Prentarinn - 01.01.1971, Blaðsíða 20

Prentarinn - 01.01.1971, Blaðsíða 20
Athyglisverð nýbreytni skemmtinefndar Skemmtinefnd Prentarafélagsins tók upp á þeirri nýbreytni fyrir síðustu kosningar, að boða á fund félagsmanna fulltrúa þeirra flokka, sem fram buðu í alþingiskosningunum 13. júní sl. Sendi nefndin flokkunum bréf, þar sem óskað var eftir einum full- trúa frá hverjum flokki. Þrír flokkar sendu fulltrúa og voru það Alþýðuflokkurinu, Alþýðubandalag og Framsóknarflokkurinn. Var fundurinn lialdinn fimmtudaginn 27. maí og setti Haukur Már, for- maður skemmtinefndar hann. Síðan fluttu fulltrúar flokkanna framsöguræður og sátu fyrir svörum fundarmanna. Heldur var fundurinn fámennur, en umræður urðu nokkuð fjörugar og fengu fulltrúar flokkanna ýmsar nærgöngular spurningar við að glíma. Vonandi verður hægt að halda þessari starf- semi áfram, enda er ólíkt aðgengilegra fyrir félags- menn HÍP að kynna sér stefnu flokkanna svona f návígi við fulltrúa þeirra, heldur en að lesa meiia og minna útþynntar hugleiðingar í flokkamálgögn- um. Efri myndin cr af fulltrúum flokkanna og fundarstjóra. Frá v.: Jón Snorri Þorleifsson (Al- þýðubandalag), Eggert G. Þorsteinsson (Alþýðu- flokkur), Haukur Már, fundarstjóri og Baldur Ósk- arsson (Framsóknarflokkur). A neðri myndinni sjást fundarmenn sem voru óþarflega fáir, cn létu vel yfir fundinum. 18 PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.