljið, og það mun veitast yðr“ (Joh. 15, 1). Fyrir hvern mann er tvennt aðallega nauðsynlegt : Eyrst, að læra að skilja boðorð Krists rétt og breyta eftir þeirr, og líka að læra að biðja rétt. Með því móti öðlast maðr lifandi trú á Krist. Mjög víða í bibliunni er að finna bœnir trúar og kærleika samfara auðmýkt og sjálfsafneitun. Hjá Jóh. 15, 1-7 sýnir frelsari vor svo greinilega sem framast er unnt afstööu mannsins við guö. Einsog vínviðargrein getr dáið, svo enginn víngarösmaðr getr lífgað hana við aftr, eins missir maðr þann hœfileik að auösýna kærleik þeim, sem helzt þurfa á kærleik að halda, að eilífu. Hjá Eúk. 13, 6-9 segir frelsarinn oss frá manni, sem enga ávexti fann á fíkjutré; en er hann vildi upphöggva tréð, bað víngarðsmaðrinn hann aö leyfa

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.