Nýi tíminn - 02.07.1959, Page 8
S) — NÝI TÍMINN — Fimmtudagur 2. júlí 1859
62. þátíur 20. júní 1959
ISLENZK TUNGA
Ritstjóri: Árni Böðvarsson
í útvarpsþætti mínum um
daglegt mál minntist ég ein-
hvern tíma í vetur á fram-
burð þann sem nokkuð er
kominn í tízku, þegar fólk
fer af misskilinni nákvæmni
að bera samsett orð öðruvísi
fram en eðlilegt er, í þeim til-
gangi að samsetning þeirra
eða samsetningarliðir komi
eins skýrt fram og mögulegt
er. Úr þessu verður oft tilgerð
og óeðlilegur framburður. Nú
hefur mér borizt bréf um
r.etta mál frá Vilhjálmi Ein-
arssyni, Laugarbökkum í Ölf-
U3Í.
Beint tilefni bréfsins mun
vera það sem ég sagði í út-
varpinu um framburð sam-
eettra orða 24. apríl. Nú er
r.okkur vandi að lýsa fraim
turði í blaðagrein, svo skiljan-
iegt sé almennum lesanda, en
reyna skal ég. Sérhljóð eru
ýmist löng eða stutt eftir
ítöðu sinni, t.d. er ó í stór
íangt, en stutt í stórt, ö langt
i kjör og stutt í kjörs, langt
a í al og stutt í allt. Lengd-
:n fer að mestu leyti eftir því
tversu mörg samhljóð eru á
eftir sérhljóðinu. Sérhljóð í á-
herzluatkvæði er sem sé langt
á undan einu samhljóði, en
snnars venjulega stutt. Lengd
f.érhljóða er nú venjulega
táknuð í hljóðritun með tví-
: uukti, í dæmunum hér að of-
an mætti því hljóðrita stó:r
kjö:r, a:l, annars vegar, en
hafa ekkert sérmerki við sér-
hljóðatáknin hins vegar. í
þessari grein er samhljóð tví-
ritað til að sýna að undanfar-
andi sérhljóð sé stutt.
I íslenzku styttist langt sér-
hljóð á undan tveimur sam-
hljóðum, sbr. hér að ofan um
stutta ó-ið í „stórt“, ö-ið í
,,kjörs“. Þessi regia gildir
3:'ka um flestar samsetningar.
P.angt er því að segja a:l-
nienmir, kjö:rstjórn, sa:m-
Iiand, því að sérhljóðin í fyrri
Lðum þessara orða eru stutt
i eðlilegum framburði. Um
hetta sagði ég í útvarpsþætt-
jnum: — Þó að maður heiti
•Jón, dettur engum í hug að
eegja „til Jó:ns“ (með löngu
c-i), heldur „til Jóns“ (með
stuttu ó-i), ef talað er með
eðlilegum hraða, og sama-
etytting sérhljóðsins verður
:ins í samsetningum eins og
Jónmundur, en Jó:nmundur
fmeð löngu ó-i) er ekki eðli-
legur framburður. Sumir eru
að fetta fingur út í framburð
eins og vittleysa (með stuttu
i; hér ætti eiginlega að hljóð-
íita „vihtleisa", en út í það
skal ekki farið), og telja að
helzt eigi að bera fram vi:t-
3eysa (með löngu i), af því að
í málinu sé ekkert til sem
3:alla megi vitl. Þetta er útúr-
enúningur. Eftir slíkri reglu
ætti fleirtalan af lítill og
mikill ekki að verá í réttum
framburði „littlir, mikklir
(með stuttu stofnsérhljóði),
heldur „li:tlir, mi:klir“ (með
löngu stofnsérhljóði). Enginn
segir heldur bæ:klingur (með
löngu æ), heldur „bækkling-
ur“ (stutt æ), þótt orðið sé
dregið af bók. Framburðurinn
skri:vstova er einnig óeðlileg-
ur málinu og þar með rangur,
vegna þess að vhljóðið (sem
er táknað f milli sérhljóða
eins og í ,,skrifa“) breytist
samkvæmt öllum samlögunar-
lögmálum í f á undan t og
s, alveg eins og við segjum
t. d. skriftir en ekki skri:vtir.
Eini rétti framburðurinn á
þessu orði er því skrifstova.
(f-ið í stofa er borið fram
v).
Um þetta segir Vilhjálmur
m.a.: „Það er óvarlegt fyrir
mig að treysta því fyllilega að
ég liafi skilið rétt eða muni
rétt það sem ég hef heyrt í
svip einu sinni, en þó held ég
öruggt að þú hafir tálið það
óeðlilegan og „fordæmanleg-
an“ framburð að segja vit-
leysa (hér á Vilhjálmur við
langa hljóðið), rétt og eðlilegt
væri að segja vittleysa. Það
skal ég játa að mér er eðli-
legt að segja vittleysa. Hitt
er svo annað mál að mér
finnst hart að mega ekki leið-
rétta þetta og segja vitleysa,
því að ekki skildist mér þú
neita því að vit- væri upphaf-
legra og frá því sjónarmiði
réttara, enda sýnist það aug-
Ijóst. Og tvímælalaust virðist
mér að önnur verkefni kalli
meira að í þætti þínum en að
kenna slíkt. — Þó vil ég vera
hógvær og viðurkenna að e.
t.v. geti þetta verið álitamál,
þó að ég skilji það ekki. En
nú kem ég að því sem átti
að vera aðaíatriði þessa
skrifs. Skv. kenningu þinni
ekilst mér (er það misskiln-
ingur?) að einnig ætti að
vera rangt að segja t. d. ís-
land, kaupmaður (þ.e. með
löngu hljóði í fyrra lið),
vegna þess að að væri óeðli-
legt, heldur ættu aDir aðsegja
íss-,kaupp-, og þessu mótmæli
ég harðlega. Veit það að vísu
að tvöföldunin er mjög al-
geng, en hitt (Is-, kaup-, þ.e.
með löngu hljóði) er mér
fyllilega eðlilegur framburður
frá því að ég lærði að tala“.
Það er misskilningur að ég
hafi haldið því fram að sér-
hljóðin í Is- og kaup- í þess-
um orðum eða þvílíkum verði
að vera stutt, heldur er und-
antekning frá aðalreglunni,
þegar fyrri liður samsetts orðs
endar á p, t, k eða s, eða ef
síðari liður hefst á sérhljóði
(eins þótt h sé á undan sér-
hljóðinu). Því er ýmist sagt
hús:bóndi eða hússbóndi, einn-
ig í :slenzkur eða ísslenzkur,
og er hvort tveggja eðlileg-
ur- framburður. Eg hef heldur
aldrei sagt að framburðurinn
viitleysa væri rangur, heldur
bent á að vittleysa er líka
réttur framburður, sem á-
stæðulaust er að leiðrétta. En
langt sérhljóð í fyrri lið sam-
settra orða eins og admennur,
kjö:rstjórn, sa:mband éi> ekki
réttur framburður, því að
undantekning frá styttingar-
reglunni nær ekki til þessara
hljóðasambanda.
Nauðgararnir í
Florida lengu
Fjórir hvitir unglingar voru
nýlega dæmdir ’í lifstíðarfang-
elsi í Tannahassee í Florida
fyrir að hafa nauðgað þeldökkri
skólastúlku. I lögum fylkisins
liggur dauðarefsing við nauðg-
unum, en aðeins svertingjar
ihafa verið dæmdir í þá refs-
ingu. Um 60 svertingjar hafa
verið teknir af lífi síðustu 30
árin fyrir að nauðga hv'ítum
konum, og fjórir blða nú dauða
síns í fylkinu.
Prófessor Melhorn við Purduc-háskólann í Indiana í Banda-
... . f'
r|ikjunum heldur þarna á loft 12.000 ára gömlu beini úr út-
dauðum risafíl, sem fannst í jörðu þegar bóndi Var að plægja
akur sinn. Fornlífsfræðingar eru búnir að tína þarna saman
400 bein og beinabrot, og vonast til að finna með tímanum
alla beikýagrindina úr skepnunni.
Verkföll gera ríkisstjórn
Segnis valta í sessi
Mikill hluti ítalska kaupskipastólsins
hefur lamazt, mörg verkföll í aðsigi
Ríkisstjórn Antonio Segni sem setið hefur við völd
á Ítalíu í um fjóra mánuði er nú völt í sessi vegna
verkfalla og óeirða sem af þeim hafa sprottið.
Verkfall farmanna hefur nú
staðið í rúman hálfan mánuð,
80.000 bankastarfsmenn hafa
lagt niður vinnu, verkamenn í
tóbaks- og salteinkasölum rik-
isins boðuðu viðvörunarverk-
fall 23. júní og verkamenn í
málm-, vefnaðar- og timburiðn-
aðinum hafa borið fram kröfur
um kjarabætur.
Jafnframt lýstu samböndin yf-
ir því að þau væru reiðubúin
að fjölga verkfallsmönnum
stöðugt þar til hverju einasta
ítalska skipi hefði verið lagt.
Engir samningar
Engar samningaumleitanir
fara fram þar sem vinnuveit-
endur hafa krafizt að verkfall-
inu verði hætt áður en til mála
komi að þær hefjist. Hvorugur
deiluaðilinn hefur sinnt ítrek-
'uðum tilmælum ríkisstjórnar-
jinn að taka upp samninga, og
Segni forsætisráðherra er
'smeykur við að skerast í leik-
inn, þar sem það gæti hæglega
gert ríkisstjórninni enn erfið-
ara fyrir.
530 morð og önnur oíbeldisverk íramin
þar vegna kynþáttahaturs síðan 1955
Faraldur morða, líkamsmeiðinga og annarra ofbeldis-
verka hefur gengið yfir suðurfylki Bandaríkjanna síðan
1955, þegar hæstiréttur Bandaríkjanna bannaði aðskiln-
að kynþáttanna í skólum landsins.
Þetta er niðurstaða skýrslu
em kynþátta- og menningar-
efnd bandaríska kirkjuráðsins,
andsnefnd banldarískra kvek-
ra og þjóðráð’ suðurfylkjanna
afa gefið út.
30 ofbeldisverk
I skýrslunni er greint frá 530
ofbeldisverkum sem sönnun fyr-
ir því hve mannréttindi standa
höllum fæti í euðurfylkjUnum.
Enda þótt pólitískir leiðtogar
suðurfylkjanna þykist berjast
gegn lögleysinu, segir í skýrsl-
unni, hlýtur sú spurning að
vakna hvernig á því standi að
stjórnarvöldin þrjóskast við að
framfylgja úrskurðum fylkis-
dómstóla eða fara í kringum
þá.
Samtök sem berjast fyrir
kynþáttaaðskilnaðinum hafa
sprottið upp um öll suðurfylk-
in og í þeim voru 300.000 fé-
lagar árið 1956.
Einiiig gyðingaliatur
Aðrir hópar, eins og t. d.
Ku-Klux-Klan sem vakið hefur
verið til lífs aftur, láta eér
ekki nægja áróðursstarfsemi,
heldur berjast með öðrum vopn-
Selnar naálverk
ef tir iiiáli
ítalskur abstraktmálari, Pinto
Gallizio, býður verk sín til sölu
í metratali í Miinchen. Hann
selur ,,meðalgóð“ málverk á 900
krónur metrann en í málverkum
af „æðri“ gæðaflokki kostar
metrinn 2500 krónur. Listgagn-
rýnendur í Múnchen, frum-
heimkynni abstraktmálverksins,
telja Gallizio með betri málurum
sem þar starfa.
Eúizt við i Ben
Gurion fari frá
Horfur eru á því að Ben Gur-
ion forsætisráðherra ísraels, segi
af sér einhvern næstu daga.
Hann hafði hótað afsögn ef ein-
hverjir stuðningsmenn stjórnar
hans greiddu atkvæði á þingi
gegn tillögu hans um að þingið
hefði ekkert við það að athuga
að Israel seldi vopn til V-Þýzka-
lands. Tillaga hans var að vísu
samþykkt, með 57 atkvæðum
gegn 45, en 6 sátu hjá, hinsveg-
ar greiddu þingmenn vinstrisósí-
aldemókrata sem styðja stjórn-
ina atkvæði gegn henni. Talið er
líklegt að Ben Gurion reyni að
mynda minnihlutastjóm.
um, eins og t.d. sprengjutilræð-
um, krossbrunum, símahótunum
og líkamsmeiðingum.
Árásunum hefur ekki aðeins
verið stefnt gegn svertingjum,
heldur einnig hvítum mönnum
sem komið hafa fram við þá
sem jafningja.
Gyðingahatur er einnig í al“
gleymingi, ofsóknir gegn gyð-
ingum eru algengar og mörg
bænahús þeirra hafa verið eyði-
lögð.
Ljótur listi
1 skrá þeirri sem birt er í
skýrslunni um ofbeldisverk og
unnin er úr blaðafréttum er
skýrt frá því að sex svertingj-
ar hafi verið drepnir í kyn-
þáttaóeirðum, 29 menn, þar af
11 hvítir, hafi orðið fyrir skot-
árásum og særzt. 44 öðrum
mönnum hefur verið misþyrmt,
fimm verið stungnir hnífum og
einn svertingi verið geldur..
Sprengjum hefur verið varpað
að 30 húsum og í einni spreng-
ingu í borginni Clinton í Tenn-
essee eyðilögðust önnur 30 hús.