Nýi tíminn


Nýi tíminn - 25.04.1957, Blaðsíða 1

Nýi tíminn - 25.04.1957, Blaðsíða 1
fi Greiðið Nýja tímann NKaupendur! J Munið að greiða póst- ! kröíur frá blaðinu. "7 Byggingarsjóður hefur verulega þýSlngu fyrir vorcsnlegcs lausn húsnæðismálanna SkyldusparnaSurinn fyrsfa atvarlega viSleitnin aS hjálpa ungu fálki fil aS eignasf þak yfir höfuSiS Tvístígandi afstaða íhaldsins til húsnæðislöggjafarinnar Eg tel frumvarp þetta um húsbyggingamálin skref í rétta átt og til mikilla bóta. Því verður ekki neifað, að með myndun Byggmgarsjóðs ríkis- ins, með 118 milljóna króna stofnfé, er allmyndarlega að verki staðið, og hefur það verulega þýðingu fyrir varanlega lausn þessara mála. Á þessa leið fórust Hannibal Valdimarssyni íélagsmálaráðherra orð, í ýtarlegri og greinagóðri framsöguræðu um nýja húsnæðismálafrumvarpið, við 1. umræðu þess á fundi efri deildar Alþingis fyrir skömmu. Um skyldusparnað ungs fólks, sem frumvarpið kveður á um, sagði ráð- herrann að hann teldi það fyrstu alvarlegu viðleitnina til að hjálpa ungu fólki til þess að eignast þak yfir höfuðið. ferð að úthhita lánum eftir póli- tík! Hannibal benti honum á að einmitt nú væri séð um að full- trúi stjómarandstæðinga sæti i húsnæðismálastjórn, en íhaldið hefði haft þar fulltrúa stjórnar- flokkanna einna. Auk þess væri einmitt nú gert ráð íyrir að settar yrðu fastar regiur um út- hlutun, sem tryggðu að þeir fengju lán, sem mest® þörf hefðu. Kína, Pólland víta kjamorku- i viðbúnað Á fimmtudaginn iauk opinberri heimsókn Cyrankiewicks, forsæt- isráðherra Póliands, til Kína, og var þá birt sameiginleg yfirlýs- ing frá honum og Sjú Enlæ, for- sætisráðherra Kína. Segir þar, að heimsfriðnum stafi háski afl tilraunum heimsvaldasinnaðra ríkisstjórna til að notfæra sér A' bandalagið til að koma upp kerfi kjamorku- og eldflauga- stöðva í Evrópu. Lýst er yfir að núverandí landamæri Póllands og Þýzka- lands séu varanleg, kröfur urnt breytingar á þeim stofni öryggj j Evrópu í voða. :,Ég get vel búizt við því, að emhverjir íelji að þarna séu lagðar þungar kvaðir á unga fólkið. en það er líka jafnframt verið að tryggja því lausn á því vandamáli, sem lengstum hefur verið unga fólkinu hvað erfiðast í skauti, að geta stofnað heimili og eignazt eigin íbúð. Eg er því ekki í nokkrum vafa um það, að það unga fólk, sem nú verður að taka þessa skyldu á sínar herðar, inun verða þakklátt fyrir það að þurfa ekki að horfast í augu við óleysanlegan vanda íbúðarniáls- ins, þegar að því kcmur að njóta ávaxtanna af sparnaðin- tim“. ' íhaldið hvorki hrátt né soðið. Girnnar Thoroddsen talaði af hálfu íhaldsins og hafði allt á homum sér, en var þó hvorki hrár né soðinn um ýmis aðalat- rið; írumvarpsins, var t. d al- —---------------------- Brezkir skip- stjórar dæmd- ir á skírdag Á skírdag dæmdi bæjar- fógetinn á Seyðisfirði í mál- um tveggja brezkra togara- skipstjóra. Hafði varðskipið Þór tekið togarana, Willard frá Grimsby og Kingstone Andaluside frá Hull, að ólög- legum botnvörpuveiðum inn- austan Lónssveitar. Skipstjórarnir voru dæmd- ir í 74 þús. króna sekt hvor til Landhelgissjóðs íslands. Þá var afli skipanna gerður upptækur, svo og veiðarfæri. veg í vafa um hvort hann væri með eða móti skyldusparnaði! Lofaði hann mjög fullkomleik og ágæti úrræða Sjálfstæðis- flokksins í búsnæðismálum, eink- um eftir að byggingafrelsið hófst á ný (Gunnar gleymdi að minna á að það var Sjálfstæðis- flokkurinn sem lét banna fólki að byggja íbúðarhús um árabil, en Hanr.ibal minnti hann á það!) Taldi Gunnar að allt hefði verið efnt sem fyrrverandi ríkisstjóm hefði lofað, það eitt hefði komið til bölvunar í hinu fullkomna kerfi að Framsókn rauf stjórnar- samstarfið á s.l. vori, einmitt þegar átti að fara að ná í nóga peninga til að lána fólkinu' í ræðu sinni lýsti Hannibal rækilega vanefndum ihaldsins, er narraði þúsundir manna til að byrja byggingar en hljóp frá lánakerfinu þannig að allur þorri umsækjenda hafði ekkert lán fengið og miklu minni fyr- irgreiðslu en þeir höfðu ástæðu tíl að vona. jr Gunnar þekkir ekki pólitíska úthlutun! Gunnar var svo óheppinn að ráðast af offorsi á atriði í frum- varpinu, sem tekin eru beint úr núgildandi löggjöf, þeirri af- burða vel hugsuðu löggjöf sem hann var að lýsa, atriði sem Gunnar sjálfur hafði samþykkt! Svo var t. d. um aðstöðu full- trúa Landsbankans í húsnæðis- málastjórn. Gunnar treysti sér meira að segja til að spyrja hvort nú ætti að taka upp þá að- Um allait heim magnast baráttan gegn kjarnorkuvopnunum, framleiðslu þeirra og lilraununi með þau. í Bretlandi hefur baráttan miðað að því að fá brezltu stjórniiia til að hætta við fyrirhugaða vetnissprengingu á Jólaey. Á myndinni sjást þrír brezkir stúdentar með 100 feta langan undirskriftallsta, þar sem þingmcim voru beðnir að beita áhrifum sínum til að koma í veg fyrir sprengingiuia. Bandaríkin hafna íiilögu um síöðvun kjarnasprenginga Kjarnorkukapphlaupinu skal haldið áfram hvað svo sem heilsu manna líður Bandaríkjastjórn mun hér eftir sem hingað til hafna til- iögum Sovétríkjanna um aö tilraunum meö kjarnorku- vopn veröi hætt, sagöi Dulles utanríkisráöherra viö frétta- 'iienn í Washington fyrir skommu. Þegar Dulles var spurður um tillögu sovétstjórnarinnar, um að tilraunum með kjarnorku- vopn verði frestað fyrst um sinn meðan stórveldin eru að í'eyna að koma sér saman um samning sem banni þær fyrir fullt og allt, svaraði Dulles, að afstaða Bandaríkjastjórnar væri sú, að hún gæti ekki lát- ið af tilraunum með kjarnorku- vopn nema áður hefði náðst samkomulag um allsherjar af-| vopnum. Engar horfur eru á' að slíkt samkomulag muni' nást um fyrirsjáanlega fram- tíð. búin af þeiin tilraunum ineð vetnissprengjur sem nú er S ráfti að gera, sagfti Dulles enn- fremur. Nýr þing- maður 1 Ólafur Jóhannesson prófessor tók sæti á Alþingi nýlega, serrt varamaður Steingríms Steinþórs- sonar, 1. þm. Skagfirðinga. Hefur Steingrími verið rá'ð- lagt að taka sér hvíld frá störf- um um sinn af heilsufarsástæð- Heilsan verður að lúta í Iægra haldi. 1 þessu máli verður tvenns að gæta, sagði Dulles. Á aðra hönd er hættan, sem heilsu manna stafar af geislavirkum efnum frá kjarnoi’kuspreng- ingum. Á hinn bóginn er hætt- an á að Sovétríkin komist fram úr Bandaríkjunum í smíði kjarnorkuvopna. Ef Bandarík- in ætla að halda áfram að smíða æ fullkomnari kjarn- oi’kuvopn, verða þau að sprengja tilraunasprengjur, sagði Dulles. Eins og vísinda- þekkingii er nú háttað telur Banðarikjastjórn einsýnt að taka beri meira tillit til hætt- unnar á að Sovétríkin nái yf- irburðum í lijarnorkuvopnum en hættunnar, sem heilsu manna stafar af tilrauna- sprengingum, bætti hann rið. Ég tel ekki að heilsu rnann- kynsins sé nein veruleg hætta um. Lík flnnsl í hrauninu við Vífilsstaði 1 Á föstudaginn lánga fannst lík í hraunskúta suðvestur af Vífilsstöðum. Reyndist þetta lík: Baldvins Skaftasonar, sem livarf í janúarmánuði s.l. Baldvin var fæddur 11. sept, 1909. Hann hvarf 19. jan s.l. og spurðist síðast til hans, er hann fór þann dag úr áætlunan- bifreið við Fífuhvammsveg ii Kópavogi. Var talið að Baldvin hefði ætlað þaðan fótgangandí til Vífilsstaða, en þar hafði hanii verið sjúklingur um langt skeið. Veður var vont, er Baldvin fór úr bílnum, og er talið að hanrí hafi ætlað að stytta sér leið en villzt í hrauninu.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.