Prentarinn - 01.01.1971, Blaðsíða 8

Prentarinn - 01.01.1971, Blaðsíða 8
að ráða frekari starfskraft starfsmanni félagsins til aðstoðar um eins árs skeið." Samþykkt var samliljóða að veita Iðnnemanum, málgagni Iðnnemasambands íslands, 5 þúsund króna styrk í samræmi við bréf sem borizt hafði frá rit- nefnd blaðsins. I>á las formaður tillögu, sem lá fyrir fundinum frá Jóni Otta o. fl. um að fela fulltrúum HÍP í stjórn Lffeyrissjóðs prentara að leggja til við sjóðs- stjórnina, að öll bankaviðskipti sjóðsins verði færð frá Búnaðarbankanum til Alþýðubankans. Tillög- unni var vísað til stjórnar HÍI’ eftir nokkrar um- ræður. Kosnir voru í laganefnd þrír menn: Ellert Ág. Magnússon, Óskar Guðnason og Stefán Ögmundsson. I>á lagði formaður fram tillögur frá stjórn HÍP, fasteignanefnd, orlofshcimilisnefnd og Byggingarfé- laginu Miðdalur: Tillaga til framhaldsaðalfundar HÍP 20. maí 197] frá stjórn HÍP, Orlofsheimilisnefnd, Fasteignanefnd og stjórn Byggingafélagsins Miðdalur. Á sameiginlegum fundi þessara aðila þriðjudaginn 18. maí 1971 var samþykkt að leggja til við félagið eftirfarandi tillögur varðandi sumarbústaða- og or- lofsheimilissvæðisland HÍP í Laugardal. a) Að heimila veg þann og brú yfir Ljósá, sem lagður hefur verið eftir bakka Skillandsár í bústaöa- hverfi, og leggja fram fé til þess að ljúka honum. b) Lagður verði vegur frá Miðdalsbrú á brú Fjall- skilavcgar eftir hlíðinni og á vöðum yfir Ljósárnar og í efra bústaðasvæði við svonefndar Þorleifstóftir. c) Skipuleggja skal svæði bústaðahverfisins með tilliti til þeirra almennu þarfa sem nauðsynlegt er að fullnægja á komandi árum, og að nýtt bústaða- hverfi verði skipulagt innan heildarskipulagsins og ofan við gamla bústaðahverfið. d) Gera skal ráðstafanir nú í sumar til þess að undirbúa tjaldsvæði í kjarrinu neðan neðra bú- staðahverfisins. e) Að stjórn og Fasteignanefnd IIÍP verði falið að leita eftir fjármagni til þessara framkvæmda með lánum til lengri tíma, og rannsaka hverja styrki liægt verður að fá til þeirra. Orlofsheimilisnefnd HÍP Stjórn HÍP Fasteignanefnd HÍP Stjórn Byggingarfélagsins Miðdalur. Urðu miklar umræður um tillögurnar og málefni Miðdals í heild, en að þeim loknum voru tillögurn- ar bornar upp í einu lagi og samþykktar. Var nú dagskráin tæmd, en Þorsteinn Vetuiliða- son varaform. Félags bókagerðarnema, ávarpaði fundarmenn. Magnús E. Sigurðsson ritstjóri Iðn- nemans tók einnig til máls og þakkaði HÍP fyrir stuðninginn við Iðnncmann. Sumarbústaðahverfi í uppsiglingu Svipazt um með byggingarfræðingum og tveim formönnum á fyrirhuguðu sumarbiistaðasvæði í Miðdal. liyggingarjrrvðingarnir ]ón Róbert (t.v.) og Jón Kal- dal athuga kort sitt. — Hvernig er jtað með Miðtlalinn? Á ekki að jara að úthluta lóðum undir sumarbustaði jtar? Á að láta sitja við þá bústaði, sem komnir ertt? Þessar spurningar og aðrar þeim skyldar hafa leit- að á margan prentarann og þ. á m. undirritaðann. .4 framhaldsaðalfundi félagsins 20. maí sl. var sam- þykkt tillaga frá stjórn HÍI’, Oi'lofsheimilisnefnd, Fastcignanefnd og stjórn Byggingafél. Miðdalur, um frekari framkvæmdir í Miðdal (sjá grein Lúthexs Jónssonar um aðalfund HÍI’). í framhaldi af þeirri samþykkt leitaði ég á fund formanns HÍI’, Þórólfs Daníelssonar, og spui'ði hann um málið. — Jú, það stendur einmitt til um þessar mundir að fá sérfræðinga til að skipuleggja hverfi þar eystra, sagði Þórólfur. — Við höfum fengið byggingar- fræðinga frá Staðli til að fara austur og kynna 6 PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.