Prentarinn - 01.01.1971, Blaðsíða 5

Prentarinn - 01.01.1971, Blaðsíða 5
Aðalfundur HIP 1971 sumarbiistað Kjartans við hæfilegu verði, og lagði því formaður fram eftirfarandi tillögu: „Aðalfund- ur HÍP haldinn 25. apríl samþykkir að taka boði skiptaráðandans í Reykjavík um kaup á sumarbú- stað Kjartans Ólafssonar á matsverði." Var hún samþykkt samhljóða. Þá var samþykkt tillaga frá Stefáni Ogmundssyni um að stjórnin óskaði eftir því að teknar yrðu upp samningaviðræður milli FlP og HÍP um endurskoð- un á reglugerð fyrir Lífeyrissjóð prentara. Skyldi sú endurskoðun unnin af stjórn, laganefnd og fulltrú- um HÍP í lífeyrissjóðsstjórninni og síðan borin und- ir félagsfund. Þá var lýst stjórnarkjöri. Tvær tillögur bárust um menn í stjórn og var kosið að Hverfisgötu 21. Þessir menn voru kjörnir: Formaður: Þórólfur Daníelsson Varaform.: Óðinn Rögnvaldsson Ritari: Lúther Jónsson 2. meðstj.: Gísli S. Guðjónsson 3. meðstj.: Jón Otti Jónsson Varastjórn: Ritari: Gestur Arnason Gjaldk.: Baldur Aspar 1. meðstj.: Valgeir J. Emilsson 2. meðstj.: Þorsteinn Marelsson 3. meðstj.: Jónas R. Guðmundsson. í trúnaðarmannaráð voru kjörnir: Jón Ágústsson, Árni Guðlaugsson, Björgvin Ólafs- son, Ellert Ág. Magnússon, Stefán Ögmundsson, Ósk- ar Guðnason, Jón Már Þorvaldsson, Helgi Hóseas- son, Kári B. Jónsson, Ingimundur B. Jónsson, Guð- mundur Kr. Aðalsteinsson. Varamenn í trúnaðarmannaráð: Torfi Ólafsson, Ásgeir Gunnarsson, Hilmar Ey- steinsson, Óskar Sampsted, Jón B. Magnússon. Endurskoðendur voru kjörnir Helgi Hóseasson og Birgir Sigurðsson. Til vara Óskar Sveinsson og Ingi- mar Jónsson. Kjósa átti ritstjóra Prentarans, en þeim ]ið var vísað aftur fyrir liðinn lagabreytingar, vegna þess að lagabreyting lá fyrir aðalfundinum, sem varðaði rit- stjóra Prentarans. í fasteignanefnd var endurkjörinn Sigurður Guð- geirsson. í skemmtinefnd voru kjörnir Haukur Már Har- aldsson, Ingvar Hjálmarsson, Trausti Finnbogason, Jóhannes Harðarsson og Rafn Árnason. Pjetur Stefánsson var kjörinn fulltrúi HÍP i stjórn Byggingarfélagsins Miðdalur. í bókasafnsnefnd voru kjörnir Ólafur Björnsson og Jón Ágústsson. Enginn garðstjóri var kosinn og talið ráðlegast, að Dói hefði það embætti óformlega áfram á sinni könnu. Þá var samþykkt tillaga um, að skipting gjalda milli sjóða félagsins yrði áfram í sama hlutfalli og verið liefur og ennfremur, að lieimilt væri að skipta heildarupphæð innkominna félagsgjalda 1 árslok. Er hér var komið sögu var samþykkt tillaga um að fresta aðalfundi og halda honum áfram innan fjögurra vikna. Framhaldsaðalfundur HÍP var haldinn í Félags- heimili prentara fimmtudaginn 20. maí. Fyrsta málið á dagskrá var lagabreytingar. Fyrir framhaldsaðalfundinum lágu þessar breytingartil- lögur frá laganefnd: Grein 23. 1 lok greinarinnar komi: „Reikningar félagsins skulu endurskoðaðir af löggiltum endur- skoðanda og fylgist hann með bókhaldi og fjárreið- um þess.“ Grein 28. Upphaf greinarinnar hljóði svo: „Aðal- fund skal halda á tímabilinu marz-apríl ár hvcrt ...“ Grein 31. Upphaf hennar hljóði svo: „Eigi síðar en mánuði fyrir aðalfund skal stjórnin láta fram fara stjórnarkosningu. Úr stjórninni ganga annað árið þrír menn, hitt árið fjórir menn, eftir aldri þeirra í stjórninni: formaður, ritari, 2. og 3. með- stjórnandi eða varaformaður, gjaldkeri og 1. með- stjórnandi. Skulu þeir ..." o. s. frv. Grein 32. Upphaf greinarinnar orðist svo: „Þessar nefndir skulu kosnar á aðalfundi" — og við bætist: „ ... og skulu þær vinna í nánu samráði við stjórn félagsins." Grein 41. Burt falli síðasta sctningin: „Stjórnin skal halda fund ...“ o. s. frv., en í lok greinarinnar PRENTARINN 3

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.