Prentarinn - 01.01.1970, Síða 5
DAGUR
Sagt frá heimsókn
í Monotypeverksmiðjupnap
Eftír Hauk Má Haraldsson
Scð inn i herbergi, þar sem verið er að reyna
setningavélar.
Það fór vissulega ekki á railli mála hvenæi lestin
var komin til Salford. A brautarstöðinni stóð
MONOTYPE stórum stöfum og gengið var beint
af brautarpallinum inn á lóðarflæmi fyrirtækisins.
Skyldist mér á öllu, að Salford væri raunar ekki
annað en þorp starfsmanna Monotype-verksmiðj-
anna með öllum þeim stofnunum og fyrirtækjum
sem þarf í slíkum bæ.
Er mér hafði verið vísað á skrifstofuna hitti ég
þar fyrir hr. Lewis Florio, en hann var þá Norður-
landaagent fyrirtækisins. Hann kynnti mig fyrir
þremur gestum, sem ekki höfðu sofið yfir sig, Spán-
verja og tveimur Frökkum. Framburðareinkenni
þessara tveggja tungumála komu þegar í veg fyrir
að ég gæti lagt nöfn þeirra á minnið. Spánverjinn
hafði verið þrjá mánuði í skólanum og átti eftir
að vera nfu í viðbót. Síðan átti hann að verða alls-
herjar Monotypesérfræðingur á Spáni. Frakkar voru
hins vegar prentarar á ferðalagi og notuðu tæki-
færið til að banka upp á f Salford, Surrey.
Eftir að hafa rætt um daginn, veginn og veðrið
nokkra stund náði Florio í gamlan starfsmann fyr-
irtækisins, og skyldi sá lóðsa okkur um verksmiðju-
húsin. Sagði hann, þ. e. Florio, að sá væri siðurinn
þar á bæ, að er verkamenn höfðu náð ákveðnum
aldri væru þeir leystir frá starfi i verksmiðjunum á
eftirlaunum. Þegar svo kæmu gestir væru þessir
menn kallaðir til leiðsögustarfa gegn aukaþóknun.
Sá sem stýrði för okkar kvaðst hafa starfað hjá
Monotype síðan liann var 14 ára og myndi hann
sannarlega timana tvenna í starfsháttum. Sjálfvirkn-
in væri orðin slík, að dæmi væru þess að rafeinda-
apparat væri nokkrar mínútur að renna til járn-
stykki, sem áður hafði tekið heilan dag — í hönd-
unum — og væri að auki vandvirkara.
í Salfordverksmiðjunum vinna þeir ekki járn-
grýtið i vélarnar — og það virðist vera það eina,
sem ekki er „heimabakað" i framleiðslunni. Virt-
ust mér þarna framleiðsludeildir fyrir hvern smá-
hlut; jafnvel minnstu skrúfur eru smiðaðar þama
og eru þó ekki af afbrigðilegum stærðum.
PRENTARINN
3