Nýi tíminn


Nýi tíminn - 25.04.1957, Page 4

Nýi tíminn - 25.04.1957, Page 4
14) — Ntl TÍMINN — Firamtudagur 25. apríl 1957 f Til þess að við mættum vera öðrum þjóðum til fyrir- anyndar á sviði barnabók- mennta eru nú ofmörg ár liðin frá fyrstu tugum þessarar ald- ar, hernámsárin orðin full mörg og peningaprangið of fyrirferðarmikið. Fólki dags- ins í dag hefur gleymzt sú ikenning meistarans, að það lifir ekki af einu saman brauði. Hitt er aftur á móti efst í huga þess, að bókvitið verði ekki látið í askana. Sú kynslóð ræður nú ríkjum hér á landi, eem lifað hefpr þær mestu jþjóðlífsbreytingar, sem nokk- ur kynslóð hefur lifað síð- an land byggðist. Sárfátæk bernska og æska, illa klædd og oft svöng, átti ekki annan tnunað en þann, sem bækur veittu, en er nú vaxin í þá kynslóð, sem hér fer með völd og það liafa margir hlutir gerzt. Það hafa reyndar allir hlutir gerzt. Það fólk, sem til- heyrir þessari kynslóð, þykist að vísu enn hafa í heiðri þann bókmenntalega arf, sem því var fenginn í liendur í bernsku þess. Það heldur sig hafa not- ið hans vel og blessar hann mjög á tyllidögum, en mun ekki skila honum næstu kyn- slóð nema í brotum. Það umrót og þær bylting- ar, sem dunið hafa yfir okkur og gert okkur hina snauðustu allra manna að nýríkum grósserum, hafa einnig snert ómjúklega andlegt líf okkar og svo að segja lagt i rústir fyrri lífstrú. 1 dag er ekki um að ræða hér á landi neina al- menna lífsskoðun, því síður er þjóðareining finnanleg um nokkurt mál. Það fólk, sem byggir Island í dag, sýnist eiga það eitt sameiginlegt að keppa eftir lífsþægindum. En þó að telja megi þetta sam- eiginlegt, er ekki keppt eftir neinu sameiginlega. Hver og einn sækir fram fyrir sig. Hver og einn berst fyrir sinni iúxusbílaþrá, kæliskápadraumi, 'skattsvikahugsjón og lúxus- flakki á erlendum grundum. Þjóðin sér og finnur, að allt • er þetta reist á ótraustum grundvelli félagslega séð og . þjóðfélagið rambar hvað eftir annað á heljarþröm. Félags- legt öryggi er hvergi að finna. Fólk hefur nú um skeið haft gnægð peninga handa á milli og fyrir þessa peninga hyggst það veita sér allan munað áð- ur en hrunið dynur yfir. Einn- ig börnin eru munaður þess, ieikföng þess og stássbrúður. Það fólk, sem þannig er altek- ið af eftirsókn lífsgæða sér til handa, hefur sem eðlilegt er vaxið upp úr sjálfu sér og gleymt því, að hugmynda- heimur barna og unglinga er heimur á sína vísu og á kröfu til að vaxa og þróast. I aug- um þeirra, sem allt miða við peninga er hugmyndaheimur barnsins næsta barnalegur og skrítinn. Hann er ef til vill skemmtilegur til frásagna, vegna þess að börnin eru af- sprengi foreldranna og með því að tala um þau og þeirra skrítna lieim fá foreldrar þægilegt tækifæri til að tala um sig sjálft undir rós. Móti því verður naumast mælt, að ást æðimargra for- eldra til barna sinna bii’tist nú . til dags i mjög ríkum mæli í því að veita þeim flest, sem þau óska, dekra við þau og reyna að gera þeim lífið sem dásamlegast. Reyna eftir megni að forða þeim frá því að þola þá erfiðleika, sem for- eldrarnir sjálfir urðu að þola í sinni bernsku. Sá strangi agi, sem áður fyrr var mikill böl- valdur í öllu uppeldi, er nú víð- ast breyttur í andstæðu sína. En við þá breytingu hefur fólki gleymzt sú staðreynd, að rétt- látur agi foreldra er hverju barni samt sem áður nauðsyn. Það beinlínis væntir hans og fer mikils á mis, ef það finn- ur hann ekki. Liggur í augum uppi, að hverjir þeir foreldrar, aflaplömun sinna merkilegu fullorðinsára, hefur lítinn tíma til þenkinga í andlegum efn- um, en auglýsingahreimurinn lætur ekki að sér hæða og þrengir sér inn í vitund þess, svo að það man ekki annað en hann, er það velur börnum sínum bækur. Eitt ráð er það, sem útgef- endur liafa notað umræddum bókum sínum til framdráttar, en það er að fá einhvern vel- þekktan kennara til að láta nafn sitt á þýðingu bókar eða þó ekki væri annað en skrifa um hana lofritdóm í blöð. Þeir STEFAN JONSSON: Fáein orð um BARMBÆKVR Síðari hluti sem ekki líta fyrst og fremst á barn sitt sem verðandi manneskju og reyna að leið- beina því þangað, munu aldrei gefa því neinar dásemdir sem endast megi framtíð þess, hversu mjög sem þeir dekra við það með eftirlæti sínu. Hverjir þeir foreldrar, sem láta sig engu varða, hvað böru þeirra lesa og hver hug- myndaheimur þeim er gefinn í bókum þeirra, láta þau jafn- vel skipa fyrir um þetta sjálf, þeir líta ekki á börn sín sem verðandi manneskjur. Þeir líta á þau aðeins sem munað sinn og leikföng sín. Ég gat hér að framan um lilutfall milli þýddra og frum- samdra barna- og unglinga- bóka hér á landi og hve hinar þýddu bækur eru í gífurlegum meirihluta. Flestar eru þær af reyfaragerð og flestar undar- lega lélegar sem slíkar, enda láta margir þýðendur elcki nafns síns getið á þeim. Ligg- ur næst að halda, að miklu skárri lestur fyrir börn og unglinga séu reyfarar, sem skrifaðir eru fyrir þroskaða lesendur. Þar halda víða á penna kunnáttusamir menn á iðju sína, en höfundar barna- og unglingareyfara eru næst- um ævinlega skussar. Það, sem vakir fyrir þýð- endum barna- og unglinga- bóka, er því miður afarsjaldan það að gefa bernsku og æsku þjóðar sinnar góða bók til lestrar, heldur hitt að auka tekjur sínar. Útgefandi hvaða bókar sem er liefur það auð- vitað að aðalmarkmiði að selja bókina og út af fyrir sig er honum það ekki láandi. Kunn- áttusamur útgefandi barna- og unglingabóka finnur upp á mörgu til að auglýsa bækur sínar og þá er það, að gulu bækurnar, bláu bækurnar og þær rauðu koma við sögu, en samkvæmt hinum margendur- teknu auglýsingum útgefanda, verða öll börn að lesa þær bækur. Þá er gripið til þess ráðs að spyrja börnin sjálf, hvað þau helzt vilja lesa. Samanber Peter Grove. Síðan kemur hún út sú bókin, sem kvað slá öll met í vinsældum. Fólk, sem upptekið er af fjár- hafa gert þetta í því trausti að liún gengi þá frernur I augu fólks og væri nafn þýðandans trygging fyrir góðu efni henn- ar. Útgefendur hafa nú frem- ur dregið úr þessari aðferð og treysta nú meira á kápulitinn. Kennarar hafa samt sem áður ekki lagt árar í bát, heldur ið yndi af góðum bókum. Svo undarlega vill til, að flestir eru þeir meoal hinna hljóðlátu og kæra sig lítið um að láta á sér bera. Hinu er ekki að neita, að sé eina stétt um það að saka fremur en aðra, liví- líkt óskaplegt léttmeti og him- inhrópandi kjánaskapur er á borð borinn sem lesefni fyrir böni og unglinga, þá eru það einmitt barnakennarar bæði hérlendis og erlendis. Það er eins og menn þessarar stéttar, sem vasast mest í að semja bækur eða þýða þær, komist hvergi út fyrir stig hinnar fyrstu lestrarkennslu. Allt á að vera sem auðveldast í lestri og helzt allt á barnamáli, svo að hvergi reyni á neina hugs- un, orðminni eða ályktunar- gáfu. Þessir menn virðast eklci hafa hina minnstu hugmynd um, hvað raunveruleg bók er. Þyki þeim eða öðrum þetta harður dómur, skulu bækur þeirra vera vitni min. Það, sem nú er framtekið og ýmislegt fleira á sök á því, að það ástand hefur skapazt, sem nú er orðið hér og virðist með hverju ári festast í sessi. í fullkomnu andvaraléysi hef- ur fólk látið þessi mál af- skiptalaus, en smám saman sefjazt af auglýsingabrellum og áróðurstækni. Það skal tek- ið fram, að hér er einkum átt við bækur ætlaðar börnum komnum yfir tíu ára aldur og síðan eldri. Bækur yngri barna eru hér miklu skaplegri og . ,Börn og unglingar eru elskulegustu lesendur sem hugsast getur“ þýtt, frumsamið og gefið út af eigin hvötum. En það er ekki sama að vera þokkalegur kennari og hafa þokkalegan smekk á bækur, skáldlegt ímyndunarafl og í þjónustu þess listræn vinnubrögð. Reynsla mín af barnakennur- um, stéttarbræðrum mínum, er yfirleitt ágæt. Þetta eru áhugamenn um starf sitt og ná þar flestir miklu meiri ár- angri en almennt er viður- kenndur, Meðal þeirra manna veit ég marga, sem hafa næm- an smekk á skáldskap og mik- nálgast það að vera sæmileg- ar. Ekki skal því gleymt, að nú hefur Helgafellsútgáfan reynt að spyma fótum við hinni óheillavænlegu þróun og gefið út öndvegisrit fáein í því skyni að glæða áhuga æskunn- ar fyrir sígildum bókum. Er þetta lofsverð tilraun, en því aðeins getur hún orðið meira en tilraun, að forráðamenn æskunnar skilji hvað um er að vera. Sá auglýsingakenndi hunda- vaðsháttur, sem einkennir barna- og unglingabækur nú til dags, er uggvænlegur. H/að vilja börnin lesa? er spurt. Samanber Politiken 21. sept. 1956 vilja þau helzt lesa um morð og glæpi og það verða þau að fá. Barna- og unglingabækur má auðvitað skrifa um hvaða efni sem er, nema um glæpi, morð og öðruvísi manndráp og það efni annað, sem sett er á svið til þess að auka þá spennu, sem þegar er orðin of há. Um þetta er ef til vill óþarfi að fara mörgum orðum, því að spennan hlýtur að falla. Engin ósköp standa lengi og stefna og stefnuleysi hljóta að eiga sín takmörk. Spennan helzt að líkindum aðeins visst tímabil, en hún getur verkað nokkuð lengi á þá, sem fyrir henni urðu. Það er ógjörning- ur að eltast i þaula við það, sem æsir mest, því að jafnvel það verður hversdagslegt til lengdar. Höfundar geta að vísu enn um skeið aukið við þjófnaði og morðum og bætt í það frásögnum um nauðganir og homosexualisma og menn eins og Peter Grove geta rétt- lætt það með því, að um þau efni vilji fullorðið fólk gjarn- an lesa í dagblöðum, íslenzkir barnakennarar og aðrir geta aukið við þýðingar sínar á þeim bókum og útgefendur geta enn aukið litum í seríur sínar, en allt hlýtur þetta að eiga sín takmörk og siðan aft- urhvarf. Þá er að því komið, að við fáum eintóman heilag- leika og siðaprédikanir næstu árin. SUMUM KANN að virðast, að eftirlit með útkomu bania- og unglingabóka sé mikil nauðsyn og benda þá á þá staðreynd, að þannig eftirlit er haft að opinherri tilhlutan með kvikmyndum. Víst er þetta sambærilegt og sé eftir- lits þörf með kvikmyndum, þá er þess einnig þörf við útkomu barna- og unglingabóka, enda er þetta mjög skylt og styður hvað annað. Sá er þó ljóður á, að þannig eftirlit hefur ótelj- andi annmarka og suma mjög hættulega. Þess er heldur ekki að dyljast, að lítil hætta er á ferðum, þó að út komi við og við bók af því tagi, sem lítið gildi hefur og eins þó að þar fljóti í og með reyfarar. Þá fyrst er í óefni komið, þegar þannig bækur eru að verða allsráðandi og fólk tekur að halda, að þannig skuli einmitt barnabækur vera. En þannig er nú að verða. Hið eina eftirlit, sem að gagni getur komið, er breytt almenningsálit í þessum mál- um. Það verður með einhverju móti að fá fólk t.il að hugsa um þetta, en hætta að liorfa þangað sljóum einfeldnings- augum. Fólk verður að sjá og skilja, hvílíkt siðleysi það er, þegar það ætlar börnum sín- um ekki annað til skemmti- lesturs en yfirspennt atburða- þvaður og æsikjaftæði. Þetta liggur svo í augum uppi, að fengist fólk til að veita þess- um málum svolítið brot af mannlegri hugsun sinni, myndi það strax sjá, að hér er í óefni stefnt. Það eru ósannindi af slæmri tegund, þegar fullyrt er, að börn og unglingar fáist ekki til að lesa aðrar bækur ea þær, sem fylltar eru af frá- Framhald á 10. síðu.

x

Nýi tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.