Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1912, Side 27

Sameiningin - 01.03.1912, Side 27
23 grafinn, og aö 'hann er upprisinn á þriöja degi samkvæmt ritn- ingunum, 5. og aö hann birtist Kefasi, síSan þeim tólf; 6. síð- an birtist hann meir en fimm hundruS brceðrum í einu, sem flestir eru á lífi allt til þessa, en nokkrir eru sofnaSir. 7. SíSan birtist hann Jakobi, þvínæst postulunum öllum. 8. En síðast allra birtist hann einnig mér, einsog ótímaburSi; 9. því eg em siztr postulanna, eg, sem ekki er þess verSr aS kallast postuli, meS því aS eg hefi ofsókt söfnuS guSs. 10. Bn af guðs náð em eg þaS, sem eg er, og náð hans við mig hefir ekki orðið til ónýtis, heldr hefi eg erviðað meira en þeir allir, þó ekki eg, heldr náð gtiðs með mér. 11. Hvort scm það þvi er eg eða þevr, þá prédikum vér þannig, og þannig hafið þér trúað. Minnistexti: Þennan Jesúm uppvakti guð, og erum vér allir vottar þess — Post. 2, 32. „Og aS hann birtist Kefasi“ (3. v.J. Kefas fklettrj er nafn þaS, sem Jlesús gaf Símoni. „Pétr“ ('PetrosJ er gríska þýSing- in á því nafni. Fagnaðarerindi það, sem Páll boðaði: 1.—4. v. Hér setr Páll fram í fáum, skýrum dráttum aSal-efni fagnaSarerindísins: (1) „Kristr dó vegna vorra synda“; hann frelsaSi meS dauSa sínum alla þá, er á hann trúa, frá syndumi þeirra. (2) „Hann var grafinn“, og meS honum er synd vor, sekt vor, grafin; hinn gamli maSr vor grafinn, ef vér göngum honum á hönd. (3) „Hann er upprisinn“, og hefir þarmeS sannaS guSdóm sinn, og ódauSleik vorn. Allir trúaSir eiga aS deyja meS Kristi, verSa grafnir meS honum og rísa upp meS honum ('Róm. 6, 4. 11—13J. Vissan fyrir því, að Kristr er upprisinn: 5—8. v. Sönnun- in, sem hér er gefin fyrir upprisu drottins vors, er svo sterk, aS allir kristnir menn ætti aS taka vel eftir henni: Fyrst og fremst neitar enginn frœSimaSr því — jafnvel ekki svæsnustu ‘kritík- armenn’—, aS Páll postuli hafi ritaS þennan pistil. BréfiS er ekki falsaS. ÞaS er ritaS af nianni, sem lagSi allt í sölurnar, og sjálfan sig meS. fyrir trúna á upprisu Krists, og þaS sýnir oss sannanimar: fimm hundruS menn, flestir á lífi, heyrnar- og sjónarvottar, og margir þeirra píslar-vottar, aS upprisu Jesú. Og Páll er sjálfr einn af þeim. Og þegar upprisunni er neitaS, skírskotar Páll til vitnisburSar þessarra fimm hundruS brœSra. Ef hann fór meS lygi, þá hlaut sú lygi aS vera bæSi heimskuleg og óskammfeilin. Álit Páls á gildi sjálfs sín: 9.—11. v. Páll finnr ætíS til ó- verSugleika sjálfs sín, gleymir því aldrei, aS hann hafSi ofsókt söfnuS guSs. NáS guSs varS ekki til ónýtis á honum, af þtví hann vann einsog hann vann. NáS guSs er ekki gefin oss 1 stað krafta vorra, heldr til aS glœSa þá og styrkja. Lexía 14. Apríl: Notkun hvíldardagsins — Mark 2, 23—3, 6. 2, 23. Og svo bar viS, aS hann fór um sáSlönd nofckur á hvild-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.