Nýi tíminn


Nýi tíminn - 25.04.1957, Blaðsíða 11

Nýi tíminn - 25.04.1957, Blaðsíða 11
Fimmtudágur 25. apríl 1957 — NÝI TÍMINN — (11 Bændaförin ! .Framhald a.f 7. síðu. ’þá tíðkast 'allt of víða. Þetta bú átti 14 vöirubila og einn fólksbíl. Þá voru einn- ; ig ■ .tvær dráttaníélar í eigu busins og auk þess .ptógar og herfi og ýmsar léttari vélar. en þegar á stórvirkustu vélum þurfti að haida voru þær leigðar frá vélastöð. En að öðru leyti var vinnan frarn- kvæmd eftir ákvæðistaxta. Er hún lögð í svokailaðar vinnu- einingar og virtist mér að fyr- irkomulagið myndi krefjast ailmikinar nákvæmni. Sem dæmi getur það verið vinnu eining að hirða ákveðinn fjölda gripa í fjósi, vinnuein- ing að hirða um ákveðið flat- annál lands í sambandi við aldinrækt eða grænmetisrækt o. s. frv. Auðvitað verður oft að skipta í flokka, þegar vinn- an krefst þess, og verður þá meðaltal flokksins sama sem afköst einstaklingsins, en leit- ast við að sem jafnast fólk veljist saman. Eins og ætið, þar sem unn- ið er eftir ákvæðisvinnutaxta, verða afköstin misjöfn og launin þá einnig. Og ekki þarf heldur að dvelja lengi tii að sjá að áherzla er lögð á að hvetja fólk til að afkasta sem mestri vinnu. Sovétþjóðirnar, og þá ekki sízt Úkrainumenn, hafa líka þurft á því að halda. Eftir styrjöldina var þar allt í rústum meira og minna, t.d. Karkoffborg að % hlutum. Hvaða átak hefðum við þurft að gera á 10 árum ef Reykja- vík hefði verið skotin í rústír að 2á í styrjöldinni og land- búnaður Suðurlandsundirlend- ísins að mestu eyðilagður? Fomgrikkir dýrkuðu íþróttir og reistu víða marmarastytt- ur af íþróttamönnum. Þær sjást líka víða í Sovétríkjun- um, en einnig mjög viða marmarastyttur af fólki í vinnustellingum með vinnu- áhöld í höndum. Eins og áður er á minnst virðist sem tekjur þeirra, er mestu afkasta séu svo langt fyrir ofan meðaltaiið að manni finnst óeðlilegt. Sú skýring virðist liggja beinast við að þessir óvenjulegu af- burðamenn séu tiltölulega fáir en allur fjöldinn sé í kring um meðaltalið. I því sam- bandi getur manni líka til hugar komið allskyldur sam- anburður hér heima. Við vorum Hka spurðir um bústærðirnar okkar hér á Is- landi. Það var á fundi i land- búnaðarráðuneytinu eftir suð- urförina. Við hliðruðum okk- ur hjá því að nefna í sömu andránni stærstu búin og meðalbúið hjá okkur. Stór- mannlegt var það nú e. t. v. ekki, en frá mínu sjónarmiði nokkur afsökun, að slangur af tölum, sem ekki eru und- irbyggðar með víðtækari þekk- ingu á mörgum atriðum og að- stæðum öðrum, geta oft og tíðum verið mcira blekkjandi en fræðandi og því mjög vand- meðfamar. Stjórn búanna. Stjóm búsins var i aöaiat- riðum hagað þarrnig að á hverju úti er haidinn- aðal- fundur, þar sem kosinn er formáður, sem jafnframt er bústjóri. Er jafnframt kosin nefnd honum til aðstoðar. Einnig ákveður aðalfundur hvernig hin ýmsu störf eru lögð í vinnueiningar, því það getur verið breytilegt eftjr ástæðum. Ekki er heldur sama fyrirkomulag allsstaðar með stjórn. Á öðru búi, skammt frá Moskvu, sem við heím- sóttum einnig, var bústjórinn t.d. kosinn til tveggja ára, en þar var siður að halda al- mennan fund á þriggja mán- aða fresti til að ræða um bú- reksturinn. Líka var því skipt í deildir eins og hinu, en bún- aðarskilyrðin allmjög önnur og búskapurinn allur í sam- ræmi við það. Vinnan var lögð í einingar eins og á hinu búi'nu, og höfðu meðalafköst sl. ár verið 450 vinnueiningar. Var það hærri tala en á hinu búinu og sennilega minna vinnumagn í einingu, en til þess að kynnast því fyrir- komulagi til fullkominnar hlit- ar hefðum við þurft meiri tíma en \:ið höfðum. Til gamans skal þess getið hér, að sama ár höfðu vinnu- laun verið fyrir hverja vinnu- einingu: 10 rúblur í pening- um, 1 kg mjólk, 5,5 kg kart- öfíur og 50 gr kjöt. Getur hver sem vill svo reiknað árs- launin. Á einu búinu sáum við Hka barnaheimili, þar sem börnin voru á daginn, þvi yfirleitt unnu konurnar á búunum. Koraum við m.a. í stofu þar sem yngsfru börnin sváfu, og annarsstaðar voru hin eldri að leikstarfi undir eftirliti og leiðbeiningum fóstranna. Ég hygg að enginn okkar beri aðra sögu en að þar andaði allt af hreinlæti og reglu- semi, svo unun var að sjá. Þá er það föst venja á sam- yrkjubúunum, að hver félags- maður liefur lítinn landskika til eigin umráða. Á búinu í Úkraínu var hann % úr ha. Á þessum blettum sínum sá- um við fólkið vera að vinna í frístundum, og þar voni við- höfð vinnubrögð mjög svipuð þvi sem við höfum lengst af þekkt hjá okkur. Hins vegar duldist það ekki að á búunum sjálfum var vélavinnan mjög mikill þáttur starfanna og virtist mér sem öllu þj:ngsta erfiði væri létt af fólkinu sjálfu, og mundi sú reynsla ekki sízt hafa gert samyrkju- búskapinn vinsælan. Samt held ég að umráða- rétturinn yfir þessum einka- blettum sé vinsæll, enda mun margur, sem ræktar og hirðir blettinn sinn af alúð hafa af honum drjúgan tekjuauka. Þá átti búið tígulsteina- verksmiðju og framleiddi þannig sjálft tígxilstein sem mikið þurfti' af í byggingar, bæði gripahús og íbúðarhús. Má raunverulega telja það eina af framleiðslugTeinum búsins, og var okkur sagt að verksmiðjan veitti vinnu nokkrum af þeim ungu mönn- um er bætast í hópinn. Ánn- ars kom það fram á öðrum vettvangi, að allmikill áróður er rekinn af stjórnanmldun- um til að fá ungt fólk til að flydjást austur á hin riðlendu nýræktarsvæði á sléttunum við Kaspíahafið, sem nú er verið að rækta og gera byggi- legar með nýjum áveitum og öðnim mannvirkjum. Ríkisbú — tilrauna- og kynbótastofnanir Þetta verður að nægja um samyrkjubúin þó fljótt sé yfir sögu farið og mörgu sleppt. En örfáum orðum vil ég minn- ast á ríkisbúin, þótt í stuttu máli verði, því annars verður frásögn þessi lengri en góðu hófi gegnir. Við komum fyrst á ríkisbú nokkuð frá Karkoff. Það var stærra fyrirtæki og munu ríkisbúin yfirleitt vera það, enda eru þau jafnframt tilrauna-, kjmbóta- og leið- beiningastofnanir. Bústærðin var 1.500 nautgripir, þar af 700 mjólkurkýr, 2000 svín og 4000 sauðkindur; eitthvað var auk þess af aljfuglum o. fl. Nautgripakynin voru fimm, og sáum við hjarðirnar úti á ræktuðum beitilöndum. Mér komu til hugar amerískar kú- rekakvikmyndir, þegar ég sá ríðandi menn gæta þeirra. Svínakynin voru tvö pn sauð- fjárkynin þrjú og mest lagt upp úr ullar- og skinnafram- leiðslu. Á þessu búi unnu 370 verkamenn og höfðu laun greidd í peningum. Vinnan var 8 klst. á dag. Mánaðar- laun góðra verkamanna gátu orðið allt að 700 rúblur. Þetta bú framleiddi fræ fyrir sam- yrkjubúin í nágrenninu, seldi þeim kálfa og veitti upplýs- ingaþjónustu, sem byggðist á tih-aunastarfsemi þess. Fram- leiðslan var seld í Karkoff og ágóðinn af búrekstrinum rann til ríkisins, nema það sem fór til viðlialds og uppbyggingar á búinu. Þetta bú átti vélar eftir þörfum og er svo yfir- leitt með ríkisbúin. Að öllu athuguðu varð ekki annað séð en hér væri um afburða glæsi- legan búrekstur að ræða, enda hafði þetta bú 7000 ha. lands til umráða. Það hafði verið stofnsett 1930, en eyðilagt með ö!lu á stríðsárunum og uppbygging hafin að stríðinu loknu. En örfáum orðum vérð ég að miniiast á vélastöðvar landbúnaðarins, en með starfi þeirra er skipulögð hin stærri vélanotkun í þarfir samyrkju'- búanna. Misjafnar eru þær að stærð og þjóna mjög misjafn- lega mörgum búum. Þar sem þessi starfsemi er umfangs- mest er henni stjórnað að nokkru leyti þannig að þeir sem þurfa á véluni að halda, senda til'kynningar um það í útvarpi til viðkomandi véla- stöðvar, sem ætíð hefur yfir- lit um, hvar viðkomandi vél er stödd á hverjum tíma. Stöðin sendir aftur útvarps- tilkynningu til viðkomandi vél- stjóra um að sinna tiltekinni beiðni. Þannig virðist mjög mikið kapp á það lagt, að nota sem bezt vinnuafl þess- ara dýru áhalda, sem verða í æ ríkari mæli undirstaðan að aukinni framleiðslu. Einnig skoðuðum við véla- verksmiðju í Karkoff, sem framleiðir vélar fyrír land- búnaðinn. I henni unnu 35.000 manns. Þar fylgdumst við með því, hvernig ein stór beltis- dráttarvél var sett saman úr öllum sínum smáu og stóru hlutum, og endaði með því að félagi Kristófer settist upp í við hliðina á vélstjóranum og ók út, svo við fórum að ótt- ast um að við sæjum hann ekki meir og við yrðum að fara Kristóferslausir heim. En sem betur fór birtist hann aft- ur brosandi eins og venjulega, og þar með var sá ótti úr sög- unni. Þessi verksmiðja hafði haf- ið störf 1930 og fyrsta drátt- arvélin komið út 1931. Á stríðsárunum voru vélar allar fluttar til Síberíu og vinna hafin þar en byggingar sprengdar í loft upp. I ágúst 1943 létti hersetunni og í okt- óber sama ár hófst endur- byggingin. Og 1945 kom aftur fyrsta dráttarvélin. Ennþá hafði verksmiðjan eingöngu framleitt til innanlandsnota, en okkur var sagt að áætlað væri að hefja á næstu árum framleiðslu til útflutnings i stórum stíl. Dæmið um þessa verksmiðju var eitt af mörgum, sem báru því vitni hverjar truflanir þessa fólks, bæði hvað fram- Orðsendmg ti frá nijólkureftirliti ríkisins Bændum er hér með bent á, að gefnu til- efni, að forðast að fara eftir auglýsingum eða öðrum ábendingum um meðferð mjólkur og mjólkuríláta frá óábyrgum aðilum. Reykjavík, 15. apríl 1957. Mjóikureítirlitsmaður ríkisins, Kárí Cuðmundsson. fuuuniuupf mmwémmaammm ■ ■ kvæmdaáætlanir og lifsk jor snerti. Nú vil ég biðja lesendur mína, að taka orð mín ekki svo, að ég þykist gefa alhliða heildarlýsingu á landbúnaði Sovétríkjanna. Hann er svo fjölbreyttur að slíkt verður, ekki gert í stuttu má3i og er landbúnaðarsýningin bezt vitni um það. Með því að fara: víðár og sjá fleira hefðum við' fengið enn aðrar og marg- breyttari myndir. Hins vegár var mjög greiðlega leyst úr öllum okkar spurningum. og ég held að enginn okkar hafi efazt um að reynt hafi verið að gefa okkur sem réttasta hugmynd af því sem fyrir augun bar og landbúnaðinn eftir þvi sem tími vannst til. (í næstu grein verður rætt um förina til Kákas- us, dvölina.þar o. fl. sem ástæða þykir helzt til). AuSæfi Sahara Framhald af 2. síðu. lindirnar í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs eða árs- notkunina af olíu í heiminum, sem nemur 800 milljón lestum, en myndi nægja Frökkum um langt skeið og verða atvinnu- lífi þeirra mikil lyftistöng. Erfiðleikar á vinnslu Allmiklir erfiðleikar eru þó á vinnslu þessara auðæfa. bæði málma og olíu, og stafa þeir m.a af vatnsskortinum og t , erfiðum samgöngum. Flutningur olíunnar ætti að reynast auðveldur, hægt verð- ur að dæla henni eftir leiðsl- . um til strandar Miðjarðarliafs, I Mesti erfiðleikinn sem Frakkar munu eiga við að stríða i þessu sambandi er þó ófriðurinn í Alsír og hin erfiða sambúð Fakka við Túnis og I Marokkó, meðan hann stendur ! vfir. Erlend tíðindi Framhald af 6. síðu. sænskra sósíaldemókrata er kenningin um sovézka heims- valdastefnu áróðursblekking, byggð á óhyggilegum en skilj- anlegum viðbrögðum sovét- stjórnarinnar við biturri reynslu af þrem innrásum úr vestri á þrjátíu árum. Að þess- ari áróðursþlekkingu hafa Bandavikjamenn blásið til að tryggja sér hernaðaritök. I Vestur-Evrópu, en þau ala aft- ur á tortryggni valdhafa Sovét- ríkjanna. Skoðanabræður sænskra sósíaldemókrata í ut- anríkismálum eru þýzku sósíal- demókratarnir, sósíalistaflokk- ur Nennis á Ítalíu og Bevan og fylgismenn hans í brezka Verkamannaflokknum. Ein- dregnasta andstæðinga virðast Svíarnir hinsvegar eiga í for- ustuiiði Alþýðuflokksins is- lenzka. Svo mikið er vist, að skoðauir hins afdankaða hers- höfðingja, sem hernaðarsér- fræðingur sósíaldemókratamál- gagnsins dregur sundur og saman í háði, eru nákvæmlega þær sömu og Guðmundur í. Guðmundsson utanríkisráð- herra flutti íslendingum al mestum sannfæringarkrafti á afmælisdegi A-bandalagsins fyrir skömmu. M. T. Ó. *

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.