Prentarinn - 01.01.1970, Blaðsíða 4

Prentarinn - 01.01.1970, Blaðsíða 4
PRENTARINN Blað Hins islenzka prentarafélags 48. árgangur 1.—4. tölublað 1970 Ritstjórar: Guðjón Sveinbjörnsson Hauhur Már Haraldsson Prentsmiðjan Hólar hf. Efnisyfirliti Dagur í Salford . 2 Jón Þórðarson áttræður . 5 Kári Sigurjónsson . 6 Útbreiðsla prentlistarinnar . 7 Atvinnuöryggi . 11 Blöðin og sjónvarpið . 12 Styrkir sera iðnaðarmenn hagnýta sér ekki sem skyldi . 13 Frá liðnum dögum . 14 Nokkrar bækur og tímarit um prentverk . 16 Forsíðan: Letur teiknað a£ Eric Mourier. Sjá 16. síðu Miðvikudagurinn 21. febrúar var fyrsti dagurinn, sem þær brugðust mér báðar; og þegar sízt skyldi. Vekjaraklukkan sagði stopp — þ. e. a. s. hún þagði raunar, — og hótelstýran ákvað einmitt þennan dag að treysta á það kraftaverk, að ég vaknaði án utan- aðkomandi aðstoðar. Einstök bjartsýnismanneskja! I stuttu máli: ég svaf yfir mig. Þegar ég hafði loks spænt í mig morgunbeikonið og grcipfrúttkokteilinn voru ckki nema tuttugu mínútur þar til ég átti að vera mættur á Viktóríu- járnbrautarstöðina. Og þrátt fyrir þá staðreynd, að neðanjarðarjárnbrautarkerfið í London er hið full- koinnasta sinnar tegundar í heimi hér, þarf maður samt sinn tima til að komast á ákvörðunarstað, ekki sízt, þegar maður þarf að skipta þrisvar um lest á leiðinni, eins og tilfellið var hjá mér í þetta sinn. Þegar ég að lokuni komst á Viktóríustöðina var ekki nema rúm minúta til brottfarartíma lestarinnar til Salford. í Salford eru Bretlandsverksmiðjur Mono- type og þangað var ferð minni heitið, í boði fyrir- tækisins. Skólastjóri Monotypeskólans í London hafði daginn áður afhent mér resept upp á eitt stykki farseðil, annað farrými, á leiðinni London — Salford via Redhill, og átti ég að framvísa því í miðasölunni. Að sjálfsögðu þurfti að vera biðröð við miðasöluna og það stóðst á endum, að ég var kominn að söluopinu, þegar lestin fór — án mín. Úr þessu leystist þó betur en á horfðist. Mér var vísað á aðra lest, sem ég gat tekið og náð með þvi til Salford, með lestarskiptum á miðri leið — í ein- hverju þorpi, sem ég man ekki lengur hvað heitir og sá reyndar ekkert a£ nema brautarpallinn og litla brautarkrá, sem ekki var hægt að fá keyptan bjór í á þessum tíma. Hins vegar gat ég fengið kaffi og fékk ntér það, sem aldrei skildi verið hafa. Þeg- ar frá er skilið te og bjór cr hæfileiki Englendinga til lögunar drykkja til hversdagsneyzlu nrjög tak- markaður. Þeir hafa t. d. einstakan hæfileika til að gera kaffi ódrekkandi. Þannig hef ég harla góða ástæðu til að muna ekki nafn þessa biðstaðar míns. 2 PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.