Nýi tíminn - 04.09.1958, Síða 5
Fimmtudagur 4, september 1958 — NÝI TÍMINN — (5
istaða íhaldsins til landhelgisbaráttu íslendinga
m
'unblaSiS segir i fyrradag ao bezf sé að andstœöingar okkar ieiBi
landhelgismálið fil lykfa á sem skynsamlegasfan hátf I
Danska stjórin hefur sem
kunnugt er svikið Fæx’eyinga
enn einu sinni. Hún hefur haft
að engu samþykkt lögþingsins
um stækkun fiskveiðilögsögunn-
ar við Færeyjar í 12 mílur 1.
september. Ástæðan er sú að
Danir taka verzlunarhagsmuni
sína — sölu á svínakjöti — langt
fram yfir líisnauðsyn Færey-
inga, og þeir þora ekki á nokk-
urn hátt að styggja brezk
stjórnarvöld. En það er sérstak-
lega athyglisvert fyrir íslend-
inga
að danska stjórnin reynir að
dylja svik síxi í landheigis-
málinu með því að bera fram
beiðni um að ráðherrafund-
uf Atlanzhafsbandalagsins
verði kvaddur saman án taf-
ar. Þetta er nákvæmlega
sama aðferð og Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur haft gagn-
vart íslendingum. Afstaða
Sjálfstæðisflokksins til land-
helgisbaráttu íslendinga er
nákvæmlega sú sama og af-
staða dönsku stjórnarinnar
til landhelgisbaráttu Fær
eyinga.
KáSöinenn Sjálfsfæöis-
fiekksíns skárusf úr leik
íslendingar þekkja af langri
reynslu hvernig það er að eiga
í -Morgunbl. í fyrradag er að
finna einhverja snjöllustu
,.prentvillu“ sem sézt hefur í
íslenzku blaði. í Reykjavíkur-
bréfinu er Bjarni Benediktsson
látinn segja að sýna 'þurfi ,„róg-
semi“ í landlielgismálinu, enda
getur engiim haldið því fram að
hann hafi ekki verið nægilega
rógsamur að undanförnu. Auð-
vitað er þetta engin prentvilla,
heldur ádrepa frá hugrökkum
prentarasem prófarkalesari hef-
ur ekki séð ástæðu til að breyta.
lífshagsmuni sína undir dönsk-
um váldsmönnum. Við erum
sem betur fer lausir við þá raun
— en ráðamenn Sjálfstæðis-
flokkins höfum við ennþá hjá
okkur, og það er furðulegt
hversu dyggilega þeir feta í fót-
spor pólitíkur-anná við Eystra-
salt. Eftir Genfarráostefinuna
í vor var sem kunnugt er um
það aitt að ræða, hvort íslend-
ingar ættu að hrökkva eða
stökkva. stækká fiskveiðiland-
halgi sína eða heykjast á
stærsta hagsmunamáli sínu. ís-
lendingar höfðu þá í tíu ár gert
látlausar tilraunir til að ná al-
þjóðlegu samkomulagi um
stærð lendhelginnai', en öllum
þeim tilraunum hafði verið
spillt af Bretum og fylgiríkjum
þeirra í Atlanzhafsbándalaginu.
Þar hafði sem sé verið revnt til
þrautár — og nú var aðeins eftir
að taka ákvörðun.
En þá skárust ráðamenn
Sjálfstæðisflokksins úr leik.
Þeir lögðu til að íslendingar
ákvæðu elcki stækkun land-
helginnar, lieldur vrðu þeir
viff kröfum Atlanzhafsbanda-
lagsins um ráðstefnu innan
þess, samningamakk og und-
arihald. Og viðbrögð dönsku
stjórnarinnar voru alveg
eins. Hún sendi okkur orð-
sendingu og lagði til að slík
NATO-ráðstefna yrði haldin
áður en endanleg ákvörðun
væri tekin; þannig kvaðst
hún myndu fara með hags-
muni Færeyinga. Það er lán
fslendinga að leiðtogar Sjálf-
stæðisfloklrsins höfðu ekki
þetta mikla örlagamál þjóð-
arinnar í höndum sínum —
á sama hátt og það er ólán
Færeyinga^ið eiga örlög sín
í höndum Dana.
Framköma ífialdsleiS-
foganna pönfisn m
fiéfaoií
Framkoma SjálfstæðisflqlcHs--
ins i landhelgismálinu hefur
verið þjóðhættuleg, og það er
engum efa bundið að einmitt
hin óíslenzka íramkoma íhalds-
leiðtoganria hefur mjög magn-
að andstöðuna i Vestur-Evr-
'ópú gegn réttlætisbaráttu okk-
ar. Uppgjafartónninn í Moi-g-
| unblaðinu og leiðtogum Sjálf-
stæðisflokksins hefur vakið þá
sjól^sblekkingu hjá ráðamönn-
um Breta, að við værum að því
komnir að heykjast; það þyrfti
aðeins að hafa í hótunum við
. okkur.. til þess að við gæfumst
upp. Það eru því fyrst og fremst
fórustumerin Sjálfstæðjsflokks-
: ins sem hafa boðið ógriunúm
Breta heim og ýtt undir þá til
ofbeldisverkt i> íslandsmiðum.
Og Bretar reiknuðu rétt —
að því er leiðtoga Sjálfstæð-
isflokksins snertir. Þeir
brugðust þannig við hótun-
unum að koma með nýja
upngjafartíllögu fjórum dög-
um áður en stækkun land-
helginnar kom til i’ram-
kvæmda og heimtuðu enn að
ráðherrar þeirra rikja sem
eru fjandsamlegust okkur og
ógna okkur f jölluðu um mál-
ið.
ándsfæ0ing»r okkar
eiga að ráða landheigis-
málinu fil lykia!
Með þessari tillögu ganga
leiðtogar Sjálfstæðisflokksins
opinskátt í þjónustu Breta og
flýja undan merkjum íslend-
inga. Það hefur alltaí verið
stefna okkar að berjast fyrir al-
þjóðlegu samkomulagi um land-
helgismálið. A alþjóðavettvangi
hefur okkur orðið mikið ágengt,
þar nýtur málstaður okkar á-
gæts stuðnings. Það kom bezt
í 3jós á Genfarráðstefnunni, þar
sem me.irihluti þjóðanna studdi
tillöguna um 12 mílna fisk-
veiðilögsögu. Bretar eru hins
vegar í vonlausum minnihluta
á alþjóðavettvangi með sjónar-
mið sín. eiris og kom skýrt fram
á Genfarráðstefnunni. Þeir hafa
því alltaf verið á móti alþjóð-
H. C. Ilanseu hefur brugðizt
Færeyingum og leggur til að
ráffherrafundur Atlanzliafs-
bandalagsins verffi kvaddur
saman.
legu samkomulagi, en viljað að
landhelgi íslands yrði ákveðin
innan Atlanzhafsbandalagsins
af þeim ríkjum sem eru and-
stæðust okkur.
Þetta sjónarmið Breta hafa
ráðamenn Sjálfstæðisflokksins
algerlega gert að sínu. Og þeir
vita fullkomlega hvað þeir eru
að gera; það kemur seinast frám
í Mox-gunblaðinu í gær, í
Reykjavíkurbréfi Bjarna Bene-
diktssönar aðalritstjóra; hann
segir orðrétt:
„Einmitt vegna þess að
innan Atlanzhafsbandalags-
ins eru saman komnir flestir
andstæðingar okkar í land-
helgismálinu, er þar sérstakt
tækifæri til að ræða málið
og ráða því til ly.kta á skyn-
samlegan hátt.“
Með öðrum orðum: Það er sú
stofnun, þar sem andstæðingar
okkar eru saman komnir, sem
á að ráða landhelgismálinu til
lykta. Við íslendingar eigum að
hverfa af alþjóðavettvangi, þar
sem við eigum yfirgnæfandi
stuðning. og gefa andstæðingum
okkar sjálfdæmi í staðinn. Lítil-
mannlegri og óþjóðhollari
stefnu er ekki hægt að hugsa
sér.
Áodraganda iandhelgis-
máfsins iokið
Tilraunir Sjálfstæðisflokksins
í vor til að koma i veg fyrir að
íslenöingar tækju ákvörðun um
stækkun landhelginnar ' báru
ekki árangur. Undanhaldsstefna
SjálfstæðLsflokksins og rógskrif
Morgunb’aðsins í sumar hafa’
ekki heldur borið árarigur hér
innanlands, en aukið trú and-.
stæðinga okkar á því að hægt*
vsi-ði að beygja okkur. Hin-ör-:'
væntingarfulla lokatilraun leið-;
toga. Sjálfstæðisflokksins til ’
aó láta andstæðinga okkar ráða>
málinu til lykta mun.ekki held :..
ur fá nokkurn hljómgrunn héii
á landi. i.’
Aðdraganda landhelgis*
málsins er lokið, stækkunirií
er komin til framkvæmða, og*
frá henni verður ekki hvik-!
I « -
að: um þá aístöðu eru Islend-
ingar einhuga'. Hvort sem,
það dregst lengur cffa skem-’,
ur aff erlemlar þjóöir viður-i
kenni landhelgi okkar (t. d.
Bretai sem ekki hafa emi
viðurketxnt 4 iniiurnar frá
1952!) vitunr við fullvel að
sigurinn ge.tur ekki ger igiff
okkur úr greipum ef við höf-
um inanndóm til að standa
vörð um hann.
Sjélfsfæilsfiokksmeiui !
fsurfa að hafa vif fyrir
íorsprökta smm
Afstaða leiðtoga Sjálfstæðis-
flokksins kemur andstæðingum
þeii'ra ekki svo mjög á óvart
(þótt æfinlega sé erfitt að gera
ráð fýrir slíkum viðbrogðum
að óreyndu). En hún hefur vak-
ið undrun o° reiði kjósenda
Sjálfstæðisflokksins um land
allt. Hafa ráðamenn flokksins
aldréi fyrr orðið varir við iafn -
almerina uppreisn gegn þeirri
stefnu sem túllruð er í Morgun-
blaðinu, enda hefur ótti þeirra
birzt Ijóslega síðustu clagana.
Þessari gagnsókn verða Sj.álf-
stæðismenn um land allt að
óiafur Thors hefur brugðizt ís-
lendingum og leggur til aff ráff-
herrafundur Atlanzhafsbanda-
lagsins verði kvaddur saman.
fylgja fast eftir og kveða sem
fjn-st endanlega niður undan-
sláttarstefnu Ólafs Thoi's og
Bjarna Benediktssonar. svo að
jafnvel þeir þori ekki framar að
impra á þeirri einstæðu kenn-
ingu að andstæðingar okkar eigi
að ráða landhelgismálinu til
lykta.
Tíminn, málgagn forsætis-
ráðherrans, birtir í gær for-
ustugrein um landhelgismáiið,
og segir þar ma.:
„Sérhver viðleitni sem hins
vegar kann að verða p;erð
innan bandalagsins (þ.e. At-
lanzhafsbandalagsins) til
þess að fá Islendinga til þess
að hvika frá 12 míhia land-
helginni. mun verða skoðuff
sem lireinn fjandskapur, og
sú aiulúð, sem nú er hér gegit
Bretum, getur þá snúizt gegn
bandalaginu og herstöðvura
þess liér á landi . . . íslenzka.
þjóðin stendur einhuga iun 12
nrilna landhelgina. Frá því
takmarki verður ekki hvikaff.
Um það atriði verður ekki
samið. Eítir árís Breta er
ekki til sá íslendingur, serii'
lætur sér koma s’P-+ í bug“.
------------------------------------------------
Bæjasráð ieykiavskar:
Landhelgismálinu veroí fylgt
fram til fyflsta sigurs
Bæjarráð Reykjavíkur samþykkti í gær með sam-
hljóða. atkvæðum allra bæjarráðsmanna að leggja eft-
irfarandi tillögu fyrir fund bæjarstjórnar Reykjavíkur
er haldinn verður n. k. fimmtudag;
„Bæjarstjórn Reykjavíkur lýsir fyllsta stuðn-
ingi sínum við útfærslu íslenskrar fiskveiðiland-
helgi í 12 mílur og telur að með peirri ráostcifun
sé verið að vernda brýnustu lífsliagsmuni íslend-
inga. Jafnframt Jordœmir bœjarstjórnin harðlega
ofbeldisverk, sem Bretar hafa framið í íslenzkri
landhelgi og skorar á alla íslendinga að sýna
einhug og festu í landhelgismálinu og fylgja mál-
inu frarn til fyllsta sigurs.“