Nýi tíminn - 02.11.1956, Qupperneq 12
Arás Breta og Frakka á Egyptaland
er hvarvetna harðlega fordæmd
Þing SÞ býst til að kveða upp áfellisdóm
vfir aðförum nýlenduveldanna
Árásin sem ríkisstjórnir Bretlands og Frakklands hafa látið gera á Egypta-
land hefur orðið til þess að þær standa nú uppi að heita má einangraðar, al-
menningsálitið í heiminum fordæmir aðgerðir þeirra.
Allsherjarþing SÞ átti að koma saman til aukafundar í New York klukkan
tíu í gærkvöldi eftir íslenzkum tíma, og talið var fullvíst að þar yrði með öll-
um þorra atkvæða samþykkt ályktun, sem fordæmi athæfi Bretlands, Frakk-
lands og ísraels gagnvart Egyptalandi. Búizt var við að Bandaríkin, Indland
og Sovétríkin myndu hafa forustu um að brennimerkja hina brezku og frönsku
árásarseggi.
Dulles, utanríkisráðherra búizt við að fulltrúar Breta og
Bandaríkjanna hélt í gærkvöldi Frakka muni í fundarbyrjun
af viðræðufundi við Eisenhower
forseta í Washington til New
York til að taka við forustu
bandarísku sendinefndarinnar á
þinginu. Vitað var, að hann
myndi leggja fram tillögu til
ályktunar, þar sem atferli þess-
ara tveggja helztu bandamanna
Bandaríkjanna væri fordæmt.
1 gær vitnaðist, að Búlgan-
ín, forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, hafði sent Eisenhower
bréf um árásina á Egyptaland.
Bréfið hefur ekki verið birt, en
sagt er í Washington að sovézki
forsætisráðherrann leggi þar til
að Sovétríkin og Bandaríkin
taki höndum saman að stöðva
árásina á Egyptaland og beiti
sér fyrir því að beitt verði til
þess valdi á vegum SÞ ef með
þurfi.
Sépiloff, utanríkisráðherra
Sovétrikjanna, sagði hlaða-
mönnum í Moskva í gærkvöldi,
að af tiltæki Breta og Frakka
gæti það hlotizt, að öll Araba-
ríkin lýstu yfir heilögu stríði
gegn þeim. Ástandið er mjög
alvarlegt, sagði Sépiloff, það
getur liaft mjög óvæntar af-
leiðingar.
Fréttamenn í aðalstöðvum SÞ
sögðu i gærkvöldi, að ljóst væri
að meðal fulltrúanna á þinginu,
sem búizt er við að verði frá
74 ríkjum, af 76 sem í sam-
tökunum eru, ríkti meiri ein-
ing í þessu máli en dæmi væru
til áður. Allar horfur væru til
að Bretland og Frakkland
myndu standa uppi einangruð,
þau gætu ekki vænzt liðsinnis
frá öðrum en tveim eða þrem
samveldislöndum.
Fullvíst má telja, segja
fréttaritararnir, að kveðinn
verður upp á þinginu sundur-
kremjandi áfellisdómur yfir at-
hæfi Breta og Frakka. Þeir
munu eiga um það að velja, að
láta af árásinni á Egypta eða
standa uppi algerlega einangr-
aðir í heiminum.
Helzta von stjórna Bretlands
og Frakklands er að sögn
fréttamanna í London og París,
að takast megi að steypa Nass-
er frá völdum í Egyptalandi áð-
ur en þingi SÞ hefur unnizt tími
til að kveða upp úrskurð sinn.
Á þinginu er ekki um neitt
neitunarvald að ræða og er því
mótmæla því að árásin á Eg-
yptaland sé tekin á dagskrá.
Þegar þau mótmæli komi fyrir
ekki muni þeir ganga af fundi.
Victor Vinde, fréttaritari
sænska útvarpsins í París, sagði
í gær að þar 1 borg létu ráða-
menn sér fátt um hernaðarað-
gerðirnar í Egyptalandi finn-
ast, mestöll athygli þeirra bein-
is að því, sem sé að gerast
í aðalstöðvum SÞ. Franska
stjórnin telji Hammarskjöld,
framkvæmdastjóra SÞ, hinn ó-
þarfasta tvíveldunum og það
hafi komið henni á óvart, hve
harður Eisenhower sé í horn
að taka í þessu máli. Raddir
heyrast um að Frökkum beri
að segja sig úr SÞ.
Frá forustumönnum þjóða og
stórblöðum hvarvetna streyma
yfirlýsingar, þar sem Bretum
og Frökkum er sagt til synd-
anna.
Nehru, forsætisráðherra Ind-
lands, sagði í gær að hann
myndi ekki eftir freklegri árás
en þeirri sem tvíveldin hefðu
nú framið. Frjálsar þjóðir Asíu
og Afríku myndu ekki láta þeim
haldast uppi svo blygðunarlaust
ofbeldi.
r
~\
Innrás á
döfinni
Talið var í gærkvöldi
að innrás brezks og
fransks landgönguliðs í
Egyptaland væri nú
skammt' undan. Flota-
deildir nálgast stöðugt
mynni Súezskurðar úr
norðri og suðri. Búizt
er við að lið af þeim
verði látið ráðast til
landgönguþegar brezk-
franska herstjórnin tel-
ur að hún hafi ráðið
niðurlögum egypzka
flughersins.
Times of India, eitt af þeim
blöðum Indlands sem hliðholl-
ast hefur verið Bretum, segir
að stjórnir Bretlands og Frakk-
lands hafi unnið níðingsverk,
Ieita verði tíl daga Hitlers til
að finna þess líka.
Stjórnir Iraks og Jórdan, sem
eru í hernaðarbandalagi við
Bretland, hafa sent brezku
stjóminni harðorð mótmæli.
Jórdan hefur slitið stjórnmála-
sambandi við Frakkland og
stjórnin þar segist hafa tekið
sambúðina við Bretland til end-
urskoðunar. Hussein Jórdans-
konungur sagði í gær, að öll
arabaríkin ættu að koma til
liðs við Egypta.
Þjóðhöfðingjar, forsætisráð-
herrar og utanríkisráðherrar
Iraks, Irans, Pakistan og Tyrk-
lands, sem eru í Bagdadbanda-
laginu ásamt Bretum, munu
koma saman á fund í Bagdad
að ræða árásina á Egyptaland.
Blöð í öllum þessum ríkjum
nema Tyrklandi fara hörðum
orðum um Breta og Frakka.
Dawn, eitt áhrifamesta blað
Pakistan, segir að Eden og
Mollet séu á góðum vegi að
leggja SÞ í rúst.
Þeir einu sem mælt hafa
stjórnum Bretlands og Frakk-
lands bót eru forsætisráðherr-
ar íhaldsstjórnanna í Ástralíu
og á Nýja Sjálandi.
Árásin á Egyptaland er í
einu vetfangi orðin aðalmálið
kosningabaráttunni fyrir kosn-
ingarnar í Bandaríkjunum. Ým-
is blöð og fréttaskýrendur í
útvarpi taka undir þá stað-
hæfingu Stevensons, frambjóð-
enda demókrata, að stefnuleysi
ríkisstjórnar repúblikana í mál-
um landanna við Miðjarðar-
hafsbotn eigi mikla sök á því,
hvernig komið sé.
New York Times segir, að
stjórnir Bretlands og Frakk-
lands hafi með framkomu sinni
gefið Rússum græðandi plást-
ur á sárin sem þeir hafi hlotið
að undanförnu í Áustur-
Evrópu.
Franska íhaldsblaðið Figaro
segir í gær, að viðleitni Banda-
ríkjastjórnra til að þvinga Bret-
land og Frakkland til að breyta
um stefnu gagnvart Egypta-
landi geti orðið ti! þess
að samstarf Vesturveldanna
splundrist algerlega.
Brezkum og frönskum spresagf-
um rignir yiir egypzkcsr borgir
Nasser boðar algert stríð til síðasta blóðdropa
Síðan síðdegis í fyrradag hafa brezkar og franskar flug-
vélar haldið uppi nær látlausum árásum á borgir og bæi
við Súezskurð og á hinum þéttbýlu óshólmum Nílar.
Sameiginleg herstjórn Breta
og Frakka, sem hefur aðsetur á
Kýpur, segir að árásirnar hafi
það markmið að lama egypzka
flugherinn.
Egypzka stjórnin tilkynnti í
gær, að árásirnar hefðlu þegar
orðið yfir 30 óbreyttum borgur-
um að bana og fórnarlömbunum
fjölgaði með hverjum klukku-
tíma sem liði.
í útvarpsræðu til egypzku
þjóðarinnar sagði Nasser forseti,
að herlög væru gengin í gildi um
allt landið. Hann kvað árás
Breta og Frakka verða mætt
með algeru stríði Egypta til að
verja sjálfstæði sitt og frelsi.
Barizt yrði um hvert þorp. Við
munum aldrei gefast upp, sagði
Nasser.
Herstjórn ísraelsmanna til-
kynnti i gær að lið hennar hefði
sótt fram til Miðjarðarhafs og
einangrað lið Egypta á Gaza-
svæðinu, þar sem 200.000 arab-
iskir flóttamenn frá ísrael haf-
ast við. Einnig kvað hún her
Egypta á Sínaískaga á óskipu-
legu undanhaldi.
Egyptar segjast hinsvegar
hafa molað sóknarfleyga ísra-
elsmanna og gert útaf við fjórð-
ung ísraelska flughersins. Hafi
nú brezkag og franskar flug-
sveitir komiff til liffs við Isra-
elsmenn í bardögunum í eyffi-
mörkinni.
Egyptar tilkynntu í gær, að
í brezk-franskri flugvélaárás
hefði egypzku skipi á leið um
Súezskurð verið sökkt með
þeim afleiðingum, að skurður-
inn hefði lokast. Eins og kunn-
ugt er réttlættu tvíveldin árás-
ina á Egypta með því, að þeim
væri lífsnauðsyn að tryggja ó-
hiridraðar siglingar um Súez-
skurðinn.
Skipstjóri á sænsku skipi,
Kyoto, sem er innlyksa í Súez-
skurði, sagði í samtali við skipa-
eigendur í gær, að af skipsfjöl
hefði verið hægt aS fylgjast með
árás brezkra og franskra flug-
véla á borgina Ismailia.
Nagy lýsir Ungverjaland hluflaust
Mófmœlir sovézkum herflufningum jbongaS
Imre Nagy, forsætisráðherra Ungverjalands, tilkynnti
í gær í útvarpsræöu að stjórn sín hefði sagt landið úr
Varsjárbandalaginu og lýst yfir hlutleysi þess.
Nagy sagði, að hann hefði
tilkynnt Hammarskjöld, fram-
kvæmdastjóra SÞ um úrsögn
Ungverjalands úr Varsjár-
bandalaginu og tjáði honum, að
ungversku stjórnina fýsi að
fjórveldin tækju sameiginlega
ábyrgð á hlutleysi landsins.
I gærkvöldi var tilkynnt í
Búdapest, að Nagy hefði kallað
sovézka sendiherrann á' sinn
fund og mótmælt því, að sov-
ézka hernum í Ungverjalandi
hefði verið sendur liðsauki.
Fréttastofur í Austurríki
héldu því fram í gærkvöldi, að
sovézkar hersveitir væru að
taka á sitt vald hernaðarlega!
mikilvæga staði víðsvegar um
Ungverjaland. Tvær herdeildir
væru að umkringja Búdapest.
Þá sagði i fréttum frá Aust-
urríki, að Nagy hefði ákveðið
að fara þess á leit að auka-
fundur þings SÞ í New York
ræði aðfarir sovéthersiris í Ung-
verjalandi.
NÝI TÍMINN
Fimmtudagur 2. nóvember 1956 — '10. árgangur — 42. tölublað