Prentarinn - 01.01.1970, Blaðsíða 16

Prentarinn - 01.01.1970, Blaðsíða 16
FRÁ LIÐNUM DÖGUM Prentsmiðjupósturinn Mynd þessi er tekin a£ Aðalstræti í Reykjavík iaust eftir aldamótin 1900 og átti að fylgja ljóði Matthí- asar Jochumssonar „Til prentsmiðju íslands". Mynd- in er söguleg heimild úr sögu Reykjavíkurborgar frá því tímabili. Rctt fyrir aftan manninn á myndinni, sem mun hafa verið Jón smali, stóð hinn svonefndi Prentsmiðjupóstur. Hann var áður fyrr kallaður Ingólfspóstur um tíma. Ur Prentsmiðjupóstinum var vatninu dælt í fötur, hellt í tunnur og síðan flutt heim til neytendanna. Þegar prentsmiðjan var flutt úr Viðey var hún staðsett rétt sunnan við liús það sem verzlun B. H. Bjarnason var lengi til húsa í. Prentsmiðjuna starf- rækti Jrar um skeið Einar prentari Þórðarson. Prent- smiðjuhúsið sjálft og pósturinn sjást ekki á rnynd- inni, en stafninn á húsi verzlunar B. H. Bjarnason- ar sést vel. Rétt norðan við það hús stóð Cockhills- hús. Þar var bar og vínveitingar. En vinstra megin götunnar er Breiðfjörðshús (Aðalstræti 8), sem í dag- legu tali var nefnt Fjalakötturinn. Rétt norðan við það var Morgunblaðshöllin reist. Rennan í Aðal- stræti var mjó. Mun Lækjargata, meðan liún var með rennandi læk eftir miðri götu, hafa verið minnst 10—12 sinnum breiðari, eftir því sem ég man bezt eftir frá fyrstu árum mfnum hér í Reykjavík. Það getur verið bæði gaman og fróðlegt fyrir núlifandi kynslóð, Jró einkum yngri hlutann, að vita hvernig borgin leit út fyrir 60—70 árurn. J. Þ. Af blöðum Gunnlaugs O. Bjarnasonar Með hikandi hönd og huga hripa ég þetta á blað. Hvar skal byrja, — ei buga; ég bið drottinn minn um það. Arið 1884, 14. maí, byrjaði ég prentnám hjá Sig- ntundi Guðmundssyni, sein þá var hættur að vera yfirprentari Isafoldarprentsmiðju. Sigmundur hafði árið áður en ég kom til hans sett á stofn nýja prent- smiðju í húsi, sem hét „Merkisteinn". Þegar ég kom til Sigmundar var búið að flytja prentsmiðjuna frá Vesturgötunni — þar var „Merkisteinn" — að Skóla- stræti 3. Það hús átti Einar heitinn Jónsson (spille- mand) og var það vinnustofa hans við trésmíðar. Það var venja á þessum árum, að nemendur voru fyrsta árið látnir vera í alls konar snúningum, sendi- ferðum, s\o sein að sækja handrit, fara með prófark- ir, sækja fisk og stundum kol fyrir heimili húsbónd- ans. — A milli þessara sendiferða átti nemandinn að æfa sig í að þekkja hvar hver einstakur stafur var x stílkassanum, — án þess að fá nokkra tilsögn. Þessi aðferð þótti þá hentugust. Eftir sex mánaða tíma þótti hæfilegt að nemand- inn byrjaði að „setja" smágrein í blað — og það án þess að honum væri sagt neitt til. Smátt og smátt sá nemandinn hve nauðsynlegt var að einbeita huga sínum að efninu í handritinu, svo að hann sleppti ekki úr smáorðum eða heilum setn- ingum, — eða tvisetti. Sigmundur tók upp þá reglu að láta sérhvern nema skrifa nöfn sín við þær grein- ar, sem þeir settu. Þetta reyndist vel og sáum við fljótt hve nauðsvnlegt var að hafa allan hugann við staifið. — Bannað var okkur að skrafa saman. Sigmundur hagaði því þannig að við nemendurn- ir stæðum ekki saman. Hann kom því fyiir á þann hátt að við stóðum við hlið „meistara“-sveinsins Torfa Þorgrímssonar, sem var tengdafaðir Sigmund- ar. Átti Torfi að líta eftir mér og Jóni Einari Jóns- syni, sem allir eldri prentarar kannast við. Ekki get ég neitað því, að okkur nemendunum þótti þetta nokkuð þvingandi, en vænt Jxótti okkur um, Jxegar einhver kom að tala við Sigmund. Oftast 14 PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.