Prentarinn - 01.01.1976, Blaðsíða 1
PRENTARINN
Magnús J. Matthiasson við Ijóssetningartcekin sem Prentsmiðjan Oddi hefur nýlega tekið
i notkun.
Ný vinnulöggjöf
Sjaldan eða aldrei hefur ríkisvaldið
gengið jafn langt f að skerða lífskjör-
in og nú. A þeim tveim árum sem lið-
in eru síðan stjórnarflokkarnir tóku
við völdum, hefur launafólk upplifað
örari og meiri kjaraskerðingar en
dæmi eru til ú svo stuttum tíma.
En ríkisstjórnin ætlar ekki að láta
sér nægja að gera launafólki nær
ókleift að lifa í landinu sökum dýrtíð-
ar, hún hyggst bæta um betur. í ráði
er að setja nýja vinnulöggjöf. Búið er
að útbúa frumvarp að þessari nýju
löggjöf, og yar það gert án nokkurs
samráðs við verkalýðshreyfinguna.
Hins vegar virðist svo, að atvinnu-
rekendur hafi verið hafðir með í ráð-
um, og það svo um munar. í hinu
nýja frumvarpi er lagt til að þau
lágmarksréttindi sem launafólki og
samtökum þess eru tryggð í núgild-
andi vinnulöggjöf séu ýmist afnumin
eða stórlega skert. Sem dæmi um þetta
má nefna:
Opnuð er leið til að svipta einstök
félög verkfallsrétti. Réttur til samúð-
arverkfalla er skertur. Ráðherra og
sáttasemjara er gefin heimild til frest-
tinar á boðuðum verkföllum. Sátta-
semjara er gefin heimild til að láta
félög sem f verkfalli eru greiða sam-
eiginlega atkvæði um sáttatillögu. Að
síðustu skal á það bent að hin nýja
löggjöf hnígur öll í þá átt að skerða
réttindi einstakra verkalýðsfélaga og
færa Jiatt i hendur einnar stjórnar.
Það kostaði verkalýðshreyfinguna
langa og harðvítuga baráttu að ávinna
sér þau réttindi, sem hún nú hefur.
Þegar núgildandi vinnulöggjöf var sett
árið 1938, var haft samráð við verka-
lýðshreyfinguna og tekið tillit til
krafna hennar. Nú 40 árum síðar ætla
stjórnvöld að afnema þessi réttindi í
einni svipan. Það er greinilegt hverra
hagsmuna ráðuneyti Geirs Hallgríms-
sonar gætir.
Verkalýðshreyfingin hefur þegar
mótmælt öllum breytingum á núgild-
andi vinnulöggjöf. Ef það dugar ekki
til að hindra áform ríkisstjórnarinn-
ar, verður hún að beita afli samtaka-
máttarins til að hrinda þessari lúalegu
árás á grundvallarréttindi hreyfingar-
innar.
-MES.