Nýi tíminn - 17.10.1946, Qupperneq 8

Nýi tíminn - 17.10.1946, Qupperneq 8
Ræða Áka Jakobssonar í út- varpsumræðunum um herstöðva- samninginn er á 2., 6. og 7. síðu. TIMINN Harmsaga smáríkis í viðureign við heimsvaldasinnað stóróveldi, birtist á 3. síðu. Reykvíkingar krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu i á útifundinum 4. okt. 1946 i 1 sumar hefur Slýsavarnafélag íslancls unnið að því að koma upp skipsbrotsmannaskýlum með ströndum lands- ins, og mun því starfi vcrða haldið áfram, einkum á Horn- ströndum, þar sem byggðin er að leggjast þar í auðn. — Fer hér á eftir frásögn Clysavarnafólagsins af þessum f ramkvæmdum: Þar sem útkjálkar landsins eru nú svo að segja að leggast í auðn, hefur Slysavarnafélag íslands afráðið að fjölga mjög skipsbrotsmannaskýlunum í kringum strendur landsins. Á síðastliðnuári var hafin smiöi á nýjum skipabrotsmannaskýlum að Fossafjöru og Nýjaósi, sem nú hafa verið útbúin að vistum ;og eru tilbúin til notkunar. Þá var og eyðibýlið, liið forna prestssetur að Þönglabakka í Þorgeirsfirði tekið á leigu af ríkinu, dubbað upp á bæjarhús- ið, sem uppi stóð og komið þar fyrir vistum og fatnaoi. Nú í sumar hefur verið unnið að því að lcoma upp nýjum vista birgðum í Naustavík við Skjálf- andafljót. Látrum í utanverðum Eyjafirði og í Hvanndölum milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar er verið að láta reisa nýtt skýii. Allir þessir staðir eru nú auöir af fólki; bíður þar nú auðn cg ömurleiki sjóhraktra manna ef Slysavarnafélagið væri ekki á verði og reyndi að bæta úr þessu óviðunandi ástandi eftir beztu getu. I hinni afskekktu byggð í Héðinsfirði hefur Slysa- varnafólagið unnið að því að koma upp talstöð, svo að sjó- menn er þar leita hælis í óveðr- um geti látið vita af sér og þann ig létt hugraun af aðstandend- um sínum heima. Eldur í Kaupinhafn Framh. á 7. síðu. minna en titillinn gefur hug-' boð um. En hvorttveggja þetta er í raun réttri miklu' minna atriði þegar litið er á allt verkið í heild sinni, og1 það skyldi hver maður geraj sem les síðustu bókina, því að þá en ekki fyrr verða all-j ir megindrættir verksins 1 jós- J ir og heildarsvipur þess rís eins og voldugt listaverk, sterkt og heilsteypt. Að síðustu ein hnúta: Það er með öllu óverjandi, þó að slíkt sé mikill siður á landi hér, að bók sem þessi, eftir öndvegishöfund Islendinga, sé send á markaðinn án þess1 að aðstandendum hennar hafi tekizt að hafa betri hemil á prentvillupúkanum. Jakob Benediktsson Deildir félagsins víðsvegar um landið, og þá sérstaklega kvennadeildarinnar, hafa unnið að þes?--;m málum með ráðum og dáð. Þá er byggoin á Hornströnd- um alveg að leggjast niður. Síð ustu íbúamir frá Hornvík fluttu þaðan í haust. Telur Slysavarna félag Islands að þarna verði að koma upp kerfisbundnum skips brotsmannahælum til öryggis á þessari hættulegu og eyðilegu strönd, og er félagið nú að senda þangað fatnað, ljósmeti og vistir á þrjá staði: Fljótavík, Hælavík og Hornvík, og mun í vetur verða reynt að notast við þau hús, sem þar eru fyrir, og hafa eigendur Atlastaða í Fljóta vík og Höfn í Hornvík góðfús- lega veitt afnot af húsum sínum í þessu skyni. 1 Hælavík eru rík- isjarðir og hyggur félagið að fá þær leigðar til þessara afnota og jafnvel einnig ríkisjarðirnar í Barðsvík og Smiðjuvík, en þar em nú engin hús lengur uppi- standandi. , i Ifaiidtoék fyr— ir Jeppaeig— eaadiir keisaÍM m t i Leiðbeimngai; im við- gerSi? ©g viðhald . Nýlega kom í bókaverzlanir handbók fyrir notendur jepva bifreiða. Innihald hennar eru leiðbeiningar um viðgerðir og viðhald þessarar bílategund- ar, enda heitir hún Jeppabók- in. Er hér um að ræða þýð- ingu á ameriskri bók, sem jeppaverksmiðjurnar hafa gefið út. Mun hún vera hin fyrsta sinnar tegundar, sem þýdd er og gefin út á Is- lenzku. Bókin er nákvæm lýsing á gerð og samsetningu jepp- anna, og fylgja 155 tölusettar myndlr. Geta notendur bif- reiðanna pantað varahluti eft ir leiðbeiningum bókarinnar. Ákveðið hefur verið, í sam- ráði við Nýbyggingaráð og Búnaðarfélag íslands, að senda öllum e'gendum jeppa- bifreiða þessa bók, en auk þess verður hún notuð sem kennslubók á námskeiði fyrir jeppabílstjóra, sem hefst 20. þ. m. á vegum h.f. Stillis, er sér um sölu þessarar bílateg undar hér á landi. Útgefandi' Jeppabókarinn- ar er Tækniútgáfan í Reykja- vík, en þýðandi Glssur Ó. Er- lingsson. Hafa útgefendumir hug á að gefa út fleiri bækur um sama efni, þar sem tekn- ar væru til meðferðar aðrar bílategundir. Telur þýðand- inn þó örðugt verk að ís- lenzíka bók sem þessa, vegna hinna mörgu tækniyrða, og Skal enginn dómur á það Iagður hér, hvemig honum hefur tekizt það verk. Fyrir rúmu ári minntist þjóðin þess skálds sem hafði verið íslenzkri alþýðu hjartfólgnast allra skálda í rúma öld. Hans var minnzt með mikilli viðhöfn, cins og bezt hæfði þeim sessi sem ljóð hans hafa hlotið í huga íslendinga, en af slíkri viohöfn hafði hann sjálfur haft minnst kynni meðan hann lifði. Það er ekkert efamál að vanmat íslenzkrar höfðingja- stéttar á hæfileikum hans leiddi hann í gröfina langt fyrir aldur -fram. Meðan hann vann að náttúrufræðirannsóknum sínum og orti fegurstu ljóð sín átti hann við mjög kröpp kjör að búa. Vetur eftir vetur svalt hann heilu hungri, var klæðlítill og hrjáður, heilsuveill af vosbúð og illu atlæti Von- ir hans um athafnamöguleika brugðust ýmist eða rættust óverulega. I basli sínu gerðist hann drykkfelldur, og íslenzk- ir fyrirmenn litu á hann sem óme nni og ræfil. Örlög Jónasar Hallgrímssonar og dauði hans er liarmleikur; þessi ástmög- ur íslenzkrar alþýðu var hrjáður í hel af samtíð sinni. „Og þó —. Sú böðulshönd, sem höggið greiðir, hún hæfir aldrei það, sem mest er vert, því hvert eitt skáld til sigurs líf sitt leiðir, hve lengi og mjög sem á þess hlut er gert.“ Jónas IJallgrímsson hefur leitt líf sitt til sigurs Játinn. Ekkert skáld íslenzkt er jafn lifandi og hann enn þann dag í dag; hann er snar þáttur þessarar þjóðar. En það er gömul saga, að ef viðnámsöflunum í þjóðfél. rnistakast böðulsverk sín, þá grípa þau til nýrra ráða. Þá taka þau þann kost að hampa þeim mest sem þau óvirtu fyrr reyna með því að slæva vopn hans, gera hann að f jarrænum dýrlingi í stað þátttakanda i atburðum líðandi stundar, reyna að beita minningu hans til ofsóknar við önnur skáld. Óhrjálegt dæmi um slíkt eru aðferoir Jónasar Jónssonar. Ár um saman hefur hann ofsótt íslenzk skáld, beitt þau fjár- hagslegri kúgun, svívirt þau í ræðu og riti. Á sama tíma hefur hann þótzt vera forsvarsmaður látinna stórskálda, þótt hann væri reyndar að leika sama leikinn og þeir sem ofsóttu Bólu-Hjálmar, óvirtu Jónas Hallgrímsson og drápu Sigurð Breiðfjörð úr hungri. Loddaraleikur hans með jarðneskar leifar Einars Benediktssonar er al- þjóð rninnisstæður. En því má eltki gleyma að Jónas Jóns- son er ekki einn um þennan leik, íslenzk yfirstétt er honum fylgispök og samvirk. * Fyrir skömmu ætlaði íslenzk yfirstétt að taka upp lodd- araleik sinn að nýju. Maður var sendur til Kaupmanna- hafnar til að grafa rotnuð bein Jónasar Hallgrímssonar upp úr fátækrakirkjugarðinum, þar sem þau höfðu hvílt í rúma öld, en síðan átti að urða þau í einkakirkjugarði Jón- asar JónssOnar á Þingvöllum. Þar ætlaði íslenzk yfirstétt að safnast saman til ,,virðingar“ við það skáld sem stétt- arbræður þeirra höfðu hrjáð til dauða fyrir rúmri öld. Þar ætluðu hinir 32 að halda grátklökkar ræður um ágæti íslenzkrar menningar yfir beinum fyrsta söngvara ís- lenzkrar sjálfstæðisbaráttu. En loddaraleikurinn mistókst fyrir tilstilli geðbilaðs manns og varð að einu því ógeð- felldasta hneyksli sem yfir þessa þjóð hefur dunið. Og það er ekki hinn geðbilaði maður sem hneykslið hefur framið heldur þeir fulltrúar siðlausrar, menningarsnauðr- ar yfirstéttar sem ætluðu að nota látið þjóðskáld sér til *' • upphefðar. ★ Hæddur, hrakinn og smáður af yfirstétt landsins orti Jónas Hallgrímsson ódauðleg ljóð handa íslenzkri alþýðu. Rúmum hundrað árum eftir lát hans er grafarró hans raskað af samskonar yfirstétt og ofsótti hann og reynt að nota bein hans til pólitískra bellibragða. Mál er að slíkum fólskuverkum linni.

x

Nýi tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.