Nýi tíminn


Nýi tíminn - 02.07.1959, Blaðsíða 9

Nýi tíminn - 02.07.1959, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 2. júlí 1959 NÝI TlMINN (9 ÞingvalSavatn er nú hætf að lækka Gamla Sogsfarvcginism var lakað sl, sunnudag og nýi varnargarð- urinii við Efra-Ssgsvirkjsanina mun nú kominn í fag Hluti af Maju hinni nöktu Maja hneykslaði póststjórnina Bandaríska póststjórnin hefur gert upptæk 2000 póstkort með ■eftirmynd af hinu fræga mál- verki spanska meistarans Goya af Maju hinni nöktu. Embætt- ismennirnir segja, að listaverkið sé ósiðlegt og fáist því ekki sent í pósti. Kvikmyndafélagið Unit- ed Artists hafði sett kortin í póst og hugðist nota þau til að kynna kvikmynd sem nefnd er eftir málverkinu. Lækkun Þingvallavatns mun hafa verið stöðvuð þegar þetta blað kemur til lesenda, en stöðugt hefur vatnið flætt úr því og yfirborð þess lækkað frá því fyrir hádegi 17. júní sl. að varnargarðurínn brast við Efra-Sog eða samtals 1 þrjár vikur, og yfirborö Þingvallavatns lækkað á annan metra. — Hinum gamla farvegi Sogsins var lokað á sunnudaginn var. Gamli farvegurinn þurr Farvegi Sogsins, sem Þing- vallavatn mun hafa runnið um frá upphafi vega, var lokað á sunnudaginn var, og síðan var unnið af fullum krafti við nýja varnargarðinn beggja megin frá. Lækkaði í þrjár vikur Allt frá því að varnargarð- urinn brast 17. júní, hefur yfir borð Þingvallavatns farið lækkandi, hafði það lækkað um 103 sentimetra. Fyrst eftir að varnargarðurinn brast ílæddu úr vatninu 250 rúmmetrar af vatni á sekúndu en fór smá- minnkandi og mun í gærmorgun hafa verið komið niður í 120 rúmmetra á sekúndu. Verður rafmagnsskortur ? Margir hafa spurt um hvort verða myndi rafmagnsskortur. Reynt mun verða að forða því. Eftir að varnargarðinum hefur verið lokað að nýju, verður sprengd renna niður í gamla farveg Sogsins ogúátnir renna þar 30—60 rúmmetrar á sek- úndu svo vélarnar í Sogsstöðv- unnm haldi áfram. Áburðarverksmiðjan stöðvast Talið er að 30—40 rúmmetr- ar á sekúndu nægi til þess að stöðvarnar geti framleitt nægi- legt rafmagn til a'mennings- nota — ef Áburðarverksmiðjan verður tekin frá. Tekur langan tíma Þegar nýja varnargarðinum hefur verið lokað örugglega verður hægt að fara að gera ráðstafanir til þess að hækki í Þingvallavatni aftur. Margir spyrja hvenær það muni kom- ast í samt lag aftur. Því mu:i ekki gott að svara, en það tek- ur áreiðanlega langan tíma. Tjónið af völdum þessa ó- happs er gífurlegt — og marg- þætt. Fyrst og fremst eeinkar það Efra-Sogsvirkjuninni a.m.k. um mánuð, að því talið hefur verið. Tjón verktakanna mun og mikið. Og loks mun þetta óhjákvæmilega minnka veiði allmikið í vatninu, því þúsurídir silungsseyða hafa drepist — orðið eftir á þurru landi þegár lækkaði í vatninu. í skýrslu sem utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings hefur birt kemur fram hvöss gagnrýni á stefnu og starfshætti bandaríska utanríkisráöuneytis- ins. Skýrslan var gerð heyrinkunn j Washington á laugardaginn. Nöfmnn leyní Ilöfundar skýrslunnar eru fyrrverandþ starfsmenn í banda- aúsku utanríkisþjónustunni. Nefndin heldur nöínum þeirra leyndum, svo að þeir geti sagt það sem þeim býr í brjósti án þess að þurfa að óttast að verða látnir gjalda þess. í skýrslunni er látin í ljós sú skoðun, að skammsýni og klaufaskapur valdi mestu um að Bandarík.iunum hefur ekki lán- azt að ná frumkvæðinu í heims- málunum úr höndum sovét- stjórnarinnar. Bandalögin hrófatildur Diplómötunum finnst að það geti ekki góðri lukku stýrt, að í margar þýðingarmestu sendi- herrastöðurnar eru skipaðir menn sem gefa ríflega í kosn- ingasjóð þess flokks sem er við völd þá og þá stundina, eða af- dankaðír stjórnmálamenn. Sér menntaðir menn eru alla jafnan sniðgengnir í málum sem varða sórsvið þeirra, en oft skipaðir til að sþma allsóskyldum verk- efnum. Ekki eru diplómatarnir hrifn- ir af áhrifum bandarísku her- stjómarinnar á utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Einkum finnst þei.m það misráðið, að allar hernaðaráætlanir Bandaríkj- anna skuli miðaðar við það að bejta kjarnorkuvopnum. Sumir höfundar skýrslu utan- rikismálanefndarinnar eru van- trúaðir á- að Bandaríkjunum sé nokkur styrkur að hernaðar- bandalögum eins og Suðaustur- Asíu bandalagjnu og Bagdad- bandalaginu, sem komið var á laggimar með mikiUi fyrirhöfn Og æmum kostnaði. Þeir sem þessa skoðun að. hyllast eru einnig andvígi: bandarískri hernaðaraðstoð vií hvert það ríki sem fáanlegt e: til að gera hernaðarsamning vic Bandaríkjn. Þeir benda á, aí oft eru vopnin sem látin eru í t< notuð tjl þess að halda ilh liðnum ríkisstjórnum við völc gegn vilja þegnanna. Diplómatarnir eru á einu mál um að í .bandarísku utanrjkis þjónustunni sé það háskalega al- gengt að menn byggi ekki um- sagnir sínar og ráðleggingar á staðreyndum sem fyrir liggja, heldur sníði þær eftir skoðunum og hleypidómum yfirmanna sinna. Þetta stafar af því að þess eru ískyggilega mörg dæmi að embættismenn hafa fengið áminningu eða jafnvel verið reknir úr starfi fyrir að setja fram í skýrslum sínum skoðanir sem brutu í bág við þær kredd- ur sem voru ríkjandi álit í Washington. ísfell semur um smíði 2ja 1600 lesta togara Það er orðið harla lítið eftir af vatni í liinum gamla farvegi Sogsins, eins og pið sjáið hér. Þar sem Sogið byltist áður hvítfyssandi eru nú jarðýtur að verki. Síðan veröur svo aftur hleypt vatni í penna farveg til að hálda vélum virkjananna við Sogið gangandi. — Ljósm. Sig. Guðm. í fréttum útvarpsins í gær- kvöldi var skýrt frá því að útgerðarfyrirtækið Isfell á Flateyri hafi gert samning um smíði tveggja nýrra 1000 lesta togara í Vestur-Þýzka- landi. Eiga togarar þessir að ganga 15 sjómíiur og er af- hendingarfrestur skipasmíða- stöðvanna á þeim 12 og 1314 mánuðir. Farvegi Sogsins hefur verið lokað og unnið er af kappi að pví að fullgera nýja varn- arvegginn fyrir inntákinu í Dráttarhlíðina fyrir Efra-Sogsvirkjunina. Eins og pið sjáið er verkinu langt komið pegar myndin er tekin. — Ljósm. Sig. Guðm.

x

Nýi tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýi tíminn
https://timarit.is/publication/883

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.