Nýi tíminn


Nýi tíminn - 04.09.1958, Blaðsíða 4

Nýi tíminn - 04.09.1958, Blaðsíða 4
4) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagnr 4 september 1958 flllir viðurkenna nema Bretar •* . •> '■* „VerncL smáþjóðanna“ undir brezkum fána: „réttur“ hins sterka til að rœna hinn máttarminni í skjóli hervalds. — (Ljósmst. Sig. Guðm.) Bretar ráðast inn í íslenzka landhelgi og ræna með valdi Framhald af 1. síðu. Shilja fféttirnar nú betur Við Islendingar höfum á undanförnum árum heyrt fregnir brezka útvarpsins af því þegar þeir hafa skýrt frá aðgerðum á num til að halda uppi lögum og rétti og „vernda smáþjóðir" í ýmsum hlutum heims. t gær skýrði brezka útvarpið frá slíkum aðgerðum á íslands- miðum. Það lýsti því hvernig breZkir togarar hefðu í glaða- tunglskini gert innrás í land- helgi íslands undir vernd og samkvæmf fyrirskipun brezks herskips. Var síðan aðgerðum lýst nánar, sagt að veiðisvæðin væru 8 mílna breið og 30 rmína löng og loks sagt að „aðgerð- irnar hefðu byrjað mjög vel, togaraskipstjórarnir hlýtt öll- um fyrirskipuniim (um ránið)] íslendingar munu eftirleiðis skilja betur þegar brezka út- varpið skýrir frá „velheppn- uðum aðgerðum" Breta til að halda uppi rétti meðal annarra þjóða. Kæiar sigurminningar. Tveir brezkir ránstogarar fóru að Horni, en aðalræn- ingjaflotanum, 9 togurum und- ir vernd brezks herskips, var stefnt tii Dýrafjarðar. Er auð- sætt að hið „brezka ljón“ hef- ur valið stað þenna af sinni al- kunnu smekkvisi, því þarna eiga Bretar kærar sigurminningar; fyrir 50 ár- um sökktu þeir þar íslenzk- um bát og tókst að drepa þrjá Islendinga sem voru þar að lö.ggæzlustörfum. Bi:ezkar íallbyssur mannaðar. Þegar Í3lenzku varðskipin hófu i gærmorgun aðgerðir gegn hinum brezku ræningjum við Dvrafjörð beitti brezka freigátan Palliser þegar valdi tij að hindra að varðskipið ■kæmist að sökudólgnum. Kom hún á mikilli ferð með mannað- ar fallbyssur r«cr sigldi á milli varðskipsins og landhelgis- brjótsins, þannig að varðskip- ið komst ekki að togaranum. Betur gátu Bretar vart lýst löngun sinni til að end- urtaka manndrápin frá því fyrir hálfri öld. Enn þyrstir hið ellihruma „brezka ljón“ í jslenzkt blóð. íslendingar vakna. Þeir Islendingar sem fram að þessu hafa ekki viljað trúa að brezk vinátta þýddi kröfu Breta um að ræna hinn máttarminni vöknuðu í gær — og margir allhastarlega. Fréttamenn Þjóðviljans skruppu með flugvél Flugfé- lags Islands síðdegis í gær til að sjá hina brezku „vernd smáþjóðanna" í verki úti fyrir Vestfjörðum. Og þeir voru ekki einir á ferð: flugvélin var fullskipuð mönnum er fóru sömu erinda. Þar voru ungir menn og aldraðir. Elztur mun hafa verið Skagfirðingur einn, 64ra ára gamall. „Róstugt vai í Riíi". Það er flogið móti sól, yfir þveran Faxaflóa og Snæfells- nes. Úti á nesinu blasir Rif við síðdegissólinni. Það var þar sem brezkir ofbeldismenn drápu Björn ríka fyrr á öld- um. -— Brezkir ræingjar ern ekki að koma fyrst við sögu á fslandi i dag. En þegar Björn var fallinn sagði Ólöf Lofts- dóttir kona hans: „Eigi skai gráta Björn bónda, heldur safna liði“. Það heit kvað hún hafa efnt með því að setja hóp brezkra manna í fanga- vinnu vestur á Skarði. Hin brezka öxi og Snæ- björn í Hergilsey. Rif á Snæfellsnesi er ekki langt að baki þegar niðri blasa Bjarneyjar. í október árið 1910 fór sýslumaðurinn, Guðmundur Björnsson, þar til fundar við brezkan landhelgisbrjót. Þegar hann réðist til uppgöngu á tog- arann ætlaði hinn brezki ræn- ingi að hindra það en sýslu- maður og Snæbjörn í Hergils- ey komust þó um borð. Sneri þá brezki skipstjórinn móti sýslumanni og reiddi öxi til höggs, en Snæbjörn þreif járn- flein og lét Bretinn þá öxina síga. En hann neytti liðsmun- arins til þess að ræna íslenzk- um löggæzlumönnum og sigla með þá til Englands. Manndráp á Býraíirði. Það er flogið norður yfir ströndina og út Patreksfjörð, vestur undir Dýrafjörð. Það var árið 1899 að Hannes Haf- stein var sýslumaður þar vestra. Þá áttu Islendingar engin varðskip, en sýslumaður fór út í brezkan landhelgis- brjót á róðrarbát. Bretarnir meinuðu þeim uppgöngu — og sökktu bátnum. Horfðu þeir á þrjá íslendinga farast og drógu hina ekki upp í togarann fyrr en aðrir íslenzkir bátar *rá landi voru að koma á vett- vang. — Það er auðvitað til að lialda þetta sigurafmæli há- tíðlegt að Bretar stefndu ráns- flota síniun til Dýrafjarðar í fyrrinótt. 1. september 1958. Þannig mætti lengi telja, þV. segja má að strönd íslands sé vörðuð minningum um brezkt ofbeldi, brezk rán. En nú erum við komin á ákvörðunarstað. Hinn 1. sept. — í dag — gerðu Bretar innrás í land- helgi íslands: sendu herskip sín gegn einni minnstu þjóð veraldar; þjóð án hers. Er þetta góður vottur hins brezka hugreltkis. „Vernd smáþjóða": Rán í skjóli íallbyssukjafia. Þarna voru þeir. Um 11 míl- ur úti af Kópsnesi, milli Tálknafjarðar og Arnarfjarðar, gat að lita 9 brezka togara að veiðum og verndáði brezkt her- skip ránið með gapandi fall- byssukjöftum. Við erum ekki á öld Björns ríka, heldur ekki á öldinni sem leið, — þetta er að gerast í dag: 1. september 1958. „Engiand vænfir þess ..." Samkvæmt upplýsingum frá landhelgisgæzlunni í gærkvöldi kvað einn skipstjóranna í brezka ræningjaflotanum hafa beðizt leyfis um að leita hafn- ar á íslándi. Honum var bann- að það. Annar skipstjóri í ræningja- hópnum baðst leyfis að fara út fyrir landhelgislínuna — í von um að fiska eitthvað! — Framhald á 2. síðu. Framhald af 1. síðu. Belgisk skip og þýzk, sem voru að veiðum ínnan 12 mihia markanna á sunnudag, færðu sig út fyrir 12 nulna línuna áður en reglugerðin tók gildi. Á tveimur stöðum við landið hafa brezkir togarar undir stjórn brezkra herskipa gert tilraunir til að veiða innan liinnar nýju fiskveiðilandlielgi. Þar er um að ræða 11 skip, 9 á öðrinn staðnum og 2 á hinum. Alls staðar annarss'‘.Hðar við landið hefur fiskveiðilandhelg- in verið laus við ágang brezkra skipa af ótta við Iandhelgis- gæzluna. Það er því augljóst að strax á fyrsta degi hefur mikilvægum árangri verið náð, þar sem skip allra þjóða. sem fiskveiðar stunda við ísland, nema Breta, viðurkenna í framkvæmd fisk- veiðilandhelgi íslands. Tilraunir Breta til veiða undir stjóm her- skipa eru fyrirfram dæmdar til að nústakast, þar sem slíkar veiðar er ekki Irægt að s.únda með neinum árangri. Þá er einnig vitað um ýmsa brezka togara, seni hafa haldið sig fyrh' utan 12 milna mörkin og vilja ekki veiða innan fisk- veiðilandhelginnar. Þeir brezkir togarar, sem veitt hafa innan fiskveiðilandlielgiim- ar vevða allir teknir á sínum tíma og sektaðir. Nöfn þeírra og númer hafa þegar verið tekin upp, og fullnægjandi saimanir liggja fyrir um sekt þeirra. Tólf mílna fiskvedðilandhelgin er því þegar orðin staðreynd sem ekki verður kvikað frá“. Þegar á undanhaldi Landhelgisbrot Breta eru í senn níðingsleg og heimskuieg. og undanhald ofbeldismannanna birtist greinilega í gær. Upphaf- lega hafði verið sagt að 200 brezkir togarar myndu koma á íslandsmið til landhelgisbrota, síðan urðu þeir 100, því næst 50 og þegar á átti að herða voru þeir komnir ofan í 11 — en eitt manndrápaskip brezka flot- ans beið togaralaust fyrir aust- urströndinni! Það kom sem sé í ljós að veiðar undir herskipa- vernd, eru óíramkvæmanlegar. Þegar í fyrrakvöld átti einn af brezku blaðamönnunum hér tal við togarann Northern Sky og spurði hvort hann myndi ekki koma inn fyrir 12 mílurnar, samkvæmt fyrirmælum brezku stjórnarinnar. Skipstjórinn kvaðs ekkj myndu brjóta land- helgina; það væri of núkil á- hætta. í gær bað einnig einn af togurunum 11 urn leyfi herskips til að fara út fyrir 12 mílurnar, til þess að geta veitt fisk á eðli- legan háit! Fékk hann það leyfi eftir mikla eftirgangsmuni og með því skilyrði að hann kæmi inn fyrir landhelgina áður en myrkur skylli á! Mannslíf fyrir brezka heimsveldið? Þá bað einn af brezku togur- unum um leyfi herskips til þess að mega fara til hafnar. Mun ástæðan hafa verið sú að alvar- lega veikur sjómaður var um borð. Neitaðj yfirmaður herskips- ins um þá beiðni; sektin var mikilvægari en sjómaðurinn. Vonlaus barátta Brezku togaraskipstjórarnir vita fullvel að barátta þeirra e:r vonlaus. Þeir munu allir fá dóm og þeim dómi verður full- nægt þegar er til þeirra næst. Og öll skip sem veiðar stunda & íslandsmiðum verða fljótlega aií hafa samband við land, bæði af völdum illviðra, bilunar, sjúk- leika og af öðriim ástiæðum. Og þá verða þjófarnir teknir. Þeir vita einnig fullvel að þeir geta ekki farið einir til Bretlands með afla sinn — þá verða þeir einnig teknir — allir ve/iiþjóf- arnir verða að sigla saman ti:I Bretlands undir herskipavernd. Og veiðitíminn hér verður skammur, því herskipin hér þurfa fljótt að fá nýjar olíu- birgðir, og þær birgðir verða ekki afhentar hér. Öll bernaðar- áætlun Breta er óframkvæman- leg, vonlaus; og það munu ekki líða margir dagar þar til þeir sjá sér þann kost vænstan að gefast upp, skilyrðislaust. Mikill sigurdagur Dagurinn í gær var mikill sig- urdagur fyrir íslendinga. Marg- ir munu hafa óttast að erlendar þjóðir myndu sýna aðgerðum okkar alvarlega andstöðu; en £ gær kom í ljós að allar þjóðir viðurkenna aðgerðir okkar, sum- ar formlega, aðrar í verki — nema Bretar. Það kom einnig í ljós — sem ýmsum mun hafa komið meira á óvart — að yfir- gnæfandi meirihluti brezka tog- araflotans viðurkennir einnig að- gerðir okkar í verki. Æsinga- mennirnir í samtökum brezkra togaraeigenda hafa auðsjáanlega ekki einu sinni stuðning starfs- bræðra sinna — en þeir hafa fengið því áorkað að bæta enn. einum smánarbletti á hinn flekk- aða fána brezka heimsveldisins. Bað ni vernd íslenzku lögregluimar Á sama tíiua og brezki flot- inn gerði árás sína á ís- lenzka löggæzlumenn um borð j Ægi á mánudagsm. sueri brezka sendiráðið í Rcykjavík sér til lögreglu- s/ijórans og bað um vernd islenzkra löggæzlumanna í Reykjavík. Var þeirri beiðni að sjálfsögðu vel tekið, og í gær stóðu Iög- reglumenn, óednkennis- klæddir og einkennis- klæddir, vörð við aðsetur Breta við Laufásveg og í Þórshamri, en Erlingur Pálsson yfirlögregluþjónn kannaði liðið við og við í fullum skrúða. Er þess að væiií'a að brezka sendi- herranum, mr. Gilehrist, liafi liðið vel í skjólj ís- lenzku löggæzlumannanna á sama tíma og starfsbræð- ur þeirra stóðu andspæn- is fallbyssukjöftum brezkra herskipa.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.