Prentarinn - 01.01.1971, Síða 1
Hvað gerir ríkisstjórnin
í haust?
B LAÐ H I N S í S LE N Z K A P RE N TA RA F É LAG S
PRENTARINN
Compugraphic-setningarvél.
Fjórtánda júlí sl. tók ný ríkisstjórn við
völdum á íslandi. Ríkisstjórn, sem
launþegar hafa ástæðu til að ætla, að
sé þeim hliðhollari en fyrrverandi
ríkisstjórn atvinnurekenda og gróða-
spekúlanta. Svo mikið er víst, að fyrsti
mánuður þessarar nýju stjórnar ein-
kenndist af að því er virtist einlægum
vilja til að bæta hag hinna verst settu
i þjóðfélaginu. Á þeim tíma var vísi-
talan leiðrétt um 1,3 stig, sem fyrrver-
andi ríkisstjórn falsaði hana um, með
því að taka ekki inn í hana ýmsar
vörur, sem hækkuðu á verðstöðvunar-
tímabilinu. Lífeyrisbætur hafa hækk-
að um 20—40% auk þess, sem tryggð-
ar eru lágmarksgreiðslur til þeirra,
sem verða að draga fram lífið af slík-
um bótum eingöngu. Sú tekjutrygging
er nú kr. 7000 í stað 4900 áður. Þá
hafa sjómenn fengið í hækkuðu fisk-
verði og endurheimt þeirra hluta-
prósenta, sem þeir voru sviptir í tíð
fyrrverandi rikisstjórnar, 18—19%
launahækkun.
í liaust fara í liönd samningar fjöl-
margra stéttarfélaga. í þeini samning
um reynir fyrst á stöðu ríkisstjórnar-
innar gagnvart launþegasamtökunum.
Stendur ríkisstjórnin utan við vinnu-
deilur? Fá atvinnurekendur nú sem
hingað til að hunza kröfur launþega
og draga samninga á langinn í skjoli
vinveittrar ríkisstjórnar? Þetta eru
tvær þýðingarmiklar spurningar, sem
svarað verður með framkomu ríkis-
stjórnarinnar í komandi samningum.
Það er staðreynd, að raunverulega
frjálsir samningar hafa ekki farið
fram milli atvinnurekenda og laun-
þega hér á landi um langt árabil.
Barátta launafólks hefur eingöngu
verið fólgin í því, að endurheimta
það, sem rænt hefur verið af þvi
milli samninga. Og það er einnig
staðreynd, að kaupmáttur lauiia hetur
rýrnað stórlcga, þrátt fyrir hækkaða
krónutölu fastakaups. Það er því
ekki furða, þótt launþegasamtök horfi
til nýrrar vinstri stjórnar með þá von
í augum, að hún reynist þeirri stefnu
trú, að bæta hag landsmanna, ekki að-
eins í krónutölu heldur einnig í reynd.
Talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa
haft að orði, að vinnufriður sé grund-
vallarskilyrði fyrir bættum hag ríkis-
ins. Orð eru ekki nægileg fyrir laun-
þegastéttirnar. Gjörðir eru það, sem
spurt er um. Vilji ríkisstjórnin vinnu-
frið, verður hún að vinna fyrir hon-
um. Geri hún það, er ég ekki i nokkr-
um vafa um að samtök launafólks
muni taka höndum saman við hana.
hm.