Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1912, Page 22

Sameiningin - 01.03.1912, Page 22
i8 trénu aö standa lengr, ef verða mætti, aS það bæri ávöxt. Þótt dœmisaga sú sýni oss aðallega frelsarann biðjandi fyrir mönnunum, þá hefir hún þó einnig stórmikla þýöing fyrir hvern þann, sem á réttan hátt vinnr aS efling guös ríkis. Guö sendir mönnum bæSi meölæti og mótlæti, — meðlæti til að auka góSa ávexti, en mótlæti til að deyða vondar tilhneigingar (1. Kor. n, 32,), glœða auðmýkt (2. Kor. 12, y) og gjöra mann fórnfúsan fyrir þá, sem líða fHebr. 5, 8). Guð agar þann, sem hann elskar. Því aSeins, að maör framberi góðan ávöxt til styrktar þeim, sem bágt á, vinnr maðr hon- um hag meS því aS afnema slíka umvöndun. Sé útlit fyrir, aS tréS verSi upphöggiS, ætti hver maSr aS dœmi Mósesar og Abrahams aS biSja um frest. Eg veit ekki til, aS neitt annaS veiti manni eins sanna gleSi einsog þaS, aS finna síöar ávexti á slíku tré. Enginn • nema sá, sem framber góöan ávöxt, getr fundiS þessa gleSi. HvaS vilt þú leggja í sölurnar? Kirkjurnar hafa meir og minna villzt frá frelsara vorum. Ein er sú spuming, sem öllum öörum spurningum er mikilvægari—þessi: „Hvar verö eg að eilífu?" Því hefir veriS haldið fram af ýmsum, og þaö meö réttu, aS enginn maör geti breytt nákvæmlega eftir öllu, sem fyrirskipaS er í guSs oröi. Kristr hefir boSiS lærisveinum sínum aS afneita sjálf- um sér og leggja allt í sölurnar fyrir guös ríki. Mörgum viröist vera þetta með öllu móti ómögulegt. En Kristr reiknar manni þaS og til réttlætis, ef maör auösýnir þeim kærleik, sem uppfylla þau boSorS, er maSr sjálfr ekki getr haldið, af því aS fyrir þaS kemr í ljós, aS maSr raunar elskar réttlætiö. ^Sjá Matt. 10, 40-42J Er ekki samkvæmt þeim orSum Krists hugsanlegt, aS sá, sem sjálfr ekki getr fullnœgt sjálfsfórnar-kröfunni, geti þó notiö umbunar þeirrar, sem heitin er fvrir rétta afstöSu viS þá, er breyta eftir Jesú einsog segir hjá Matt. 10, 42? Þeir, sem lesa þau orS og finna van- mátt sjálfs sín, en hafa löngun til aS bœta ráS sitt og taka framför- um í kristilegu líferni, munu áreiöanlega finna huggun af þeim orSum. í ,,Sam.“ hefir þegar birzt helmingrinn af skáldsögunni Ben Húr í hinni íslenzku þýSing eftir ritstóra blaös þessa. Og sérprent- an þess sögumáls hefir veriö gefin út í tveim pörtum; hinn fyrri — inngangsþáttrinn, sem nefndr er fyrsta bókin og aö nokkru leyti er skáldrit útaf fyrir sig — kom út 1909, en síðari partrinn — önnur, þriSja og fjórða bókin — rétt fyrir síSustu jól. Þá eru enn eftir fjórar „bœkr“ eöa megin-þættir af sögunni, því hún er öll í átta „bókum“; og er svo ráS fyrir gjört, aS sá síSari helmingr sögunnar allr komi út fyrir lok þessa árs í einu bindi. Úrvals-kaflar af því, sem eftir er af sögu-þýSingunni, veröa lagöir fram fyrir lesendr vora hér í blaSinu; en meira ekki. ÞaS veröa aðeins nokkur sýnis- horn af sögumálinu, sem enn er eftir ókomið út. Fyrsti úrvalskaflinn kemr nú í Marz-blaSinu.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.